Kísilver stöðvar fólksfækkun//þetta eru ekki ábygilegar tölur, als ekki!!!!

Kísilver stöBakki við Húsavík.ðvar fólksfækkun Innlent | mbl.is | 4.3.2013 | 18:19 Þegar framkvæmdir hefjast við kísilver á Bakka er gert ráð fyrir að fólksfækkun á norðausturhorninu muni stöðvast, bæði vegna þeirra atvinnutækifæra sem verða í boði á Húsavík og starfa tengdra m.a. fiskveiðum og vinnslu sem flytjast frá Húsavík til Kópaskers, Þórshafnar og Raufarhafnar. Þetta kemur fram í mati Byggðastofnunar.

Kísilver stöðvar fólksfækkun Frumvarp til laga um heimild til samninga um kísilver í landi Bakka í Norðurþingi var lagt fram á Alþingi síðdegis.

Í sérákvæðum frumvarpsins er kveðið á um að félagið njóti eftirfarandi ívilnana umfram þær ívilnanir sem heimilt er að veita í núgildandi lögum um nýfjárfestingar, sbr. lög nr. 99/2010: Að félagið njóti 15% tekjuskattshlutfalls í stað 20% eins og nú er.

Að félagið greiði engin gjöld af stimpilskyldum skjölum sem félagið gefur út eða stofnar til í tengslum við uppbyggingu viðkomandi fjárfestingarverkefnis í stað þess að greiða 0,15%. Að félagið njóti 50% afsláttar af fasteignagjöldum í stað 30% afsláttar.

Að félagið verði undanþegið almennu tryggingagjaldi í stað þess að fá 20% afslátt af gjöldunum. Að heimilt verði að heimila félaginu frávik frá sköttum og gjöldum í 14 ár í stað 13 ára frá undirritun samnings eins og gert er ráð fyrir í 3. mgr. 9. gr. laga nr. 99/2010, en þó aldrei lengur en í 10 ár frá því að skattskylda eða gjaldskylda myndast hjá félaginu.

Þær ívilnanir sem ríkið veitir til verkefnisins vegna frávika frá sköttum og gjöldum, þ.e. lægra tekjuskattshlutfall og undanþága frá almennu tryggingagjaldi og stimpilgjaldi, eru áætlaðar um 100–150 millj. ísl. kr. að meðaltali á ári eða um 1–1,5 milljarðar kr. á öllu tímabilinu sem heimilt er að veita ívilnanir eða í 10 ár en þó aldrei lengur en í 14 ár frá því að fjárfestingarsamningur er undirritaður.

„Ekki er því um bein útgjöld að ræða en ljóst er að ríkissjóður verður af þessum tekjum. Aðrar ívilnanir um frávik frá sköttum og gjöldum sem raktar eru í þessu frumvarpi falla á sveitarfélagið Norðurþing, þ.e. 30% afsláttur af gatnagerðargjöldum og 50% afsláttur af fasteignagjöldum, að því tilskildu að slíkt verði heimilað að lögum.

Þá hyggst hafnarsjóður Norðurþings veita félaginu 40% afslátt af vörugjöldum.“ Fyrirhuguð fjárfesting vegna byggingar kísilvers á Bakka er áætluð um 170 milljónir evra (á verðlagi ársins 2012) eða um 28 milljarðar ísl. kr. og er þá miðað við að meðalgengi evrunnar á tímabilinu verði 163 kr.

Áætlað er að fjárfestingin dreifist yfir þrjú ár. Samkvæmt matinu eykst landsframleiðslan um samtals 33,2 milljarða kr. á tímabilinu 2013–2017, sem er um 0,27% af væntri landsframleiðslu///////////////Svona í fljótu bragði dettur manni í hug bara atvinnubótavinna,og sennilega afrakstur engin næstu árin ekkert nema kostnaður sem við borgum að fullu!!ég sé bara ekkert annað þarna,ef ég misklið það sýnið manni þá ekkert koma nema kostnaður fyrstu árin allavega ef nokkurn tíman?? bara atvinnubótavina og nær hefði verið að byggja þarna Álver ekki spurning!!!þetta er svona að sitt sýnist hverum en þetta skapar vinnu en fjárútlát mikil og hvar er peningurinn??/Halli gamli  


mbl.is Kísilver stöðvar fólksfækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband