Fimm tíma á flugi?:þetta fer að verð æ dularfyllra hvern daginn sem líður!!!


Mynd 729974
Fimm tímaá flugi? Erlent | AFP | 13.3.2014 | 7:55 Mynd 729974 Bandarískir flugumferðareftirlitsmenn telja að þota Malaysia airlines hafi verið á flugi í fjórar klukkustundir eftir að síðast náðist samband við hana eða alls í fimm tíma.
 
Þetta kemur fram í Wall Street Journal í dag.Ef rétt reynist eykst enn dulúðin í kringum hvarf þotunnar á föstudagskvöldið. Í WSJ kemur fram að flugmálayfirvöld og Þjóðaröryggisstofnunin byggi þetta á gögnum sem er sjálfvirkt hlaðið niður og sendar til jarðar úr Rolls Royce-hreyflum.
 
Miðað við þau gögn flaug Boeing 777-þotan alls í fimm klukkustundir. Segist WSJ hafa þessar upplýsingar frá heimildarmönnum sem þekkja vel til.
 
Þetta getur þýtt að þotan hafi getað, með 239 um borð, flogið hundruð mílna eftir að síðast náðist samband við flugumsjón um klukkan 1:30 aðfaranótt laugardags að staðartíma, klukkan 17:30 að íslenskum tíma á föstudag. INDONESIAN AIR FORCE Þá var klukkustund liðin frá því hún lagði af stað frá flugvellinum í Kuala Lumpur á leið til Peking.
 
Víðtæk leit stendur yfir og er leitarsvæðið gríðarlega umfangsmikið eða allt frá Suður-Kínahafi vestur að Malasíu. Þegar hefur verið leitað á svæði sem spannar 27 þúsund sjómílur.
 
Enn er flugrán meðal þess sem skoðað er og bandaríska leyniþjónustan (CIA) segir að ekki sé hægt að útiloka hryðjuverk.
 
Í grein WSJ kemur fram að bandarískar eftirlitsstofnanir skoða nú möguleikann á því að flugmaður eða einhver annar um borð hafi flogið vélinni á einhvern óþekktan stað eftir að hafa slökkt á ratsjársvara hennar svo ekki væri hægt að greina hana á ratsjárskjáum.////////////Allt þetta vekur furðu okkar og spekinganna einnig,og eiginlega óskiljanlegt og við bara verum að geta í eyðurnar,ekkert annað/Halli gamli

mbl.is Fimm tíma á flugi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 1045730

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband