Vildi ríka karlmenn með mikið undir sér/þetta er svar hennar ekki spurning!!!


Ástralski öldungadeildarþingmaðurinn Jacqui Lambie er í...
Vildi ríka karlmenn með mikið undir sér Veröld/Fólk | AFP | 22.7.2014 | 9:17 Ástralski 
öldungadeildarþingmaðurinn Jacqui Lambie er í... Ástralskur öldungadeildarþingmaður hefur beðist afsökunar á ummælum sem féllu í morgunútvarpi þar sem hún sagðist aðeins hafa áhuga á karlmönnum sem væru ríkir og með mikið undir sér.
 
Hún seg­ist hafa reynt að slá á létta strengi til að breiða yfir hversu vand­ræðaleg henni þótt umræða um að hún hefði ekki verið í sam­bandi í rúm­an ára­tug.
 
Þingmaður­inn, Jacqui Lambie, tók sæti í öld­unga­deild­inni fyrr í þess­um mánuði og mætti af því til­efni í viðtal á út­varps­stöðinni Heart 107.3 í Tasman­íu í morg­un, þar sem til­huga­líf henn­ar barst í tal og lagði út­varps­maður­inn það til að stöðin hjálpaði henni að finna ást­ina.
 
Lambie brást þá við með því að segja: „Ja, viðkom­andi verða þá að hafa stæður af pen­ing­um og væn­an pakka milli lapp­anna, ef ég á að vera al­veg hrein­skil­in.
 
Og ég þarf ekk­ert á því að halda að þeir tali, þeir þurfa ekki einu sinni að tala.“ Ung­ur karl­maður sem hlustaði á þátt­inn brást við með því að hringja og lýsa því yfir að hann mætti skil­yrðum þing­manns­ins, því hann hefði erft væna summu og hefði reynslu af eldri kon­um. Lambie, sem er 43 ára, sagðist á móti hafa efa­semd­ir vegna þess að hann væri of ung­ur.
 
„Ég er ekki viss um að þú réðir við Jacqui Lambie,“ sagði þingmaður­inn, sem gegndi áður her­mennsku í ára­tug.
 
„Ertu vel vax­inn að neðan?“ spurði hún svo og hlust­and­inn svaraði að bragði: „Eins og asni.“ Ekk­ert varð þó úr því að þau mæltu sér mót, þótt út­varps­maður­inn reyndi að ýta und­ir það, og þegar sím­tal­inu lauk sagðist Lambie hlæj­andi hafa þessi áhrif á karl­menn.
 
Eft­ir á baðst hún af­sök­un­ar á um­mæl­um sín­um í þætt­in­um, þar sem hún mátti líka sitja und­ir röð af spurn­ing­um um það t.d. hvort og hvernig hún rakaði lík­ams­hár sín á leggj­um, hand­ar­krik­um og kyn­færa­svæði.
 
„Þegar Kim og Dave á Heart FM 107.3 spurðu mig um ásta­líf mitt í morg­un, á léttu nót­un­um, reyndi ég að breiða yfir vand­ræðal­eg­heit­in með því að segja brand­ara,“ út­skýrði þingmaður­innn. „Marg­ir hlóu, en ein­hverj­um kann að hafa fund­ist þetta sær­andi.////////////////////////Þetta kallar maður að svara brútalt, eða hvað??er þetta ekki það sem fólk vill heyra,þetta er kona hvað segja konur við þessu svari??Þetta er ekki mentuð manneskja als ekki en samt svona klúr,svo þetta er bara ágætt svar,svo langt sem það nær//Halli gamli

mbl.is Vildi ríka karlmenn með mikið undir sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045715

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband