Snemmbúin byrting á Pistli vinar míns Hannessar Hólmsteins frá í fyrra!!!!

untitled

Skattadagurinn liðinn

Skattadagurinn er sá dagur, þegar Íslendingar hætta að vinna fyrir hið opinbera, en geta unnið fyrir sjálfa sig. Þeir eru allan fyrri hluta ársins að vinna fyrir hið opinbera. Samkvæmt útreikningum Sambands ungra sjálfstæðismanna bar skattadaginn nú upp á sunnudaginn 7. júlí. Röskur meiri hluti tekna okkar rennur til hins opinbera.

Því hefur verið haldið fram blákalt síðustu misseri, að skattlagning hafi engin áhrif á vinnusemi fólks og verðmætasköpun.

Þetta stangast hins vegar á við heilbrigða skynsemi og raunar líka niðurstöður úr rannsóknum óhlutdrægra fræðimanna, eins og sjá má hér og hér og hér. Menn vinna ekki af sama kappi fyrir aðra eins og fyrir sjálfa sig. Setjum svo, að maður sé í fastri vinnu og geti engu breytt um það, en hann geti valið um það, hvort hann bæti við sig fimm tímum á viku eða ekki

. Getur nokkur haldið því fram, að engu breyti, hvort hann greiði 30% eða 60% af viðtókartekjunum fyrir þennan viðbótartíma í skatta til hins opinbera? Aðalatriðið er, að atvinnulífið er ekki kyrrstætt, heldur undirorpið sífelldum breytingum, er ótal aðilar bregðast við kostnaði af ákvörðunum, meta saman gróða og tap.

Þess vegna geta skattstofnar stækkað eða minnkað. Þeir stækka, ef skattar eru hóflegir og menn vinna meira og skapa meiri verðmæti.

Þeir minnka, ef skattar eru háir, svo að vinnufýsi manna minnkar og þeir beina sköpun sinni í aðra farvegi en þá, sem skattlagðir eru. Hins vegar koma áhrifin af skattlagningu oft ekki fram fyrsta kastið, heldur síðar meir.

Skammtímaáhrifin af skattahækkun er þess vegna stundum meiri tekjur ríkisins, en langtímaáhrifin verða minni tekjur þess, af því að skattstofninn dregst saman. Besta dæmið er samanburður á Sviss og Svíþjóð. Skatttekjur hins opinbera á mann eru svipaðar í þessum tveimur ríkjum.

En skattlagningin hefur löngum verið allt að því tvöfalt meiri hlutfallslega í Svíþjóð en Sviss. Síðan segja sumir: Íslendingar eru ekki aðeins að vinna fyrir hið opinbera fram til 7. júlí, en síðan fyrir sjálfa sig. Hið opinbera er við. Ég svara: Nei, hið opinbera er þeir, ekki við.

Ríkisvaldið lendur því miður allt of oft í höndunum á harðskeyttum, háværum og vel skipulögðum sérhagsmunahópum.

Þegar fé er tekið af þeim, sem skapa verðmætin, og því endurdreift, er lögmálið, að það rennur til þeirra, sem næstir standa valdhöfunum hverju sinni.

Opinberir starfsmenn eru eflaust ekki verri og latari en starfsmenn einkafyrirtækja.

En þá skortir upplýsingar um, hvernig þeir eigi að haga störfum sínum svo, að þeir fullnægi sem best þörfum annarra. Þessar upplýsingar fá hins vegar eigendur og starfsmenn einkafyrirtækja með frjálsu vali neytenda á markaði.

Þeir finna fljótlega fyrir því, ef viðskiptavinir þeirra eru óánægðir, því að þá leita þeir annað.

Eitt brýnasta verkefni stjórnvalda er að lækka ríkisútgjöld og fækka opinberum starfsmönnum, svo að lækka megi skatta verulega og leysa úr læðingi kraft einstaklinganna.

Markmiðið hlýtur að vera að færa skattadaginn framar á árið.////////////////Ég leifi mér að birta þennan Pistil sem Hannes Hólmsteinn félagi minn skrifaði,í sumar sem leið og eru eins og töluð úr mínum munni!!!Við gömlu hjónin búum í Raðhúsi í Breiðholti 154 fm.með bílskúr og höfum verið hér í 38 ár og slétt inn gengið og mjög gott,en þarna kemur bara hreint út mannvonskan og ekkert annað,engar tekjur nema Tryggingar og Lífeyrir samt er komið fram við mann eins og mjög efnaðs manns af því að við viljum vera sjálfstæð og búa þannig sem lengst,ekki fara á heimili fyrir eldri Borgara,á meðan við getum,ég hefi og gagnrýnt minn flokk,en hann er samt hátíð á móti vinstra fólkinu,þessi drulluskattur átti fyrst að vera tímabundin en hvað,nei komin til að vera,R.listin kom honum á eða Ingibjörg Sólrún,og nú er hann reiknaður í fm.en ekki af mannsfjölda íbúðar,við erum 2 en þótt í húsnæðinu væru 20 er það sama!!!!ég mótmæli þessum gjörningi algjörlega,enda búið að segja ekkert hækkar,eftir þessa samninga!!!/Halli gamli


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 1045799

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband