Hin ópólitíska Kolbrún Halldórsdóttir//þetta góður pistill hjá Brynjari!!!!

„Hin „ópólitíska“ Kolbrún Halldórsdóttir“ Innlent | mbl.is | 2.7.2013 | 23:09 Brynjar Níelsson, þingmaður SjálfstæBrynjar Níelsson alþingismaður og Jóhanna María...ðisflokks, segir að ef það sé einhver sem hafi áhuga á að festa Ríkisútvarpið í pólitíska fjötra séu það núverandi stjórnarandstöðuflokkar.

Þetta segir Brynjar á blogg-síðu sinni. Hann segir að nokkrir stjórnarandstöðuþingmenn séu með böggum hildar yfir því að ríkisstjórnin „ætli að herða á pólitísku valdi yfir Ríkisútvarpinu“. „Þetta er sama fólkið og tilnefndi í stjórn Ríkisútvarpsins fólk úr innsta kjarna sinna flokka þegar það fór með völdin.

Á sama tíma tilnefndi Sjálfstæðisflokkurinn fagmann úr lista- og menningargeiranum sem enginn kannast við að hafa séð í Valhöll. [Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóra]

Svo var lögunum breytt í tíð síðustu stjórnar til að fá hina „ópólitísku“ Kolbrúnu Halldórsdóttur í stjórn Ríkisútvarpsins. Hafi einhver áhuga á að festa Ríkisútvarpið í pólitíska fjötra eru það núverandi stjórnarandstöðuflokkar.

Svo er það góð regla að þeir sem beri ábyrgð á ríkisstofnunum og fyrirtækjum í eigu ríkisins skipi stjórnir þeirra. Það er þó í samræmi við stjórnarskrána,“ segir Brynjar í pistli sínum.

Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG, gerði þennan pistil að umfjöllunarefni þegar 3. umræða um frumvarp menntamálaráðherra um RÚV hófst á Alþingi í kvöld.

Hann sagði að Brynjar væri þarna að vega ómaklega að Kolbrúnu Halldórsdóttur, fyrrverandi alþingismanni og ráðherra VG. Kolbrún væri formaður Bandalags listamanna og hefði, áður en hún snéri sér að pólitík, átt langan feril sem listamaður.

Í umræðunni vakti Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi menntamálaráðherra, athygli á því að Brynjar hefði farið rangt með eitt atriði í pistli sínum.

Kolbrún hefði ekki verið skipuð í stjórn RÚV heldur í valnefnd sem ætti að velja fulltrúa í stjórn. Brynjar sagði í þingumræðunum að um einfaldan misskilning væri að ræða sem hann hefði leiðrétt.

Aðalatriði málsins væri að sá sem sem bæri ábyrgð á rekstri Ríkisútvarpið skipaði í stjórn, en ekki einhver samtök út í bæ hvort sem þau hétu Bandalag íslenskra listamanna, Íþróttasambandið, Landsbjörg eða eitthvað annað.

Brynjar sagði að stjórnarandstöðuflokkarnir hefðu skipað fyrrverandi stjórnmálamann í stjórnina, Margréti Frímannsdóttur og framkvæmdastjóra vinstriflokkanna á Norðurlöndunum og fyrrverandi ritstjóra málgagns VG, Björgu Evu Erlendsdóttur.

Hann sagðist ekki gagnrýna þær fyrir að vera ófaglegar, en ópólitískar væru þær ekki./////////////Það  þarf ekki að færa Brynjari orð í munn hann kann það alveg of segir þara sannleikan og ekkert annað!!ég persónulega sjálfur vil leggja niður ríkisútvarp og sjónvarp,og selja og einkareka,ríkið á ekki að vera þarna í samkeppni við einkarekstur,gamla sagan um öryggi er úr sér gengið aðrir fjölmiðlar sjá um það það sannaðist í síðasta Heklugosi og víðar,þetta með listamennsku geta líka aðrar stöðvar þjónað og það vel,eða eiga ekki áhorfendur og hlustendur valið hvað þeir vilja !!!! ég hefði haldið það,en semsagt þetta sem Brynjar segir þarna er hár rétt/Halli gamli


mbl.is „Hin „ópólitíska“ Kolbrún Halldórsdóttir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband