Þrýsta á íslensk stjórnvöld/Að lýsa yfir samstöðu með Gaza,og fordæma árásir Ísrelshers!!!

Þrýsta á íslensk stjórnvöld Innlent | mbl.is | 23.7.2014 | 13:23 Frá síðasta útifundi Íslands-Palestínu sem haldinn var á Lækjartorgi.
 
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, mun flytja ávarp á útifundi sem haldinn verður á Ingólfstorgi síðdegis um ástandið á Gaza.
 
Tilgangurinn með útifundinum er að lýsa yfir samstöðu með íbúum Gaza, fordæma árásir Ísraelshers og þrýsta á íslensk stjórnvöld að vera meira afgerandi í andstöðunni við blóðbaðið.Á sam­fé­lagsvefn­um Face­book hafa um tvö þúsund manns staðfest komu sína á úti­fund­inn og segja funda­hald­ar­ar að mynd­ast hafi þjóðarsamstaða um málið.
 
Auk Fé­lags­ins Ísland – Palestína eru ís­lensk verka­lýðsfé­lög og stjórn­mála­flokk­ar meðal funda­boðenda að úti­fundi um Gaza í Reykja­vík síðdeg­is í dag. Þar má nefna Alþýðusam­band Íslands, Banda­lag starfs­manna rík­is og bæja, Banda­lag há­skóla­manna, Öryrkja­banda­lag Íslands, Kenn­ara­sam­band Íslands, SFR, Verka­lýðsfé­lag Akra­ness, Efl­ing, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, Sam­fylk­ing­in, Dög­un, Pírat­ar, VG, Sam­tök hernaðarand­stæðinga og Menn­ing­ar- og friðarsam­tök ís­lenskra kvenna, sem hafa lýst yfir þátt­töku sinni.
 
Fund­ur­inn er hald­inn und­ir kjör­orðunum: „Stöðvum blóðbaðið á Gaza taf­ar­laust, alþjóðlega vernd fyr­ir Palestínu­menn, burt með herkvína um Gaza, niður með her­námið og frjáls Palestína“.
 
Að lokn­um fundi verður gengið að Stjórn­ar­ráðinu með minn­ing­ar­krans með borða sem á eru skráð nöfn meira en 600 fórn­ar­lamba hernaðar Ísra­els hingað til.
 
Við það tæki­færi verður for­sæt­is­ráðherra af­hent álykt­un fund­ar­ins. Þar sem for­sæt­is­ráðherra er stadd­ur er­lend­is mun aðstoðarmaður hans, Jó­hann­es Skúla­son, taka við álykt­un­inni og ávarpa fund­inn./////////////////Þetta er svo og vonar  maður, að þetta verði til þess,að við bara göngum lengra,og slítum stjórnmálasamandi við Ísraela,ég er persónulega meðmæltur því,og einnig gera harðorð mótmæli til Bandaríkjanna,þeir styðja þetta,ekki spurning,hráskinnleikur þeirra með utanríkisráðherra þerra,í Ísrael núna og svo í Egiptalandi,og Gaza og gefa þeim 37 milljónir dollara,til hvers að deyja saddir???Nei þessu ber að linna og það strax!!!/Halli gamli

mbl.is Þrýsta á íslensk stjórnvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll.

Alveg er það merkilegt hve margir Íslendingar standa með hryðjuverkasamtökum. Það er staðreynd, sem Hamas þrætir ekki fyrir, að hryðjuverkamenn nota sjúkrabíla, sjúkrahús, skóla og heimili sem geymslur og skotstaði fyrir eldflaugar sínar. Skyldi það vera brot á einhverjum alþjóðalögum? Skyldi það vera brot á einhverjum alþjóðalögumm að skjóta eldflaugum á óbreytta borgara eins og Hamas og PIJ gera?

Það er líka staðreynd að Ísraelar vara íbúa Gaza við með sms, símtölum og miðum sem varpað er úr flugvélum. Palestínumenn viðurkenna það.

Hamas og PIJ nota óbreytta borgara til að skýla sér og sínum vopnum. Auðvitað verður þá mannfall meðal óbreyttra borgara - því miður. Ísraelar geta ekki borið ábyrgð á því að Hamas og PIJ skýli sér bak við óbreytta borgara.

Af hverju sagði Sf og þessi stéttarfélög ekki neitt þegar ISIS myrti þúsundir sjía í Írak? Vita þessi samtök hve margir hafa verið drepnir trúar sinnar vegna í Sýrlandi?

Svo ber að taka það skýrt fram að Gaza svæðið er ekki hernumið, Ísraelar fóru þaðan árið 2005. Hvað hafa Hamas og taglhnýtingar þeirra gert síðan þá til að undirbúa stofnun sjálfstæðs ríkis?

Helgi (IP-tala skráð) 23.7.2014 kl. 16:47

2 identicon

Hvað ætli Palestínumaðurinni Jesús Kristur hafi sagt um þetta sorglega ástand ef hann væri á lífi?

Reyndar byrjuðu Zíonistar ógnvæðingunni upp úr 1920 löngu áður en þessu landsvæði var skipt upp, með glæpsamlegri aðkomu SÞ.

En fyrst svo komið er og þetta samansafn af evrópubúum eru ekkert á leiðinni heim til sín, þá verður að finna lausn og það sem fyrst.

L.T.D. (IP-tala skráð) 23.7.2014 kl. 19:04

3 identicon

@L.T.D:

Söguþekking þín er ekki upp á marga fiska - frekar en annarra.

Palestína er nafn sem Rómverjar gáfu svæði sem nú eru Ísrael, Jórdanía, Líbanon og Sýrland.

Palestínumenn er uppfundin þjóð. Árið 1695 var framkvæmt manntal í Palestínu og þar kemur margt áhugavert fram. Í þessu manntali er ekki eitt palestínskt eða arabískt nafn. Landið var að mestu óræktað og þeir fáu sem bjuggu á svæðinu bjuggu í bæjum. Geta menn ekki dregið einhverja ályktanir út frá því?

Af hverju lesið þið ykkur ekki til? Það er ótrúlegt að fylgjast með því að mikill fjöldi manna skipar sér í lið með hryðjuverkamönnum sem nota heimili, skóla og sjúkrahús til að reka stríð við Ísrael. Ísraelar hafa varað við og sagt íbúum að fara og líka sagt þeim hvert þeir eiga að fara. Hamas og PIJ hafa sagt samborgurum sínum að fara ekki fet enda þurfa þeir á óbreyttum borgurum að halda til að skýla sér og vopnum sínum. Það er skýlaust brot á alþjóðalögum að nota skóla, sjúkrahús og sjúkrabíla í stríði.

Ísraelar hafa varpað miðum úr lofti, sent sms og hringt til að vara við. Hamas ræðst á óbreytta borgara en Ísraelar gera það sem þeir geta til að forðast mannfall meðal óbreyttra borgara:

https://www.youtube.com/watch?v=8O9AHzUKYk8

Helgi (IP-tala skráð) 24.7.2014 kl. 06:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 1045638

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband