Ökuferð til Akureyrara fyrir mynna en 3000!!!!!!

untitleduntitled

 

Eg sjálfur 1955

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar: Árleg sparaksturskeppni FÍB og Atlantsolíu var sett kl. 9 í morgun. 24 fólksbílar aka nú 382 km á milli Reykjavíkur og Akureyrar.

Keppendur þurfa að vera búnir að ljúka keppni á 5 klukkutímum og 10 mínútum.

Á heimasíðu FÍB er hægt að fylgjast með bílunum í rauntíma. Allar hreyfingar bílanna eru skráðar niður með þar til gerðum búnaði. Keppendum er skylt að aka samkvæmt umferðarlögum, en öll frávik, eins og óeðlilega hægur akstur eða hraðakstursbrot, kosta keppendur refsistig.

Ferðalög þurfa ekki að kosta háar upphæðir Sparaksturskeppnin er að þessu sinni haldin til að vekja athygli á ferðalögum Íslendinga um eigið land og sýna fram á það að með yfirveguðu og góðu aksturslagi sé hægt að komast ansi langt á eldsneytislítranum.

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, segir að það sé nauðsynlegt að fólk geri sér grein fyrir því að ekki þurfi að kosta háar upphæðir að fara með fjölskylduna landshorna á milli.

„Í sparaksturskeppninni eru bílar sem eru að ná til Akureyrar fyrir innan við 3.000 krónur.

Með meðvituðu aksturslagi er hægt að ná verulegum sparnaði við akstur, ég tala nú ekki um þá staðreynd að meðvitaður akstur eykur umferðaröryggi til muna.

“ Einn elsti bílafloti í Evrópu Runólfur segir að það sé orðið nauðsynlegt að endurnýja bílaflota landsins. Íslenski bílaflotinn sé orðinn einn sá elsti í Evrópu og meðalaldur bílanna sé rúmlega 12 ár.

„Ætli þetta sé ekki fylgifiskur kreppunnar. 10-15 ára bílar eyða margir hverjir rúmlega 20% meira eldsneyti en sambærilegir nýir bílar.

Þar að auki eru nýrri bílar mun öruggari.“ Bílarnir sem taka þátt í sparaksturskeppninni koma frá bílaumboðum landsins, en enginn þeirra er eldri en 2012 árgerð.

„Þetta er góð vísbending til neytenda.

Þarna geta þeir séð svart á hvítu hverju bílinn er að eyða,“ segir Runólfur, sem býst við fyrstu bílunum í mark þá og þegar./////////////þetta  er frábært að gera!!! og sjá bara raunhæfa eyðslu bílana, við þessar aðstæður, og svo spökulera menn út frá því,engin getur svindlað þarna og það gott, þetta eyðir bílinn við þessar aðstæður og engin getur því mótmælt,við skoðum svo hver vinnur/Halli gamli


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045796

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband