Carl Bildt setur norðurslóðaráðstefnu/Hann og Össur ESB báðir ,en þetta er annars sem nauðsin er að tala um!!!!!

Carl BildCarl Bildt.t setur norðurslóðaráðstefnu Innlent | mbl.is | 15.3.2013 | 15:43 Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar mun á mánudag opna formlega ráðstefnu um norðurslóðir í Reykjavík ásamt Össuri SkarphéðinssyniAlþjóðamálastofnun Háskóla Íslands opnar nýtt rannsóknasetur um norðurslóðir með því að bjóða til alþjóðlegrar ráðstefnu um áskoranir og tækifæri á norðurslóðum á Hótel Sögu 18.-19. mars.

Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, er væntanlegur til landsins til að taka þátt í ráðstefnunni og opnar hana formlega ásamt Össuri Skarphéðinssyni, mánudaginn 18. mars kl. 18.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Alþjóðamálastofnun. Nýja rannsóknasetrinu (Centre for Arctic Policy Studies – CAPS) er ætlað að vera vettvangur fyrir þverfaglegt samstarf á sviði norðurslóðarannsókna með áherslu á hlutverk og stefnu ríkja, stofnana og óopinbera aðila í stjórnarháttum, menningu og samfélagi á norðurslóðum.

Nýja rannsóknasetrið mun leita eftir samstarfi við aðra íslenska háskóla, íslensk og erlend rannsókna- og fræðasetur á sviði norðurslóðarannsókna, og við sérfræðinga í opinbera geiranum og einkageiranum á Íslandi og víðar.

Til að mynda er samstarf við nýstofnað Norðurslóðanet Íslands á Akureyri í burðarliðnum. Nýráðinn forstöðumaður Rannsóknaseturs um norðurslóðir er Dr. Kristinn Schram, þjóðfræðingur, nýdoktor hjá Eddu - öndvegissetri og Reykjavíkurakademíunni og fyrrum forstöðumaður Þjóðfræðistofu.

Þá hefur Margrét Cela, alþjóðastjórnmálafræðingur og doktorsnemi í alþjóðasamskiptum, verið ráðin verkefnisstjóri setursins. Í tengslum við opnun rannsóknasetursins verður haldin alþjóðleg ráðstefna um áskoranir og tækifæri á norðurslóðum á Hótel Sögu, 18. og 19. mars.

Fjölmargir erlendir og íslenskir fræðimenn og sérfræðingar, þar á meðal frá Kína, Rússlandi, Kanada, Noregi og Bandaríkjunum, taka þátt í ráðstefnunni. Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, sem hýsir nýja rannsóknasetrið, og Friðarrannsóknastofnunin í Stokkhólmi (SIPRI), skipuleggja ráðstefnuna með aðkomu utanríkisráðuneyta Íslands og Svíþjóðar.

Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, og starfsbróðir hans, Össur Skarphéðinsson, opna ráðstefnuna kl. 18 mánudaginn 18. mars í salnum Kötlu á Hótel Sögu (2. hæð). Ráðstefnan sjálf fer fram daginn eftir frá kl. 9:00-18:00 og mun Carl Bildt einnig taka þátt í ráðstefnunni þann daginn.

Meðal annars verður fjallað um efnahagsmál á norðurslóðum, umhverfismál, auðlindir og fiskveiðar. Dagskrá ráðstefnunnar má finna á heimasíðu Alþjóðamálastofnunar, www.ams.hi.is. Ráðstefnan er öllum opin.

Í tengslum við ráðstefnuna stendur nýja rannsóknasetrið í samstarfi við Nexus (Rannsóknavettvang um öryggis- og varnarmál) fyrir meistara- og doktorsnema málstofu, með þátttöku nema frá íslenskum og norskum háskólum, þar sem þeim gefst færi á að kynna rannsóknir sínar sem snúa að norðurslóðum.///////////////Þetta er ágætt en það er samt Evrópufnykur af þessu ekki spurning!! þetta er þarf verk að vinna þarna en við norðlægu löndin eiga að vara í þessu samstarfi og framtíð ég mundi binda mig við Norðurlönd og Grænland og Ameríku og Færeyjar,við verum að vara þarna vel á verði og passa okkar okkar rétt til að taka þátt og hafa og hér aðstöðu við þetta og það skapar vinnu og gjaldeyrir ekki spurning!!!/Halli gamli


mbl.is Carl Bildt setur norðurslóðaráðstefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 1045704

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband