Saga skipbrotsmannsins staðfest:Þetta verður náturlega ransakað betur,en allt virðst standast,sagan ótrúlega!!!

Saga s
Alvarenga á leið á sjúkrahúsið eftir að hafa loks fundið...
Saga skipbrotsmannsins staðfest Erlent | mbl.is | 4.2.2014 | 11:02 Alvarenga á leið á sjúkrahúsið eftir að hafa loks fundið... Ákveðnir kaflar í hinni ótrúlegu sögu skipbrotsmannsins José Salvador Alvarenga, sem segist hafa verið á reki um kyrrahafið í 13 mánuði, hafa nú verið staðfestir af mexíkóskum yfirvöldum og sjómönnum þar í landi.
 
Alvarenga og 15 ára félagi hans fóru á hákarlaveiðar á litlum bát undan ströndum Mexíkó í desember árið 2012. Þeir lentu í vonskuveðri og tók að reka. Eftir nokkrar vikur á reki neitaði hinn ungi félagi Alvarenga að borða og lést skömmu síðar.
 
Alvarenga segir að þetta hafi fengið mikið á sig og hann hafi íhugað sjálfsvíg. Fyrir nokkrum dögum sá hann svo loks til lands í fyrsta sinn. Hann var þá komin að Ebon-eyju sem tilheyrir Marshall-eyjum. Margir, m.a. sendiherra Bandaríkjanna á eyjunum og utanríkisráðherra eyjaskeggja, hafa efast um sannleiksgildi sögunnar. Alvarenga segist hafa veitt sér til matar, m.a. skjaldbökur, fiska og fugla. Alvarenga var í ótrúlega góðu formi og gat gengið þrátt fyrir bólgna ökkla
 
. Alvarenga var í ótrúlega góðu formi og gat gengið þrátt fyrir bólgna ökkla. AFP Þá hafi hann drukkið skjaldbökublóð og safnar regnvatni. Þeir félagar fóru til veiða frá þorpinu Costa Azul í Chiapas-ríki. Strandgæslan þar hefur nú staðfest við dagblaðið Guardian að bátur með tveimur sjómönnum hafi horfið tveimur dögum eftir að hann fór til veiða þann 17. desember 2012.
 
Fleiri hafa staðfest þetta, m.a. eigandi bátsins. Jaime Marroquín, starfsmaður strandgæslunnar sem fór fyrir leitinni á sínum tíma, segir að veður hafi verið mjög slæmt og að það sé alveg hugsanlegt að stormurinn hafi feykt bátnum lengst á haf út. Hann segir algengt að sjómenn fari í 1-2 daga róðra frá þorpinu, m.a. til að veiða hákarla og rækjur. Frá Marshall-eyjum. Frá Marshall-eyjum. Oftast séu þeir án allra siglingatækja. „Það var mikill vindur,“ segir Marroquín í samtali við Guardian. „Við leituðum mikið en við urðum að hætta leit eftir tvo daga vegna slæms skyggnis.
 
“ Hins vegar segir í skýrslu strandgæslunnar að mennirnir tveir sem leitað var hafi heitið Cirilo Vargas og Ezequiel Córdova. Þeir voru báðir sagðir 38 ára. Það stangast á við framburð Alvarenga sem segir að félagi hans hafi verið unglingur. Í frétt Guardian segir að algengt sé að opinberar skýrslur séu rangar. Þó að nafn Alvarenga komi ekki fram í skýrslunni hefur hann sagst vera 37 ára sem stemmir nokkurn veginn við skýrslu strandgæslunnar. Marroquín segir að eigandi bátsins hafi sagt að Vargas, annar þeirra sem var um borð, hafi verið frá El Salvador. Þaðan segist Alvarenga vera. Þá hafi faðir hins mannsins, Ezequiels, fylgst náið með leitinni. AP-fréttastofan hefur eftir sjómönnum í þorpinu Costa Azul að Alvarenga hafi búið og unnið á svæðinu í nokkur ár.
 
Þeir segjast aðeins þekkja hann undir gælunafninu La Chancha. Alvarenga hefur sagt frá því að hann hafi búið í Mexíkó í fimmtán ár. Hann hafi hins vegar fæðst og alist upp í El Salvador í bænum Garita Palmera, skammt frá landamærunum að Gvatemala. Dagblað í El Salvador hefur haft uppá foreldrum hans. Það hefur eftir þeim að sonur þeirra hafi flust til Chiapas til að vinna við hákarlaveiðar. Hins vegar hafi fjölskyldan misst allt samband við hann fyrir átta árum er hann hætti að koma í heimsókn. „Við héldum að hann væri dáinn,“ hefur blaðið eftir móður hans, Maríu Juliu Alvarenga.
 
„Ég get ekki lýst því hvernig mér líður, sem móðir hans, að vita að hann hafi fundist.“ Dóttir Alvarenga er á unglingsaldri og hún segist spennt að hitta föður sinn á nýjan leik.
 
Í frétt Guardian kemur fram að utanríkisráðuneytið í El Salvador hafi gefið út yfirlýsingu þess efnis að það muni vinna með mexíkóskum stjórnvöldum að því að koma skipbrotsmanninum til Mexíkó og þaðan til heimalandsins, El Salvador.
 
Talsmaður sjúkrahússins á Marshall-eyjum segir að Alvarenga verði útskrifaður í dag eða á morgun. En það eru margir sem undrast í hversu góðu ásigkomulagi Alvarenga er eftir hremmingarnar á litlum, opnum báti á miðju Kyrrahafi í fleiri mánuði.
 
 
 „Það er með ólíkindum að lifa svona lengi við þessar aðstæður,“ segir einn mexíkóskur sjómaður við Guardian en bát hans rak á milli 8-9.000 kílómetra frá strönd Mexíkó til Marshall-eyja. kipbrotsmaður sem var á reki um Kyrrahafið í meira en ár áður en hann komst á land á afskekktri eyju, lifði á skjaldbökum, fuglum og hákörlum sem hann veiddi með höndunum.
 
Í einkaviðtali við breska blaðið Telegraph segir Jose Salvador Alvarenga, 37 ára, að fyrstu orð hans er hann sá til lands hafi verið „ó, Guð.“ Alvarenga er sjómaður sem fór á veiðar frá Mexíkó í desember árið 2012. „Ég var nýbúinn að veiða fugl til að borða og sá þá nokkur tré,“ segir hann í viðtalinu sem tekið var á sjúkrahúsinu í Majuro, höfuðborg Marshall-eyja.
 
„Ég grét - ó, Guð. Ég fór á land og svaf. Ég vaknaði um morguninn og heyrði hana gala, sá kjúklinga og lítið hús. Ég sá tvær konur sem hrópuðu og kölluðu.
 
Ég var ekki í neinum fötum - ég var bara á nærbuxunum og þær voru rifnar og tættar.“ Þrátt fyrir þrekraunina virðist Alvarenga við góða heilsu.
Ökklar hans voru mjög bólgnir en gat gengið óstuddur. Hann var hins vegar mjög svangur og vildi gjarnan fá brauð en foreldrar hans í El Salvador eru bakarar.
 

Alvarenda vann við rækju- og hárkarlaveiðar í Mexíkó. Hann var ótrúlega hress er honum var bjargað en syrgði félaga sinn sem var einnig um borð í bátnum, en lést fjórum mánuðum eftir að þá tók að reka. Frétt mbl.is: Ég grét - ó, Guð////////////////////Þessi saga er mjög svo ótrúverðug,en samt sönn eins og þessar heimildir segja!!Þetta verður auðvitað skoðað niður í kjölinn ekki spurning,á sér sennilega ekki hliðstæður ef rétt er,en maðurinn í ótrúlegu formi eftir allar þessar hremmingar,heimsmet mundi ég segja!!Halli gamli


mbl.is Saga skipbrotsmannsins staðfest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045797

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband