Stakir frídagar verði fluttir til //Þetta er mesta þarfa þing að gera fyrir alla!!!

Eg sjálfur 1955

Mynd 577707 Stakir frídagar verði fluttir til Innlent | mbl.is | 7.5.2013 | 15:19 Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, mælti fyrir því á fundi borgarstjórnar í dag að reynt verði að ná samkomulagi við stéttarfélögin um að færa til staka frídaga í miðri viku þannig að úr verði löng þriggja daga fríhelgi.

Að sögn Kjartans er ekki verið að leggja til tilflutning allra slíkra daga heldur að menn komi sér saman um að færa 1-2 daga í byrjun og meti síðan framhaldið í ljósi reynslunnar.

Var tillögunni vísað til borgarráðs. Borgarstjórn felur kjaradeild að leita eftir því við Starfsmannafélag Reykjavikurborgar, Eflingu og aðra viðsemjendur borgarinnar að heimildarákvæði verði sett í kjarasamninga, er heimili tilflutning á stökum frídögum launafólks að vori, þannig að úr verði samfellt helgarleyfi,“ segir í tillögu Sjálfstæðisflokksins.

Kjartan Magnússon Gúndi Greinargerð með tillögunni: Í lögum og kjarasamningum eru ákvæði um almenna frídaga og eru nokkrir þeirra síðla vetrar eða snemma vors. Forsvarsmenn samtaka launafólks og vinnuveitenda hafa bent á að það valdi óþægindum og minni framleiðni að slíta vinnuvikur í sundur með því að hafa stakan vinnudag á eftir stökum frídegi.

Margt launafólk myndi án efa kjósa að flytja til staka frídaga inni í miðri viku þannig að úr yrði þriggja daga löng helgi ef það ætti þess kost. Slíkt fyrirkomulag hefur rutt sér til rúms á Bretlandi og víðar með góðum árangri og við almenna ánægju launafólks og atvinnurekenda.

Fyrir nokkrum árum var það heimildarákvæði sett inn í kjarasamninga á almennum vinnumarkaði að semja mætti um að samningsbundið frí á fimmtudögum, verði fært yfir á föstudag eða mánudag.

Um þetta þarf að semja á hverjum vinnustað fyrir sig og ef til vill er það ástæða þess að hugmyndin hefur ekki komst í almenna framkvæmd.

Reykjavíkurborg er annar stærsti vinnuveitandi landsins og því vel til þess fallin að setja málið á dagskrá. Ljóst er að slíkar breytingar verða þó ekki gerðar nema í góðu samkomulagi borgarinnar og viðkomandi stéttarfélaga

. Rétt þykir því að kanna hug helstu viðsemjenda til málsins. Nái borgin og viðsemjendur hennar samkomulagi um tilfærslu slíkra daga má búast við því að flestir aðilar vinnumarkaðarins myndu fylgja í kjölfarið.

Nú er það svo að þessir stöku frídagar eru flestir síðari hluta vetrar eða að vori þegar allra veðra að von. Vel kemur því til greina að færa einhverja frídaga yfir á hið stutta íslenska sumar og búa þannig til fleiri langar fríhelgar.

Einn frídaginn mætti t.d. hafa fyrsta mánudag í júlí. Jafnvel mætti bæta tveimur frídögum við einhverja helgi og búa þannig til fjögurra daga samfellt leyfi.

Í upphafi mætti semja um tilfærslu 1-2 slíkra frídaga og meta ávinninginn síðan í ljósi reynslunnar.

Óhætt er að fullyrða að fjölgun langra fríhelga á hinu stutta íslenska sumri, yrði launafólki almennt sem og atvinnurekendum til ánægju og yndisauka.///////////////Þessu hafur áður verið fleygt fram en það er Kirkjan sem hefur staðið á móti að mínu mati,en þetta er frábær hugmynd og tökum hana bara upp til reynslu ekki spurning,við viljum öll lengri helgar á sumrin allavega einnig gott um vetur,gerum i þessu skurk og allar verða ánægðir eða flestir/Halli gamliMynd 577707


mbl.is Stakir frídagar verði fluttir til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 1045649

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband