Tjá sig ekki um kísilverðstengingu/Auðvitað þessu verður að breyta!!!


Landsvirkjun hefur lagt mikið upp úr að aftengja samninga...
Tjá sig ekki um kísilverðstengingu Viðskipti | mbl | 19.7.2014 | 13:46 Landsvirkjun hefur lagt mikið upp úr að aftengja samninga... Landsvirkjun vill ekki gefa upp hvort nýr samningur við kísilverið United Silicon í Helguvík innihaldi tengingu við heimsmarkaðsverð á kísil eða annarri hrávöru.
 
Slíkir samningar voru lengi tíðkaðir við álver hér á landi og eru enn stór hluti af þeim raforkusamningum með álverðstengingu.Þetta hef­ur leitt til þess að meiri sveifl­ur geta verið á tekj­um Lands­virkj­un­ar og síðustu ár hafa tekj­urn­ar farið lækk­andi í kjöl­far lægra verðs á heims­markaði.
 
Hörður Árna­son, for­stjóri Lands­virkj­un­ar, hef­ur lengi talað gegn þess­ari teng­ingu og viljað minnka vægi henn­ar. Þetta var meðal ann­ars eitt af atriðunum sem haft var að leiðarljósi þegar Lands­virkj­un end­ur­samdi við Alcan árið 2010, en þá var teng­ing­in af­num­in að fullu.
 
Önnur ál­ver hafa slík ákvæði þó enn í samn­ing­um sín­um og eru þau jafn­an til um­fjöll­un­ar þegar upp­gjör Lands­virkj­un­ar eru kynnt. Björg­vin Skúli Sig­urðsson, fram­kvæmda­stjóri markaðs- og viðskiptaþró­un­ar hjá Lands­virkj­un, seg­ir í sam­tali við mbl.is að ekki sé hægt að greina frá því hvort teng­ing sé á þess­um nýj­asta samn­ingi þar sem fyr­ir­tækið eigi í viðræðum við fleiri aðila eins og PCC á Bakka og fleiri fyr­ir­tæki sem hafi áhuga á að koma hingað.
 
„Það get­ur haft áhrif á þessi fyr­ir­tæki ef við erum að ræða um hrávöru­verðsteng­ingu, hvort og hvernig hún gæti verið í samn­ing­um hjá okk­ur,“ seg­ir hann.
 
Hann seg­ir þetta ekki felu­leik, held­ur muni fyr­ir­tækið þurfa að gefa upp frek­ari upp­lýs­ing­ar þegar fram líða stund­ir, en næstu tvö til þrjú árin ger­ir hann ekki ráð fyr­ir að samn­ing­ur­inn við United muni hafa mik­il áhrif á fjár­hag Lands­virkj­un­ar.
 
Þegar Björg­vin er spurður hvort Lands­virkj­un loki al­gjör­lega á alla teng­ingu seg­ir hann að í ein­hverj­um til­fell­um geti slíkt átt við.
 
„Al­mennt vilj­um við ekki vera hrávöru­verðstengd­ir, það hlýt­ur að vera aug­ljóst mál, en í ein­hverj­um til­fell­um erum við til í að slá af þeim kröf­um til að fá fyr­ir­tæki til lands­ins,“ seg­ir hann.////////////////////////////////////Það er svo að samningar uppá greiðslu vegna afkomutenginga er ekki að mínu mati í lagi,og hefðu aldrei átt að gera,við Álverin þetta er svo vont þegar verð fer langt niður,þessa vegna verður "að vera borð fyrir báru" eins og máltækið segir, og þarna er það auðvitað best,að gera og vonandi gerist!!Ekki er annað hægt að segja en að þetta muni koma okkur vel ef um semst,og við erum þá á grænni grein um sinn allavega,en verðum að virkja meira,og það ekki seinna en strax,og auðvitað þarf mikið meira rafmagn því nóg er í farvatninu að manni finnst eftir þessum sögum um að allt sé að koma okkur í hag,og það gott///Halli gamli

mbl.is Tjá sig ekki um kísilverðstengingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband