28.7.2014 | 16:22
6.534 greiddu auðlegðarskatt/þessi skattur er afnumin,spurnin af hverju,verðið að gera þá ríku ríkari!!
6.534 greiddu auðlegðarskatt Innlent | mbl.is | 28.7.2014 | 15:52 Mynd 605661 Auðlegðarskatt greiða nú 6.534 aðilar, alls um 6,2 milljarða króna.
Samanlagt hækkar auðlegðarskattur um 20% milli ára. 1. ágúst verða greiddir 17,7 milljarðar kr. úr ríkissjóði til heimila.Ríkisskattstjóri hefur nú lokið álagningu opinberra gjalda á einstaklinga.
Álagningin 2014 tekur mið af tekjum einstaklinga árið 2013 og eignum þeirra í lok árs 2013. Helstu niðurstöður álagningarinnar eru eftirfarandi: Framteljendum fjölgar um 1,1% milli ára og eru 268.452. Alls fengu 163.862 einstaklingar álagðan almennan tekjuskatt og 256.689 fengu álagt útsvar.
Tekjuskatts- og útsvarsstofn landsmanna árið 2014 vegna tekna árið 2013 nemur 988 milljörðum kr. og hefur hækkað um 6% frá fyrra ári.
Samanlögð álagning almenns tekjuskatts og útsvars nemur 260,7 milljörðum kr. og hækkar um 7% milli ára.
Álagður tekjuskattur nemur 43% af heildarfjárhæðinni og álagt útsvar 57%. Almennur tekjuskattur nemur 112,7 milljarðar kr. og er lagður á tæplega 164 þúsund framteljendur. Álagningin hækkar um 8% milli ára og gjaldendum fjölgar um 3,4%.
Útsvarstekjur sveitarfélaga nema 148 milljörðum kr. sem er 6,3% aukning milli ára. Greiðendur útsvars eru tæplega 257 þúsund og fjölgaði um 1,2% frá fyrra ári. Ríkissjóður greiðir hluta útsvarsins í formi ónýtts persónuafsláttar vegna þeirra sem hafa tekjur undir skattleysismörkum. Sú fjárhæð nemur 10,4 milljörðum króna.
Álagður fjármagnstekjuskattur einstaklinga nemur 14,5 milljörðum kr. og hækkar um 23,7% milli ára. Rétt er að vekja athygli á því að breytingin milli ára er mjög mismunandi eftir tegundum fjármagnstekna. Gjaldendum fjármagnstekjuskatts fjölgar um 8% og eru þeir um 45 þúsund.
Vaxtatekjur eru stærsti einstaki liður fjármagnstekna og nema 31,1 milljörðum kr. sem er 2,2% aukning frá árinu áður. Tekjur af arði nema 19,2 milljörðum kr. sem er 14,7% aukning frá fyrra ári og leigutekjur nema 9 milljörðum kr. sem er 1,6% lækkun milli ára.
Þrátt fyrir þessa lækkun fjölgar þeim sem telja fram leigutekjur um 4,4% eða rúmlega 300 manns milli ára. Tekjur af söluhagnaði hækka hins vegar langmest milli áranna 2012 og 2013, eða úr 8,6 milljörðum kr. í 19,2 milljarða kr., sem svarar til 124,3% aukningar.
Þá rúmlega tvöfaldast fjöldi þeirra sem telja fram söluhagnað af hlutabréfum, eða úr 1.737 einstaklingum í 3.514 einstaklinga. Álagning auðlegðarskatts fer nú fram í síðasta sinn, en skatturinn var lagður á sem tímabundin aðgerð.
Skatthlutfallið er 1,5% af eign á bilinu 75-150 milljónir hjá einhleypum og 100-200 milljónir hjá hjónum en 2,0% af eign umfram þessi mörk.
Auðlegðarskatt greiða nú 6.534 aðilar, alls um 6,2 milljarða kr., sem er 10,4% hækkun milli ára. Viðbótarauðlegðarskattur á hlutabréfaeign er lagður á 5.735 gjaldendur, samtals 4,7 milljarða kr. sem er 35,3% aukning milli ára.
Samanlagt hækkar auðlegðarskattur um 20% milli ára. Framtaldar eignir heimilanna námu 3.989 milljörðum kr. í lok síðasta árs og jukust um 3,3% frá fyrra ári.
Fasteignir töldust 2.805 milljarðar kr. að verðmæti, eða 70% af eignum, og jókst verðmæti þeirra um 4,7% milli ára. Íbúðareigendum fækkar hins vegar lítillega milli ára. Framtaldar skuldir heimilanna námu 1.788 milljörðum kr. í árslok 2013 og standa nánast í stað frá fyrra ári.
Framtaldar skuldir vegna íbúðarkaupa námu 1.174 milljörðum kr. sem er 1,3% aukning milli ára. Eigið fé heimila í fasteign sinni er nú í heild um 58% af verðmæti þeirra m.v. árslok 2013 samanborið við 49% í árslok 2010 þegar það var lægst.
Tæplega 26 þúsund af 94 þúsund fjölskyldum sem eiga íbúðarhúsnæði telja ekki fram neinar skuldir vegna þess
. Nettóeignir heimila, skilgreindar sem heildareignir að frádregnum heildarskuldum, jukust um 6,1% á árinu 2013. Útvarpsgjald nemur samtals 3,6 milljörðum kr. á árinu 2014. Fjárhæð þess er 19.400 kr. á hvern framteljanda á aldrinum 1669 ára sem greiðir tekjuskatt.
Greiðendum útvarpsgjalds fjölgar um 2.536 milli ára. Gjald í framkvæmdasjóð aldraðra nemur samtals 1,8 milljörðum kr. og eru greiðendur þess þeir sömu og greiða útvarpsgjald.
Barnabætur nema 9,5 ma.kr. á þessu ári og lækka nokkuð milli ára þegar á heildina er litið eftir 35% hækkun þeirra milli áranna 2012 og 2013.
Barnabætur eru þó mun hærri en á árunum 2011-2012. Tæplega 54 þúsund fjölskyldur fá barnabætur sem er 5,6% fækkun frá fyrra ári.
Meðalfjárhæð barnabóta á fjölskyldu stendur því sem næst í stað milli áranna 2013 og 2014. Almennar vaxtabætur vegna vaxtagjalda af lánum til kaupa á íbúðarhúsnæði, sem einstaklingar greiddu af á árinu 2013, nema 8 ma.kr. sem er 8,4% lækkun milli ára. Almennar vaxtabætur fá tæplega 42 þúsund fjölskyldur og fækkar þeim um 6,6% frá fyrra ári. Lækkunin
skýrist einkum af hækkun tekna og raunlækkun íbúðarskulda, sem hvort tveggja skerðir bæturnar, en einnig var tekjuskerðingarhlutfallið hækkað úr 8% í 8,5% til að beina bótunum betur að tekjulægri heimilum. Stærsti hluti álagðra gjalda hefur þegar verið innheimtur í staðgreiðslu.
Við álagningu fer fram uppgjör á ofgreiddri eða vangreiddri staðgreiðslu auk ákvörðunar á barnabótum og/​eða vaxtabótum.
Hinn 1. ágúst verða greiddir 17,7 milljarðar kr. úr ríkissjóði til heimila. Þar er um að ræða endurgreiðslu á ofgreiddum sköttum, barnabætur og vaxtabætur.
Inneign framteljenda að lokinni álagningu er alls 21,6 milljarðar kr., en 3,9 milljarðar kr. af henni verður ráðstafað upp í kröfur ríkissjóðs vegna vangoldinna gjalda. Útborgunin er sundurliðuð í meðfylgjandi töflu.
Tegund greiðslu M.kr. Barnabætur 2.495 Vaxtabætur 6.747 Ofgreidd staðgreiðsla tekjuskatts og útsvars 7.400 Ofgreidd staðgreiðsla fjármagnstekjuskatts 711 Annað 369 Alls 17.722 Heildarfjárhæðin sem greidd er út 1. ágúst lækkar úr 18,3 ma.kr. í 17,7 ma.kr. milli ára, einkum vegna lækkunar vaxtabóta.
Þá mun ríkissjóður greiða 2,5 ma.kr. í barnabætur 1. nóvember nk.///////////////////Skoðið þetta gott fólk vel og sjáið hvað á okkur er lagt,þetta er svo að þarna mega þeir betur stæðu bjarga meira,ekki spurning við aumingjarnir sem þeir myndu kalla eru að borga brúsann að stærstum hlut,svo slá þeir af auðlegðarskattinn núna!!!þetta er þeirra skömm sem sitja við stjórnvöldin núna!!!/Halli gamli
6.534 greiddu auðlegðarskatt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú kvartar ef þeim fjölgar sem borga auðlegðarskatt og þú kvartar ef skatturinn er tekinn af. Ertu á ódýrum samheitalyfjum?
Ufsi (IP-tala skráð) 28.7.2014 kl. 16:38
Þetta eru að meðaltali rúmar 270 þúsund á hvern greiðanda. Við vitum að margir greiða mun meira og aðrir minna. Hefði ekki verið nær að hækka viðmiðunarupphæðina, þannig að rökin fyrir því að eldra fólk sem situr í skuldlausum eignum lenti ekki í að borga þennan skatt???? En þetta voru helstu rökin fyrir því að þessi skattur var afnuminn..................
Jóhann Elíasson, 28.7.2014 kl. 16:47
Ufsi, kemur það málinu eitthvað við , hvort hann er á einhverjum ódýrum samheitalyfjum?????? Það fást sennilega ekki ódýr samheitalyf, sem virka á ruglið í þér....
Jóhann Elíasson, 28.7.2014 kl. 17:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.