ESB eitt brýnasta kosningamálið/Úlfar í sauðagæru eru tilbúinir selja landið!!!

ESB eitt brýBjörgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar.nasta kosningamálið Innlent | mbl.is | 15.3.2013 | 11:34 „Það er bara ekkert nýtt í því heldur að talsmenn Samtala iðnaðarins vilji ganga í Evrópusambandið.

Það eru engar nýjar fréttir,“ sagði Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, í umræðum á Alþingi í morgunMeð þeim ummælum var hann að bregðast við ræðu Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, sem vitnaði til ræðu formanns Samtaka iðnaðarins, Svönu Helenu Björnsdóttur, á Iðnþingi í gær að það væri glapræði að hætta viðræðunum um inngöngu Íslands í Evrópusambandið.

Björgvin sagði í ræðu sinni að enn bættist í hóp þeirra fulltrúar atvinnulífsins sem hefðu uppi hávært ákall til Alþingis um að ljúka viðræðunum við Evrópusambandið og vísaði þar til ræðu Svönu Helenar.

Sagði hann að farsæl lúkning viðræðnanna væri eitt brýnasta kosningamálið og ánægjulegt væri að þeim stjórnmálaflokkum sem vildu ljúka þeim hefði fjölgað.

Vísaði hann þar til Bjartrar framtíðar. Björgvin sagði það vekja áhyggjur að Sjálfstæðisflokkurinn, sem lengi hafi talist einn helsti málsvari atvinnulífsins á vettvangi stjórnmálanna, boðaði nú hörðustu andstöðuna við inngöngu í Evrópusambandið.

Beindi hann þeim spurningum að fulltrúum flokksins hvers vegna ekki mætti klára viðræðurnar og bera endanlegan samning undir þjóðina.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tók undir með Björgvini að hún teldi rétt að klára viðræðurnar við Evrópusambandið.

Hins vegar sagði hún þversagnir í málflutningi Samfylkingarinnar.

Flokkurinn hafi þannig beitt sér gegn því að sjávarútvegur á Íslandi gæti borið sig á grundvelli markaðslausna og reynt þess í stað að koma honum inn í félagslegt kerfi sem þýddi að staða hans innan Evrópusambandsins yrði mjög erfið.

Það færi betur á því að þingmenn Samfylkingarinnar tækju fyrst til heima hjá sér áður en þeir færu að agnúast út í afstöðu annarra flokka til þessara mála.///////////Þetta ber á sjálfu sér ágætt að allir þarna sameinist og verði bara með og það verði bata kosið um þetta meðfram öðru og ég segi fyrir mig af fólk vill þetta þá það um það,en menn hugsa sig um akki spurning eigum við að láta Brúsel stjórna öllu hérna og við höfum ekkert að segja,þetta var eignlega á gætt hjá Björgvini sem er einn að hrunkönnununum að taka þetta svona afgerandi ,þau búast við að þeir fái eitthvað úr öllum flokkum,og málinu reddað hjá okkur sem viljum þetta ekki!!!Far vel FRANS,ef þetta á að bjarga okkur  er eins gott að huga að hreyfings burt g héðan !!!!/Halli gamli


mbl.is ESB eitt brýnasta kosningamálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045715

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband