Jón Gnarr hættir í vor,þetta voru góðar fréttir,eins bestu á árinu!!!!

Eg sjálfur 1955Jón Gnarr hættir í vor Innlent | mbl | 30.10.2013 | 11:50 Jón Gnarr ætlar ekki að bjóða sig fram fyrir Besta flokkinn í komandi borgarstjórnarkosningum.

Tími leiðtogans er liðinn sagði Jón Gnarr í þættinum en hann ætlar að fara og leita að gleðinni.

Besti flokkurinn mun renna saman við Bjarta framtíð og bjóða fram undir formerkjum Bjartrar framtíðar í vorBesti flokkurinn fékk 6 borgarfulltrúa kjörna í kosningunum 2010. Sjálfstæðisflokkurinn fékk 5 borgarfulltrúa, Samfylkingin 3 og Vinstri grænir 1. Samkvæmt nýlegri skoðanakönnun mun Besti flokkurinn bæta við sig fylgi í komandi kosningum.

Tvíhöfði saman á ný Jón Gnarr greindi frá þessari ákvörðun sinni í þættinum Tvíhöfða á Rás 2 í morgun. Tvíhöfði, þeir Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson, kom saman í dag til að vekja athygli á átaki Krabbameinsfélagsins, Bleiku slaufunni.

Tími leiðtogans er liðinn sagði Jón Gnarr í þættinum og vísaði þar til hljómsveitarinnar Stranglers. Þegar hann tilkynnti ákvörðun sína sagði hann að hans tími væri liðinn í pólitík.

Hann sagðist kunna illa við léleg samskipti í pólitíkinni og það sé mjög lítið um uppbyggileg samtöl í stjórnmálunum og honum líki ekki við þann kúltúr sem er í stjórnmálunum. Hann langi meira að gera eitthvað þar sem meiri gleði ríkir.

Hann hafi því ákveðið að bjóða sig ekki fram og fara að leita að gleðinni. Jón Gnarr líkti þessu við því að vera í leshring þar sem ekkert annað er rætt en stafsetningin. Ekkert rætt um söguna sjálfa. Jón Gnarr var ekkert að flýta sér við að tilkynna um ákvörðun sína heldur buðu þeir hlustendum upp á umræðu um niðurhal og fjölmörg lög með hljómsveitinni Crass en þeir tilkynntu í upphafi þáttar um að þeir myndu einungis spila Crass í þættinum.

Eins bauð Jón Gnarr þeim Sigurjóni og Dodda tæknimanni ítrekað upp á apótekaralakkrís í þættinum. Besti flokkurinn rennur inn í Bjarta framtíð Jón Gnarr sagði í þættinum að það hafi verið hans markmið í lífinu að gleðja fólk. Það hafi meðal annars verið það sem hann hafi gert í Tvíhöfðaþáttunum. Um leið að fræða fólk. Hann hafi reynt í starfi sínu sem borgarstjóri að gleðja fólk.

Besti flokkurinn njóti nú stuðnings 37% kjósenda og sé þar með stærsti flokkurinn í Reykjavík. Undanfarna mánuði hafi hann velt því fyrir sér hvað hann ætti að gera í komandi kosningum

. Jón Gnarr segir að það sé mikið um leyndarmál í stjórnmálum og hann eigi ekki auðvelt með slíkt. Honum hafi fundist vont að hafa haldið því leyndu undanfarinn mánuð hvað hann ætli sér að gera. Jón Gnarr segir að Besti flokkurinn sé ekkert án hans og því hafi sú ákvörðun verið tekin að renna Besta flokknum saman við Bjarta framtíð og fólkið í Besta flokknum muni bjóða fram undir merkjum Bjartrar framtíðar í vor. Hann ætli sér að fara og leita að gleðinni.

Að sögn Jóns mun hann gegna starfi borgarstjóra fram yfir kosningar í vor. Björt framtíð í Reykjavík heldur stofnfund sinn í dag klukkan 13 og þar verður farið yfir framboð flokksins til borgarstjórnarkosninga á komandi vori.

Hugmyndin varð til í Tvíhöfða Að sögn Jóns Gnarr kviknaði hugmyndin að pólitísku framboði hans nokkru áður í þættinum Tvíhöfði á Kananum. Þeir Sigurjón ræddu pólitíkina í þættinum í kringum áramótin 2009 að sögn Jóns og talaði um að þeir hafi aldrei fengið að vera með þátt í Sjónvarpinu. Sigurjón leiðrétti þetta og minnti Jón á að þeir hafi fyrst komið fram í útvarpi og sjónvarpi hjá RÚV.

Jón Gnarr sagði að ástæðan fyrir því að þeir fengu ekki þátt á RÚV þá að þar sé pólitíkin við völd. Þegar sjálfstæðismenn eru við völd þá fái þeir þátt og vinstri menn fái þátt þegar vinstri menn eru við völd. Sagðist Jón hafa komið með þá góðu hugmynd að þeir myndu stofna stjórnmálaflokk.

Hann yrði menntamálaráðherra og myndi síðan skipa Sigurjón útvarpsstjóra. Þeir yrðu síðan sakaðir um spillingu og segja af sér í kjölfarið. Þetta hafi verið fyrsta hugmyndin að Besta flokknum. Að sögn Jóns ólst hann upp á pólitísku heimili þar sem stjórnmál voru mikið rædd en honum hafi sjálfum leiðst pólitík. Hann hafi orðið anarkisti þrettán ára gamall.

Anarkisminn hafi mótað ævi hans og meðal annars uppeldi barna hans. Það hafi til að mynda verið anarkisminn sem leiddi hann inn í trúmálin. Hann hafi gert heiðarlega tilraun til þess að verða trúaður en án árangurs.

Hann segir það einstaka reynslu sem hann hafi fengið í starfi sínu sem borgarstjóri undanfarin þrjú og hálft ár. Sigurjón og Jón Gnarr fóru yfir umræðuna um niðurhal þá þætti sem þeir hafa horft á undanfarið á Netflix, má þar nefna Orange is the New Black.

Sigurjón var lítið hrifinn af þættinum en Jón Gnarr var mun hrifnari. Að sjálfsögðu ræddu þeir Star Wars og útgáfu á þeim myndum. Jón Gnarr segist hafa greitt miklu meira fyrir Star Wars heldur en hann hefði þurft að gera því fyrst hafi hann keypt VHS spólur sem ekki er hægt að nota þegar hann verður gamall. Dagur er Paul og Jón Gnarr er John Jón Gnarr varaði hlustendur þáttarins við því að þeir gætu talist fórnarlömb pólitísks áróðurs þar sem hann myndi kynna ákvörðun sína í þættinum en hann sagðist sjálfur vera illa þokkaður af fjölmiðlum landsins sem væri öllum í nöp við sig.

Þegar Sigurjón spurði Jón Gnarr um hvort væri betra, góður morgunn í ráðhúsinu eða góður morgunn í Tvíhöfða sagði hann að ekki væri hægt að bera þetta tvennt saman enda ólíkir. Hann segist ekki sakna síns fyrra lífs og það sé synd að segja að það sé auðvelt að leika í þáttum.

Hann sagðist sinna starfi sínu vel en gleymi sér stundum þar sem hann er með athyglisbrest og bauð Sigurjóni við það upp á apótekaralakkrís. Hann mæti á alla fundi og sinni því á sinn hátt.

Að sögn Jóns Gnarr er starf borgarstjóra samvinnuverkefni og nefndi hann þar Dag B. Eggertsson og Einar Örn til sögunnar. Sagði hann að ef tekin væri samlíking af Bítlunum þá væri Dagur Paul McCartney og hann sjálfur John Lennon. Glóandi línur „Hlustendur“ fengu að ljá þættinum rödd sína og voru menn sammála um að lagavalið hafi verið gott í þættinum en ekki voru þeir sammála um störf Jóns Gnarr í embætti borgarstjóra.

Tekið var fram að Jón Gnarr hefði yfirgefið hljóðverið á meðan hlustendur fengju orðið. „Eldri kona“ sagði að hann ætti að skammast sín: „Jón Gunnar Kristinsson segðu af þér og skammastu þín“, á meðan annar talaði um að Jón Gnarr hafi staðið sig vel þó svo hann hafi ekki kosið Besta flokkinn á sínum tíma. Þessum manni varð tíðrætt um stuðnings Jóns Gnarr við „kynvillinga“ og að hann hefði sjálfur unnið með kynvillingi á næturvöktum í gamla daga.

Maðurinn sagði að hann hefði hins vegar aldrei haft hugrekki til að standa með kynvillingnum sem hafi reykt óheyrilega mikið. Því hann óttaðist að vera talinn kynvillingur sjálfur.

Hann gat hins vegar upplýst Tvíhöfða um að maðurinn væri hættur að reykja en hann sjálfur „hlustandinn“ hafi ekki enn þorað að lýsa yfir stuðningi við hann. Sigurjón spurði „hlustandann“ að því hvernig Jón hefði stutt þennan hóp? Sá svaraði því til að hann hafi klætt sig upp á og eins hafi hann sagt að Jesú væri kynvillingur.

Einn hlustandi hringdi til þess að kvarta undan fólki sem hringir inn í útvarpsþætti og velti því fyrir sér hvort fólk hefði ekkert annað að gera en að hringja inn í útvarpsþætti.

Jón Gnarr upplýsti hlustendur um að hann yrði í prinsessuviðtali í Kastljósi í kvöld en þeir Sigurjón fylgdust með umfjöllun annarra fjölmiðla í útsendingunni og kvörtuðu meðal annars yfir því að mbl.is væri ekki að fjalla um þáttinn þeirra líkt og aðrir fjölmiðlar./////////////Æi þetta eru bestu fréttir ársins,kannski ljót að segja, en ég get anna sagt ,eftir að hafa þolað hann í þessi ár og svo bara  lestur þessa pistils, um hann og skoðanir hans og félaga,við munum taka til hendinni og kjósa nýtt fólk sem hefur áhuga á póltík//Halli gamli


mbl.is Jón Gnarr hættir í vor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband