Mataræði eiginmannsins lögreglumál/Allt gott ef vel fer og allir sáttir!!

Óhóflegt pizzuát varð tilefni til lögregluútkalls á Suðurnesjum.Mataræði eiginmannsins lögreglumál Innlent | mbl.is | 21.5.2013 | 13:53 Lögreglan á Suðurnesjum var nýverið kvödd að heimili í umdæminu vegna hjónadeilna. Deiluefnið var mataræði mannsins og var það langþreytt eiginkonan sem óskaði eftir því að lögreglan gripi inn í.

„Hún hafði ítrekað bent honum á að pizzur, brauð og ruslfæði væru að gera honum mikinn óskunda, heilsufarslega séð,“ segir lögreglan á Suðurnesjum frá á Facebook síðu sinni í dag.

Eiginkonan lagði sig fram við það, að sögn lögreglu, að elda heilsumat handa manni sínum sem hann fúlsaði ævinlega við.

Maðurinn kvaðst hins vegar þreyttur af afskiptum konu sinnar og sagðist engan áhuga hafa á „grænum pizzum“. Lögreglan á Suðurnesjum ræddi við hjónin og kom á sáttum.

Þótt ekki sé um glæpsamlegt athæfi að ræða virðist lögreglan ekki telja það eftir sér að sinna þessu óvenjulega útkalli heldur segir að þegar önnur úrræði þrýtur geti umhyggja fólks hvert fyrir öðru gengið svo langt að lögregla sé kölluð til.///////////////þetta sýnir okkur að Lögregla er bara mannleg og tekur hlutunum vel og húmorinn í lagi og einnig afgreiðslan þetta frábært/Halli gamli


mbl.is Mataræði eiginmannsins lögreglumál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045715

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband