Þegar þjóðinni var heitt í hamsi/það er gaman að verða 100 ára og í fullu fjöri!!

Þegar þjóðinni var heitt í hamsi Innlent | mbl | 23.3.2013 | 14:50 Þjóðinni var heitt í hamsi árið 1974. Landhelgisdeilan við Breta var í algleymingi og landsmenn greindi á um áframhaldandi veru Bandaríkjahers, en þáverandi ríkisstjórn hugðist endurskoða varnarsamning landsins við Nato.

Það leiddi til undirskrifasöfnunarinnar Varið land. Það leiddi til undirskrifasöfnunarinnar Varins lands, en markmið hennar var að sýna stuðning Íslendinga við veru varnarliðsins.

Aðstandendur Varins lands bjuggust upphaflega við 5.000 - 10.000 undirskriftum, en á endanum söfnuðust 55.522 undirskriftir.

Miðað var við 20 ára aldur, sem var kosningaaldurinn á þessum tíma og landsmenn voru 125.756 talsins þannig að rúm 44% Íslendinga eldri en 20 ára skrifuðu undir áskorunina.

Þær voru síðan afhentar Ólafi Jóhannessyni forsætisráðherra og Eysteini Jónssyni, forseta Alþingis, 21. mars 1974. Undirskriftirnar voru bundnar inn í 33 bækur, utan um þær var smíðaður álkistill og á þeim 39 árum sem liðin eru frá afhendingunni hefur hann verið varðveittur í skjalageymslu Alþingis.

Hér voru miklar ýfingar „Hér voru miklar ýfingar með mönnum út af utanríkismálum,“ segir Unnar Stefánsson, einn þeirra sem stóð að undirskriftasöfnuninni.

Hann segir að herstöðvarandstæðingar hafi haldið því fram að meirihluti þjóðarinnar vildi ekki hafa varnarliðið hér lengur.

„Ríkisstjórnin hafði samþykkt tillögu um að vísa varnarliðinu úr landi og þá fannst mörgum sér vera nóg boðið.“

Að sögn Unnars tóku nokkrir framsóknar- sjálfstæðis- og ålþýðuflokksmenn sig þá saman og efndu til undirskriftasöfnunarinnar.

Um hafi verið að ræða einstaklingsframtak, frumkvæðið hafi ekki komið frá einstökum stjórnmálaflokkum. Ekkert einkamál Íslendinga Þeir sem stóðu að undirskrifasöfnuninni töldu einnig að það væri ekkert einkamál Íslendinga hvort hér á landi væri her, við værum hluti af alþjóðasamfélagi og hefðum skyldur gagnvart öðrum þjóðum.

Til dæmis hefði Norðmönnum verið mikið í mun að Keflavíkurflugvöllur væri áfram starfræktur og að þaðan væri hægt að leita liðsstyrks ef á þyrfti að halda

. „Ef til þess kæmi að Rússar réðust á Norður-Noreg. Þetta sýnir hvað hættan var talin raunveruleg,“ segir Unnar. Hverjar urðu afleiðingar Varins lands?

„Nokkrum vikum seinna var þessi ákvörðun felld úr gildi, þ.e.a.s. fallið var frá þeirri ákvörðun að vísa varnarliðinu úr landi og segja sig úr Atlantshafsbandalaginu.

untitled

Ég held að þessi þjóðarvakning hafi orðið til þess að málið var lagt til hliðar,“ segir Unnar. Aðstandendur Varins lands bjuggust upphaflega við 5.000 - 10.000 undirskriftum, en á endanum söfnuðust 55.522 undirskriftir.Rúm 44% Íslendinga eldri en 20 ára skrifuðu undir áskorunina.

////////////////////Ég óska Morgunblaðinu til hamingju með 100 ára afmælið og það ekki af ástæðulausu ég hefi reyndar keypt það í tugi ára og haft oft af því mjög góðar og slæmar fréttir oft ,en ekki alltaf sáttur en aldrei í verulega fýlu farið!! ég gef því bara ágætis einkunn að hafa staðið af sér allt þetta að öll eldri blöðin hættu Þjóðviljinn Alþýðublaðið Tíminn og nýji tíminn og svo Vísir og allskonar blöð D.V. lifir en ekki meira en það,skrimtir sem veit engin hvað lengi,en útgáfa fríblaðs  Fréttablaðsins virðist ganga í þessi ár sem það hefur tekið slaginn!!!en þetta blað er umdeilt og þess vegna gæti það horfið en ég held að Moggi lifi þetta allt af sér!!!!/Halli gamli


mbl.is Þegar þjóðinni var heitt í hamsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045676

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband