9.1.2014 | 21:43
Reykjavíkurborg fær falleinkunn:Það er löngu vitað og þarf snöggar breytingar við!!!
Frétt af mbl.is Reykjavíkurborg fær falleinkunn Innlent | mbl.is | 9.1.2014 | 15:15 Ráðhús Reykjavíkur Reykvíkingar eru óánægðari með þjónustu borgarinnar en íbúar fimmtán annarra sveitarfélaga með þjónustu í sinni heimabyggð.
Þetta kemur fram í þjónustukönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir árið 2012 og rædd var í borgarráði í morgun. Garðabær og Seltjarnarnes verma oftast efsta sætið.Könnunin náði, eins og áður segir, til sextán sveitarfélaga á landinu.
Meðal annars var spurt hversu ánægðir viðkomandi íbúar væru með að búa í sveitarfélagi sínu. Reykjavíkurborg lenti þar í 10. sæti en í efstu sætin röðuðust Mosfellsbær, Akureyri, Seltjarnarnes og Garðabær. Í neðsta sæti var Reykjanesbær.
Einnig var spurt út í skipulagsmál. Þar var ánægjan mest í Garðabæ en Reykjavík hafnaði í 14. sæti. Borgin var í 15. sæti þegar spurt var út í gæði umhverfisins í nágrenni við heimili svarenda og aðeins Reykjanesbær var fyrir neðan.
Þegar svo spurt var út í þjónustu Reykjavíkurborgar fékk hún falleinkunn. Borgin var í neðsta sæti af sveitarfélögunum þegar spurt var út í þjónustu við barnafjölskyldur, þjónustu grunnskóla, þjónustu leikskóla, þjónustu við eldri borgara og þjónustu við fatlað fólk. Garðabær og Seltjarnarnes voru hins vegar oftast í efstu sætum.
Hins vegar, þegar spurt var um þjónustu Reykjavíkur í heildina litið, út frá reynslu og áliti, hækkaði Reykjavíkurborg um tvö sæti þegar litið er á sveitarfélögin öll.
Sorgleg staðreynd Sem áður segir var þjónustukönnunin til umræðu á fundi borgarráðs í morgun. Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarráðsfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagði í samtali við mbl.is eftir fundinn að í þjónustukönnuninni komi fram sorgleg staðreynd.
Af þessum samanburði við önnur sveitarfélög sést að Reykjavíkurborg veitir að mati borgarbúa ófullnægjandi þjónustu og ekkert sveitarfélag fær neðsta sætið jafn oft og Reykjavík. Hann segir að af könnuninni megi sjá að borgarbúar séu óánægðir með skipulagsmál og samgöngumál, en ekki síst með þjónustuna í borginni.
Auðvitað er mikið áhyggjuefni að grunnskólarnir og leikskólarnir okkar þykja lakastir í samanburði við önnur sveitarfélög og þjónusta við eldri borgara og fatlað fólk fær sams konar falleinkunn. 947 Reykvíkingar tóku þátt í könnunni Capacent Gallup hringdi í 10.198 manns á öllu landinu, 18 ára og eldri, og voru þeir handahófsvaldir úr viðhorfahópi Capacent Gallup.
Einnig var hringt í fólk úr völdum póstnúmerum og því boðin þátttaka á neti. Fjöldi svarenda var 5.363 eða 52,6% og þar af voru 947 Reykvíkingar sem svöruðu könnuninni.///////////Þetta kemur okkur ekki á óvart,búin að reyna þetta áður af R-listanum,eða eru menn búnir að gleyma því ástandi sem þá varði!!Bílfjandsamlegt fólk sem var þá við völd ,en er mikið verra núna,miðast alt sem gert er við 101 og þéttingu byggðar og Flugvöllinn burt!!!bara hjólastígar og brýr fyrir þau lagt um alla borgina,engar vegabætur í Borginni fólkið við einkabílinn og auðvitað strætisvagna og jafnvel skoða að rafvæða almennings samgöngur sem mest!! Það er talað við um mengun bílana sem er rétt en stórar framfarir með metan og Etanóli og Rafmagnsbílum eru að koma markað og hafa sannað sig,en hvað vilja Borgararnir það erum við að tala um hérna í þessari grein,nú við næstu kosningar,verður að breyta þessu,ekki spurning,og ef þeir hægri standa sig ekki er bara skipt um aftur næsta tímabil,það er nauðsyn!!/Halli gamli
Reykjavíkurborg fær falleinkunn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 1046584
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.