Bjarni Benidiktsson Fjármálaráðherra talar hreynt út,og tekur á málum!!!!

3240_85622372532_655067532_2464490_96755_nBjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, gagnrýndi síðustu ríkisstjórn á Alþingi í dag fyrir að hreykja sér af tölum sem aðeins væru til á pappír því sl. fjögur ár hefðu fjárlög aldrei staðist.

Hann sagði að upp safnað væri fjárlagahallinn um 400 milljarðar króna. Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi formaður VG og Katrín Júlíusdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi fjármálaráðherra, voru málshefjendur í sérstakri umræðu um ríkisfjármál.

„Ég vona að fjármálaráðherra gerist maður raunsæis“ Steingrímur sagði að fyrstu aðgerðir nýrrar ríkisstjórnar bentu ekki til þess að hún ætlaði að sýna ábyrgð í ríkisfjármálum.

„Hvað er í vændum og hversu stórt verður þetta (fjárlaga)gat á árinu 2014? Ætlar ríkisstjórnin að halda við markmið um hallalaus fjárlög með afgangi á árinu 2014?

Ég vona að fjármálaráðherra gerist maður raunsæis," sagði Steingrímur. Katrín sagði að allt benti til þess að ný ríkisstjórn ætlaði ekki að ganga í það verk að greiða niður skuldir ríkisins.

„Þetta þykir mér metnaðarleysi. Ekki síst þegar menn eru að draga hér fram liði sem ástæður fyrir því, sem eru liðir sem ríkisstjórnir á hverjum einasta tíma þurfa að vinna að til að halda innan ramma fjárlaga. (...)

Ég vorkenni þessari ríkisstjórn ekkert að þurfa að kljást við það verkefni. Það er verkefni ríkisstjórnarinnar á hverjum tíma." Katrín sagði að álag og ávöxtunarkrafa á ríkisskuldabréf hefði farið lækkandi vegna ábyrgrar stefnu síðustu ríkisstjórnar í ríkisfsjármálum.

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, var til andsvara. Ráðherrann vék að sérstökum blaðamannafundi sem hann og forsætisráðherra efndu til um stöðu ríkisfjármála.

Ráðherrarnir hafa verið gagnrýndir fyrir að hafa lagt fram upplýsingar um stöðu ríkisfjármála sem allar lágu fyrir, en kynnt þær sem nýjar.

Bjarni vísaði þessu á bug. Rétt hafi verið að segja nákvæmlega hvernig staðan var. Fjárlög hafa ekki staðist „Við töldum heiðarlegt að gera það.

Og við höfum tiltekið þá þætti sem við teljum að sýni veikleika í ríkisfjármálum. (...) Þegar saman er tekið verður ekki komist hjá því að viðurkenna þá veikleika sem við blasa," sagði Bjarni. Hann sagði það rétt að síðasta ríkisstjórn hafi tekið við erfiðu búi.

Hins vegar sagði Bjarni að hún hefði ekki staðið við fjárlög síðustu árin. „Þau stóðust ekki fyrir árið 2009, ekki árið 2010, ekki árið 2011 og ekki árið 2012. (...)

Samtals er hallinn á ríkissjóði upp undir 400 milljarðar króna uppsafnað," sagði Bjarni. Hann sagði að ítrekað hefðu menn verið að hreykja sér með tölum sem aðeins væru til á pappírnum.

Fjárlög hefðu í raun aldrei staðist á síðasta kjörtímabili. Bjarni hrósaði síðustu ríkisstjórn hins vegar fyrir það sem vel var gert.

„Það aðhald sem hefur verið stundað hefur skilað þónokkuð miklum árangri.

Ég hef deilt á hvernig það aðhald var framkvæmt. En heilt yfir hefur tekist ágætlega að halda útgjaldahliðinni í skefjum.

Á tekjuhliðinni vantar (hins vegar) mikið upp á,“ sagði Bjarni. Hann sagði að ef hagvaxtarspár hefðu gengið eftir þá væri ekkert fjárlagagat til umræðu.

Vandinn væri fyrst og fremst tekjumegin.

Þess vegna legði ríkisstjórnin svo mikla höfuðáherslu á að senda rétt skilaboð út í þjóðfélagið og ná fjárfestingunni í gang./////////////////////Svona er þetta og svona verður að taka á málum,annars fer allt í sama farið ekkert gerist og við bara niður á við næstu ár!!!ég segi þetta eins og Bjarni ,það verður að gera þá hluti sem skila arði og hagvexti atvinnu og framförum,sem fyrrverandi ríkisstjórn gleymdi/Halli gamli 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 1045799

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband