Rússland greiði 6.000 milljarða/áfram heldur áróðurin á Pútín!!!!

 
Rússland þarf að greiða tæplega 6.000 milljarða króna vegna...
Rússland greiði 6.000 milljarða Viðskipti | mbl.is | 28.7.2014 | 13:03 Rússland þarf að greiða tæplega 6.000 milljarða króna vegna... Alþjóðadómstóllinn í Haag hefur dæmt rússneska ríkið til að greiða hópi fyrrverandi hluthafa í olíurisanum Yukon 51,6 milljarð Bandaríkjadala, eða sem nemur tæplega 6.000 milljörðum íslenskra króna.
 
Málið er mjög pólitískt og er sagt tengjast forseta Rússlands, Vladimir Pútín, mikið.GML, fé­lagið sem höfðaði málið, fór fram á 114 millj­arða dala bæt­ur, en það seg­ir að rúss­nesk stjórn­völd hafi und­ir­verðlagt eign­ir fyr­ir­tæk­is­ins þegar það var sett í þrot vegna skatta­skulda.
 
Meg­in til­gang­ur­inn póli­tísk­ur Í úr­sk­urði dóms­ins seg­ir að fyr­ir­tækið hafi orðið fyr­ir póli­tísk­um árás­um rúss­neskra stjórn­valda sem leiddu að lok­um til falls fyr­ir­tæk­is­ins.
 
Vitað er í dóm­inn á vefsíðu Reu­ters: „Meg­in til­gang­ur rúss­neska rík­is­ins var ekki að inn­heimta skatta held­ur frek­ar að gera Yu­kos gjaldþrota og nálg­ast verðmæt­ar eign­ir þess,“ seg­ir í dómn­um. Ut­an­rík­is­ráðherra Rúss­lands, Ser­gei Lavr­ov, hef­ur þegar sagt að ákvörðun­inni verði áfrýjað, en bent hef­ur verið á að ekki sé mikið um kosti í stöðunni til að áfrýja.
 
Dóm­ur alþjóðadóm­stóls­ins er nokkuð skýr og Tim Os­borne seg­ir að ekki sé hægt að deila um hann. Nú sé aft­ur á móti spurn­ing hvort hon­um verði fram­fylgt og að sókn­araðilar muni fá bæt­urn­ar greidd­ar.
 
Kem­ur á versta tíma fyr­ir Rúss­land Dóm­ur­inn kem­ur á versta tíma fyr­ir Rúss­land, en það stend­ur frammi fyr­ir alþjóðleg­um þving­un­um vegna ástands­ins í Úkraínu og reiði vegna Malasísku flug­vél­ar­inn­ar sem skot­in var niður ný­lega.
 
Þá er efna­hags­vöxt­ur einnig á niður­leið og gæti dóm­ur­inn orðið til þess að mats­fyr­ir­tæki end­ur­skoði mat sitt á Rússlandi. 2,5% af lands­fram­leiðslu Rúss­lands Upp­hæðin sem Rúss­land var dæmt til að greiða er um 2,5% af lands­fram­leiðslu rík­is­ins, en Yu­kon var með stærstu fyr­ir­tækj­um lands­ins og meðal stærri olíu­fyr­ir­tækj­um heims á sín­um tíma.
 
Ákvörðunin hafði áhrif á markaði í Rússlandi í dag, en bréf í RTS vísi­töl­unni lækkuðu um 2,8% eft­ir að dóm­ur­inn var birt­ur. Ólík­legt að kraf­an verði greidd Sér­fræðing­ar í mál­efn­um Rúss­lands segja ólík­legt að landið muni greiða þess­ar bæt­ur og að við taki elt­inga­leik­ur GML við að sækja eign­ir Rúss­lands er­lend­is, en slíkt er bæði erfitt og óljóst er hver ár­ang­ur af slíku er. T.d. mega eign­irn­ar ekki vera í formi sendi­ráðsbygg­inga eða her­tækja.
 
Yu­kos var áður stjórnað af Mik­hail Khodor­kov­sky, en hann var árið 2003 hand­tek­inn vegna skatta­laga­brot­anna. Málið hef­ur lengi verið talið sprottið af póli­tísk­um rót­um, en Khor­dor­kov­sky var einn rík­asti maður Rúss­lands og var byrjaður að blanda sér í póli­tík gegn Vla­dimir Pútín, for­seta Rúss­lands.
 
Hann sat í fang­elsi þangað til á síðasta ári, þegar Pútín náðaði hann stuttu áður en Ólymp­íu­leik­arn­ir voru haldn­ir í Sochi. Á Pútín ríka hags­muni af mál­inu? Khodor­kov­sky mun ekki fá neinn hlut í bót­un­um, en árið 2005, þegar hann var dæmd­ur flutti hann hlut sinn í fé­lag­inu yfir til Leonid Nevzl­in, viðskipta­fé­laga síns sem náði að flýja til Ísra­el.
 
Nevzl­in stend­ur fyr­ir um 70% af kröf­un­um sem gerðar voru á Rúss­land, en Plat­on Le­bedev, Mik­hail Brudno, Vla­dimir Du­bov og Vasilly Shaknovski eru einnig á bakvið hann í mála­ferl­un­um.
 
Fyr­ir­tækið sem keypti eign­ir Yu­kos er rúss­neska fé­lag­inu Ros­neft, en það er eitt tveggja stærstu olíu­fyr­ir­tækja heims. Um­talað er að Pútín sé hlut­hafi í Ros­neft og öðrum fé­lög­um sem komu að viðskiptaflétt­unni á bakvið kaup­in, en það hef­ur ekki verið sannað.
 
Lesa má nán­ari um­fjöll­un um málið og meint tengsl Pútíns við málið á bloggi Ket­ils Sig­ur­jóns­son­ar.
 
Mikhail Khodorkovsky var áður ríkasti maður Rússlands en var dæmdur í fangelsi vegna skattalagabrota. Hann ... Mik­hail Khodor­kov­sky var áður rík­asti maður Rúss­lands en var dæmd­ur í fang­elsi vegna skatta­laga­brota.
 
Hann var náðaður árið 2013, en hann átti stór­an hluta í Yu­kon. ////////////////Áfram heldur þetta áfram með Rússland og Pútín og mun gera það ,fyrst Bandaríkin eru komnir i spilið ,skuldugasta þjóð veraldar að maður best veit!! auðvitað borga Rússar þetta ekki frekar en aðrir sem í þessu lenda,þetta er svo að, allt verður tínt til að eyðileggja ,það sem á hefur unnist, í vináttu þessara ríkja og það er miður,Bandaríkin eiga í vök að verjast að vera með 2 Forseta i röð sem eru þeim bara birgði og engir menn til stjórna þessu stóra ríki!!!þessa vegna lata þeir svona,þeir skulda Kína mikið meira en þetta sem þeir segja Rússa skulda//Halli gamli 


mbl.is Rússland greiði 6.000 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Hvað kemur þessi dómur Bandaróikjum Ameríkui við Halli ?

Þessi dómur er búinn að vera mörg ár á leiðinni í gegn um dómskerfið. Allir sem hafa smá týru vita að Pútín skaraði eld að eigin köku í þessu um leið og hann knésetti eina manninn sem gat aflað sér fylgis í kosningum gegn honum og setti hann alsaklausan í fangelsi í mörg ár. Pútín KGB generáll ræður dómstólum auðvitað og ákvað niðurstöðuna. Á sama hátt ákvað hann að innlima Krím og skjóta niður MH17 þó hann þræti fyrir það ,en radarmyndir sýna hvaðan flaugin kom.

Þá með skuldir Bandaríkja Ameríku,m þá voru fréttir um helgina um að Kína er á brauðfótum sjálft og stendur illa of skuldir eru geigv´nlega miklar ólíkt því sem menn héldu.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 28.7.2014 kl. 14:51

2 Smámynd: Ármann Birgisson

Svo spurning hvernig þessir hluthafar eignuðust fyrirtækið upphaflega.

Ármann Birgisson, 28.7.2014 kl. 22:27

3 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Ármann

Það kemur þessum dómi bara nákvæmlega ekkert við. Það er verið að dæma í brútal lögleysu KGB generálsins Pútín að knésetja eina manninn sem gat orðið honum hættulegur í almennum kosningum.

Hitt er annað að þeir keyptu fyrirtækið á þeim kjörum sem sett voru upp á þeim tíma sem þeir eignuðust bréfin. en það kemur samt þessum dómi EEEEEKKKKERT VIÐ !

Ef þú kaupir eign á góðum kjörum en löglega - hefðir þú áhuga á að nágrani þinn eða bæjarstjórinn færi svona með þig ?

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 28.7.2014 kl. 22:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 1045696

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband