Reykjavíkurborg fær falleinkunn:Það er löngu vitað og þarf snöggar breytingar við!!!

Ráðhús ReykjavíkurFrétt af mbl.is Reykjavíkurborg fær falleinkunn Innlent | mbl.is | 9.1.2014 | 15:15 Ráðhús Reykjavíkur Reykvíkingar eru óánægðari með þjónustu borgarinnar en íbúar fimmtán annarra sveitarfélaga með þjónustu í sinni heimabyggð.

Þetta kemur fram í þjónustukönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir árið 2012 og rædd var í borgarráði í morgun. Garðabær og Seltjarnarnes verma oftast efsta sætið.Könnunin náði, eins og áður segir, til sextán sveitarfélaga á landinu.

Meðal annars var spurt hversu ánægðir viðkomandi íbúar væru með að búa í sveitarfélagi sínu. Reykjavíkurborg lenti þar í 10. sæti en í efstu sætin röðuðust Mosfellsbær, Akureyri, Seltjarnarnes og Garðabær. Í neðsta sæti var Reykjanesbær.

Einnig var spurt út í skipulagsmál. Þar var ánægjan mest í Garðabæ en Reykjavík hafnaði í 14. sæti. Borgin var í 15. sæti þegar spurt var út í gæði umhverfisins í nágrenni við heimili svarenda og aðeins Reykjanesbær var fyrir neðan.

Þegar svo spurt var út í þjónustu Reykjavíkurborgar fékk hún falleinkunn. Borgin var í neðsta sæti af sveitarfélögunum þegar spurt var út í þjónustu við barnafjölskyldur, þjónustu grunnskóla, þjónustu leikskóla, þjónustu við eldri borgara og þjónustu við fatlað fólk. Garðabær og Seltjarnarnes voru hins vegar oftast í efstu sætum.

Hins vegar, þegar spurt var um þjónustu Reykjavíkur í heildina litið, út frá reynslu og áliti, hækkaði Reykjavíkurborg um tvö sæti þegar litið er á sveitarfélögin öll.

Sorgleg staðreynd Sem áður segir var þjónustukönnunin til umræðu á fundi borgarráðs í morgun. Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarráðsfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagði í samtali við mbl.is eftir fundinn að í þjónustukönnuninni komi fram sorgleg staðreynd.

„Af þessum samanburði við önnur sveitarfélög sést að Reykjavíkurborg veitir að mati borgarbúa ófullnægjandi þjónustu og ekkert sveitarfélag fær neðsta sætið jafn oft og Reykjavík.“ Hann segir að af könnuninni megi sjá að borgarbúar séu óánægðir með skipulagsmál og samgöngumál, en ekki síst með þjónustuna í borginni.

„Auðvitað er mikið áhyggjuefni að grunnskólarnir og leikskólarnir okkar þykja lakastir í samanburði við önnur sveitarfélög og þjónusta við eldri borgara og fatlað fólk fær sams konar falleinkunn.“ 947 Reykvíkingar tóku þátt í könnunni Capacent Gallup hringdi í 10.198 manns á öllu landinu, 18 ára og eldri, og voru þeir handahófsvaldir úr viðhorfahópi Capacent Gallup.

Einnig var hringt í fólk úr völdum póstnúmerum og því boðin þátttaka á neti. Fjöldi svarenda var 5.363 eða 52,6% og þar af voru 947 Reykvíkingar sem svöruðu könnuninni.///////////Þetta kemur okkur ekki á óvart,búin að reyna þetta áður  af R-listanum,eða eru menn búnir að gleyma því ástandi sem þá varði!!Bílfjandsamlegt fólk sem var þá við völd ,en er mikið verra núna,miðast alt sem  gert er við 101 og þéttingu byggðar og Flugvöllinn burt!!!bara hjólastígar og brýr fyrir þau lagt um alla borgina,engar vegabætur í Borginni fólkið við einkabílinn og auðvitað strætisvagna og jafnvel skoða að rafvæða  almennings samgöngur sem mest!! Það er talað við um mengun bílana sem er rétt en stórar framfarir með metan og Etanóli og Rafmagnsbílum eru að koma markað og hafa sannað sig,en hvað vilja Borgararnir það erum við að tala um hérna í þessari grein,nú við næstu kosningar,verður að breyta þessu,ekki spurning,og ef þeir hægri standa sig ekki er bara skipt um aftur næsta tímabil,það er nauðsyn!!/Halli gamli


mbl.is Reykjavíkurborg fær falleinkunn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 1045667

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband