Gæti orðið glórulaus bylur/Förum varlega spáinn ill: og gæti orðið kol ófært!!!

Gæti orðið Spáð er austan 15-20 m/s og síðar 20-25 m/s undir Eyjafjöllum.glórulaus bylur Innlent | mbl.is | 5.3.2013 | 22:42 Undir Eyjafjöllum og í Mýrdal er spáð hríðarveðri seint í kvöld og áfram í fyrramálið. Spáð er austan 15-20 m/s og síðar 20-25 m/s og því gæti orðið glórulaus bylur á þeim slóðum. Þetta segir í ábendingu frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar.

Einnig er spáð hríðarveðri á Suðurstrandarvegi og við Grindavík frá því seint í nótt. Óvissa er talsverð um það hve vel inn á land hríðin kemur til með að ná sunnanlands. Vegir eru að mestu enn auðir á Suðurlandi, hálkublettir og éljagangur er undir Eyjafjöllum.

Á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir nokkuð víða, él og skafrenningur. Hálkublettir eru á Bröttubrekku en hálkublettir og éljagangur á Holtavörðuheiði. Þungfært og skafrenningur er á Fróðárheiði.

Slæmt ferðaveður er á Vestfjörðum. Ófært og stórhríð er um Klettsháls. Hálka og skafrenningur er á Mikladal, Hálfdán og Kleifaheiði.

Þungfært og stórhríð er á Steingrímsfjarðarheiði en þæfingur og stórhríð á Þröskuldum. Hálka og skafrenningur er á Gemlufallsheiði, Önundarfirði og Súgandafirði en hálkublettir eða hálka og éljagangur er í Ísafjarðardjúpi og á Innstrandavegi.

Á Norðanverðu landinu er hálka, snjóþekja og skafrenningur og allir vegir færir fyrir vetra búna bíla. Á Austurlandi er þæfingsfærð og skafrenningur á Fjarðarheiði.

Hálka og éljagangur er á Oddsskarði en snjóþekja á Fagradal annars er víða þæfingur eða snjóþekja og skafrenningur á Héraði. Hálkublettir eru frá Fáskrúðsfirði í Djúpavog./////////Við skulum vera á varbergi og fara hvergi þegar þetta versnar aftur "ekki hundi út sigandi" eins og sagt er í málsgátum og þetta er bar það sem við eigum að taka alvarlega mjög ,við tryggum ekki eftirá,en við viljum engin slys það er víst!!!//Halli gamli


mbl.is Gæti orðið glórulaus bylur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045796

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband