Trúverðugleiki Seðlabankans í húfi//Sjálfstæður Selabanki ekki bara stundum!!!

TrúverðuSeðlabanki Íslandsgleiki Seðlabankans í húfi Innlent | mbl.is | 9.3.2013 | 12:00 Trúverðugleiki Seðlabanka Íslands getur verið í húfi með því að neita Alþingi um útskrift af símtali þáverandi seðlabankastjóra og þáverandi forsætisráðherra um lánveitingu 500 milljón evra lán Seðlabankans til Kaupþings 6. október 2008.

Þetta kemur fram í skýrslu fjárlaganefndar Alþingis. Birt hefur verið á vef Alþingis skýrsla fjárlaganefndar til Alþingis um lánveitingu Seðlabanka Íslands til Kaupþings hf. 6. október 2008.

Í henni segir að miðað við fyrirliggjandi upplýsingar frá Seðlabankanum hefur um helmingur lánsins verið endurgreiddur og óvíst hverjar endanlegar heimtur verða.

Þá segir að ætla megi að seðlabankastjóri og forsætisráðherra hafi báðir verið vel meðvitaðir um stöðu Kaupþings hf. 6. október 2008 og að gríðarleg áhætta væri því fylgjandi ákvörðun um að lána bankanum slíka upphæð án fullnægjandi trygginga.

„Í ljósi þeirra upplýsinga sem nú liggja fyrir um aðdraganda hrunsins og falls íslenska fjármálakerfisins má draga þá ályktun að þörfina fyrir þrautavaralánið til Kaupþings hf. hafi ekki borið eins skyndilega að og upphaflega var talið.

Því hafi aðdragandinn og þar með tækifæri Seðlabankans til að undirbúa lánveitinguna með nauðsynlegri skjalagerð verið rýmri en áður var talið.

“ Ekki séð að bankinn skaðist við að veita upplýsingarnar Einnig segir að mikilvægt sé að Alþingi verði upplýst um hvort með lánveitingunni hafi verið tekin meiri áhætta með fjármuni ríkisins en forsendur voru fyrir á þeim tíma.

„Það er sömuleiðis mikilvægt að Alþingi fái fullnægjandi upplýsingar um ástæður lánveitingarinnar og forsendurnar að baki henni.

“ Ennfremur segir að ekki verði séð að Seðlabanki Íslands geti skaðast af því að veita umbeðnar upplýsingar, þvert á móti megi ætla að trúverðugleiki bankans geti verið í húfi með því að leyna þeim fyrir þinginu.

„Það er því ekki aðeins sjálfsögð og eðlileg krafa að Seðlabankinn upplýsi þingið án tafar um alla þætti þessa máls heldur skylda hans að gera það.„ Fjárlaganefnd sé ekki unnt að upplýsa nánar um aðdraganda og ástæðu þess að stórum hluta gjaldeyrisvaraforða landsins var ráðstafað.

„Fjárlaganefnd felur Alþingi nú að taka ákvörðun um framhald þess máls og að Seðlabanki Íslands verði krafinn um fullnægjandi upplýsingar um 500 milljóna evra (nærri 77,5 ma.kr.) lánveitingu til Kaupþings hf. 6. október 2008.“///////////////það er svo að maður,er ekki að verja neinn,en þetta mál er mjög stórt,og allt það og uppgjör þess löngu búið,en það er ekki hjá þessari vinstri stjórn sem helmigurinn,var í hrunstjórnini,og ákærði einn bara Geir Haarde var dæmdur einn fyrir allt sem  skeði aðrir ekki ,fyrir Landsdómi og þar eiginlega bara kostnaður og ekkert annað,en lítið sem ekkert kom þar út!!!,en það er ekki nóg sá sem er fyrir fjárlaganefnd Björn Valur komminn sem er að detta út af Alþingi vonandi!!en hann er með þá sprengju að í seðlabankanum séu skráð samtöl á milli Davíð þá Seðlabankastjóra og Geir  sem var Forsætisráðherra um að lána þetta strax 80 milljarða til Arion banka sem var gert,en þetta er ekki staðfest og hefur ekki verið byrt,og verður sennilega ekki,en það skiptir þennan mann Björn Val engu,þetta skal bara vera satt,og verða sprengja ein og hann hefur kastað nokkrum áður,þessi maður,maður mun bara seigja við því,maður líttu þér nær!!!En þessi ríkisstjórn er að líða undir lok,en þeir vilja gera allt til að endurnýja hana og vænta þess að þessar sprengjur sem kastað er dag eftir dag í Framsókn og Sjálfstæðisflokk,og kenna þeim um allt sem er að fyrr og seinna,en trúir fólk þessu virkilega að þeir menn þessa flokka sem flestir verða nýir séu ekki verðugir stjórnendur þessa lands,þetta er þannig að allt skal notað ósannað logið og sumt alveg skáldað,en í slag kosninga mun þetta allt vera líðum ljóst,eða það vona ég allavega!!!/Halli gamli


mbl.is Trúverðugleiki bankans í húfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband