17.7.2014 | 17:44
Hættir í Framsókn vegna moskumáls: þetta er svo en þetta mál er umdeilt mjög,það er að segja moskumálið!!!
Hættir í Framsókn vegna moskumáls Innlent | mbl.is | 17.7.2014 | 14:42 Lóð undir mosku var úthlutað í Reykjavík.
Oddviti... Þorsteinn Magnússon, varaþingaður í Reykjavíkurkjördæmi norður, hefur sagt sig úr Framsóknarflokknum.
Tilefnið er moskumálið svokallaða sem kom upp í aðdraganda Umræðan sem framboðið efndi til (fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor) var að mínu mati tilefnislaus, meiðandi í garð múslima og til þess fallin að ýta undir fordóma og mismunun.
Þá fær hún að mínum dómi með engu móti samræmst grundvallarstefnuskrá Framsóknarflokksins, enda birtust þar viðhorf sem tengjast mun frekar þjóðernissinnaðri íhaldsstefnu heldur en frjálslyndri miðjustefnu, segir í tilkynningu frá Þorsteini.
Fréttatilkynning Þorsteins í heild: Þegar ég gekk í flokkinn haustið 2012 horfði ég m.a. til samþykktrar grundvallarstefnuskrár flokksins, þar sem hann er skilgreindur sem frjálslyndur félagshyggjuflokkur, rík áhersla er lögð á mannréttindi og hafnað hvers kyns mismunun, m.a. á grundvelli trúar. Þorsteinn Magnússon.
Ég lít á mig sem frjálslyndan miðjumann og mat það svo að mín lífsviðhorf féllu vel að grundvallarstefnu flokksins.
Þá taldi ég að flestum flokksmönnum væri alvara með því að fylgja grundvallarstefnunni og að forysta flokksins tæki af skarið ef til þess kæmi að einstök framboð vikju frá henni í veigamiklum atriðum. Í aðdraganda borgarstjórnarkosninga nú í vor birtist ítrekað af hálfu framboðs Framsóknar og flugvallarvina boðskapur sem helst varð skilinn svo að framboðið teldi að með tilkomu mosku í Reykjavík ykjust líkur á ýmsum samfélagslegum vandmálum, þ. á m. lögbrotum.
Birtist þessi boðskapur í samhengi við og í kjölfarið á yfirlýsingum frambjóðenda um að afturkalla bæri úthlutun á lóð undir mosku til Félags múslima á Íslandi. Ekkert hefur þó komið fram sem bendir til þess að samfélagsleg vandamál hafi tengst félaginu eða meðlimum þess umfram aðra þjóðfélagshópa hingað til. Með þessu var annaðhvort meðvitað eða ómeðvitað alið á andúð á tilteknum trúarhópi í kosningabaráttu en slíkt sæmir engan veginn siðuðu stjórnmálaafli.
Umræðan sem framboðið efndi til var að mínu mati tilefnislaus, meiðandi í garð múslima og til þess fallin að ýta undir fordóma og mismunun. Þá fær hún að mínum dómi með engu móti samræmst grundvallarstefnuskrá Framsóknarflokksins, enda birtust þar viðhorf sem tengjast mun frekar þjóðernissinnaðri íhaldsstefnu heldur en frjálslyndri miðjustefnu.
Formaður og flest annað lykilfólk í forystu Framsóknarflokksins lét hjá líða að gera opinberlega athugasemdir við framgöngu framboðsins í Reykjavík meðan á kosningabaráttunni stóð. Þá fela orð formanns flokksins undanfarið að mínum dómi í sér fullkomna afneitun á því að nokkuð hafi verið athugavert við það hvernig kosningabarátta framboðsins var háð.
Verða orð hans vart skilin öðruvísi en hann hafi ekkert við umræddan málflutning framboðsins að athuga. Flokkurinn hefur að mínu áliti engan veginn gert málið upp með viðunandi hætti.
Með atburðarás undanfarinna vikna hafa forsendur fyrir veru minni í Framsóknarflokknum brostið og samvisku minnar og sannfæringar vegna get ég ekki haldið áfram að starfa fyrir flokkinn. Er því óhjákvæmilegt að leiðir skilji.
Í kjölfarið á þessari ákvörðun minni mun ég segja mig frá öllum trúnaðarstörfum sem ég gegni fyrir flokkinn og segja af mér varaþingmennsku.
Ég þakka öllu góðu fólki sem ég hef kynnst í Framsóknarflokknum fyrir samstarfið á þeim vettvangi og óska því alls velfarnaðar.//////////////////Æi er þetta ekki skrítið að hætta þarna vegna þessara Mosku sem er mjög umdeilt mál og eiginlega alveg óuppgert af okkar hálfu,að mínu mati alveg í uppnámi,því kvaða leifi er fyrir að gefa þessa lóð,bara spyr?? þessir heiðtrúuðu Múslima fá nóga peninga frá Katar þar sem menn velta milljörðum Dollara á dag!!OLÍUGARGAR!!! en þetta er hneyksli á allan hátt ekki að við viljum ekki að þessir Múslímar fái Mosku ,heldur hvernig að þessu er staðið besti staður Borgarinnar og svo frítt!!!Framsónarflokkur er ekki einn um að mómæla þessu,hvað er að fólki ef það ekki,tekur afstöðu gegn þessu!! Auðvitað er ekkert í þessu hjá manni sem,sem er rassismi als ekki ég virði trú og trúleysi ,og það er trúfrelsi á Íslandi,og það eigum við að virða,en það gera því miður ekki allir!! En með að Framsóknarmenn séu þarna eitthvað verri en aðrir sé ég ekki/Halli gamli
Hættir í Framsókn vegna moskumáls | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.