Þjóðverjar óttast um innistæður ///það er von það kostar klof að ríða röftum!!!!

ÞjóðverjaEvran. r óttast um innistæður Erlent | mbl.is | 26.3.2013 | 15:54 Nærri helmingur Þjóðverja hefur áhyggjur af bankainnistæðum sínum. Eins og nýleg dæmi frá Kýpur sýna eru innistæður ekki öruggar.

Atkvæðagreiðsla um innistæður var felld, en búið er að frysta innistæður yfir 100 þúsund evrum. Þá óttast hagfræðingar að verðbólga muni láta á sér kræla innan tíðar.

þar sem aukin peningaprentun er nauðsynleg til að fjármagna björgunarpakka skuldugra þjóða Af hverju ekki á Spáni líka ? Í frétt Der Spiegel um málið er farið yfir það hvernig traust hafi minnkað á stofnanir í Þýskalandi í kjölfar þessara atburða.

Margir eru minnugir þess þegar settur var skattur á fasteignir í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar og því fordæmi fyrir eignaupptöku í landinu.

Nýleg rannsókn Seðlabanka Þýskalands sýndi að Spánverjar ráða að meðaltali yfir meiri auðæfum en Þjóðverjar.

Hafa í kjölfarið komið fram hugmyndir um að réttlætanlegt væri fyrir spænsk yfirvöld að setja sérstakan skatt á innistæður eða fasteignir til að bregðast við skuldavanda þjóðarinnar í stað þess að velta vandanum yfir á aðrar þjóðir ESB. Sama er upp á teningnum í Grikklandi og Kýpur þar sem margir högnuðust gríðarlega í bólu sem myndaðist í hagkerfum ríkjanna fyrir árið 2008.

Benda margir á að sanngjarnara væri að sækja í þessa vasa en að deila kostnaði af björgunarpakka þjóðanna á skattgreiðendur hinna ríkjanna. Líklega hafa þau sjónarmið orðið ofan á þegar kýpversk stjórnvöld ákváðu að frysta eignir yfir 100 þúsund evrum en tryggja lægri innistæður.

Óttast verðbólgu Þá óttast margir hagfræðingar á að verðbólgudraugurinn sé handan við hornið. Peningaprentun hafi aukist mikið til þess að fjármagna björgunarpakka þeirra þjóða sem þurfa á aðstoð að halda.

Líklegt þyki að slíkt muni á endanum leiða til frekari verðbólgu á evrusvæðinu og fari verðbólgan upp í 4-5% mun það helminga sparnað fólks að raunvirði á 15 árum.

Hin hliðin á teningnum er sú að verðbólgan étur jafnframt upp skuldir að raunvirði og benda sumir hagfræðingar á að skuldugar stórþjóðir á borð við Breta, Japani og Bandaríkjamenn sjái það jafnvel sem leið til þess að komast undan skuldaklafanum sem þjóðirnar glíma við.

Því sé sá möguleiki til staðar að hvata vanti í kerfinu til þess að verja bankainnistæður.

Bent er á að aðeins þeir sem eiga nægt fjármagn geta dreift áhættunni með hjálp fjárfestingarsjóða.

aðÞví gæti kreppan leitt til þess að þeir einu sem tapi á þessari þróun séu hinir tekjulægri, þ.e. launafólk. Á sama tíma haldi hinir eignameiri sínu.//////////////////////þetta er von að ekki sé þarna samstaða  þetta er nánast einræði Þýskalands meira og minna og það er bara opinbert!!!ekkert annað er hinir bara með,svo einfalt er það,þetta neitunarvald er lítið virkt en ef það er eru menn bara keyptir eins og við þekkjum hjá Samfylkingunni okkar sem vill þarna inn!!!en ég er ekki að seigja að við eigum,að hafa viðskipti við þessi ríki jú það er allt annað!!!en við skulum bara fara varlega með þetta efni og skoða vel hvað þarna er á ferð/Halli gamli  


mbl.is Þjóðverjar óttast um innistæður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband