Öll myndgreiningartæki LSH biluð,þetta er allt tilbúið,það bara sannast,að allir sem stjórna fjárlögu á Íslandi,hafa vitað þetta!!

Öll myndgreiningartæki LSH biluð Innlent | mbl | 8.10.2013 | 17:26 Myndgreining á Landspítalanum er nú í lamasLandspítalinn.þessi þar sem öll þrjú tæki spítalans eru biluð.

Bráðveikt og slasað fólk verður nú flutt í Orkuhúsið, til sjálfstætt starfandi sérfræðinga.

Að auki hefur innra tölvukerfi spítalans legið að hluta niðri síðan fyrir helgi með tilheyrandi töfum og seinagangi. Myndgreiningadeild er lykileining á nútímasjúkrahúsi.

Tækin eru notuð bæði til að greina sjúkdóma og meiðsli en einnig við inngrip, s.s. í skurðaðgerðum. Starfsfólk spítalans sem mbl.is ræddi við í dag segir að starfsemin sé að snúast upp í hálfgerðan farsa.

Sjúklingar sendir í Orkuhúsið Eins og mbl.is hefur fjallað um hefur annað af tveimur sneiðmyndatækjum Landspítalans verið bilað síðan á fimmtudag í síðustu viku.

Sneiðmyndatækin eru nauðsynlegur hluti af bráðaþjónustu spítalans og þýðir því að síðustu daga hefur þurft að flytja fjölda sjúklinga, sem komu slasaðir eða fárveikir á bráðamóttökuna í Fossvogi, yfir á Hringbraut til myndgreiningar.

Sneiðmyndatæki mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson Í dag bilaði svo líka hitt tækið, á Hringbraut, og getur Landspítalinn því ekki sinnt bráðveikum og alvarlega slösuðum sjúklingum sem þurfa á myndgreiningu að halda.

Ef á reynir verður gripið til þess ráðs að senda bráðatilfelli í Orkuhúsið, þar sem Íslensk myndgreining ehf. er með starfsemi. Þriðja myndgreiningartæki Landspítalans, s.k. ísótópatæki, bilaði einnig í dag.

Tækið hefur ekki nákvæmlega sömu virkni og sneiðmyndatæki og er ekki notað í bráðatilfellum, en er samkvæmt heimildum mbl.is engu að síðust mjög mikilvægt röntgendeild spítalans. Ísótópatækið er hið eina sinna tegundar á spítalanum og mikið notað. Bilunin lengir því biðtíma

. Myndgreining á spítalanum er því í lamasessi. Varahlutir í tækin koma að utan, frá meginlandi Evrópu og eru send til landsins með DHL. Starfsemi spítalans hálflömuð vegna tölvubilunar Ekki er ein báran stök á Landspítalanum, því í ofanálag við þessar bilanir hefur innra tölvukerfi spítalans, sk. ROS-kerfi, verið í miklum hægagangi síðustu daga og legið niðri að hluta.

Við þetta hálflamast starfsemi spítalans. Í gegnum ROS-kerfið eru m.a. pantaðar blóðtöku- og röntgenbeiðnir, sem ekki hafa virkað sem skyldi. Þá hefur gengið erfiðlega að nálgast rannsóknarniðurstöður í kerfinu, m.a. niðurstöður myndgreininga.

Eins og gefur að skilja hægir þetta umtalsvert á þjónustu við marga sjúklinga. Samkvæmt heimildum mbl.is stendur til að skipta ROS-kerfinu út á næstu mánuðum en í millitíðinni geta starfsmenn þurft að fara fjallabaksleið til að koma nauðsynlegum beiðnum til skila og nálgast rannsóknarniðurstöður, ef bilanir koma upp.

Skorið niður til tækjakaupa ár frá ári Segja má að þessar bilanir, bæði á lykiltækjum fyrir öryggi sjúklinga og tölvubúnaði sem er starfsfólki nauðsynlegur, séu ein birtingarmynd þess hvernig dropinn hefur holað steininn á Landspítala síðustu ár. Innviðir spítalans virðast vera byrjaðir að láta undan.

Allt frá sameiningu Landspítala og Borgarspítala hefur verið skorið niður til tækjakaupa.

Á síðasta ári samþykkti fyrrverandi ríkisstjórn 600 milljóna króna aukafjárveitingu til tækjakaupa á Landspítalanum. Í frumvarpi til fjárlaga næsta árs, sem kynnt var í síðustu viku, er þetta framlag fellt niður.

Í greinargerð með frumvarpinu segir að unnið sé að því að endurmeta þörf Landspítalans til tækjakaupa og vonast sé eftir að þeirri vinnu ljúki á haustdögum.///////////Þetta er og hefur verið fyrirséð í mörg ár,engin getur annað sagt og að mínu mati með vilja margra!!það hefur verið í ein 20-30 ár verið alið á að þetta sé of stór liður og unnið eftir því,og allaf farið versnandi!!!nú komið að endalokum þess að tala um eitt besta Heillbryggðis kerfi í heimi!!En þetta er komið svo að ég var að lesa grein í Mogga  eftir Sigurð Sigursson Byggingaverkfræðing,sem segir okkur að svona standar spítala 166 þus fermetra sem væri 60 milljörðum ódýrari en þessi sem er á teikniborðinu uppsettur!!,en með því forholi að byggðan við Kolbústaði,en þetta er hægt að ræða ennþá lesið þessa grein þar er sagt einnig,hvernig borga á þetta og það mjög gott dæmi!!!en hvorki minn flokkur eða Framsókn vilja skilja þetta,byrja á að lækka auðlindaskatt og efsta skattþrepið,er þetta leiðin að gera þá ríku ríkari,nei enda hríðfellur gengi þessara flokka/Halli gamli


mbl.is Öll myndgreiningartæki LSH biluð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 1045713

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband