Davið Aron bjargaði hlutunum/með að flug þeirra heim,var flugvélin biluð,en hann flugvirkin gerði við!!!

17 ára.j
SUNNA KAREN SIGURÞÓRSDÓTTIR SKRIFAR: Davíð Aron Guðnason lét slag standa þegar tilkynnt var um nokkurra klukkustunda töf á flugi hans með Primera air frá Almería á Spáni til Íslands, skömmu fyrir flugtak í gær.
 
Engan flugvirkja var að finna og því líkur á að allir hundrað og áttatíu farþegar vélarinnar þyrftu að fara á hótel þar til búið væri að finna lausn á bilun vélarinnar.
 
Davíð er flugvirki að mennt og greip því til sinna ráða, sýndi fram á réttindi sín og lagaði vélina á örskotsstundu.
 
„Ég ræddi við flugmanninn og hann setti mig í samband við flugvirkja þeirra sem er með aðsetur í Stokkhólmi.
 
Bilunin var rakin til „starter valve“ sem opnaðist ekki, en hlutverk þess er að hleypa lofti að startaranum til að ræsa hreyfilinn.
 
Sú aðgerð er einföld og tók mig um þrjátíu mínútur,“ segir Davíð. Davíð var á ferðalagi með konu sinni, dætrum og öðrum fjölskyldumeðlimum.
 
Hann segir bilunina hafa verið smávægilega og því hafi engin hætta verið á ferð.
 
„Eftir þessa viðgerð tóku flugmennirnir test í samræmi við handbækur og vélin var komin í lag. Það var aldrei nein hætta á ferð og öryggi farþega var aldrei í hættu, enda hefði vélin aldrei farið í loftið ef allt hefði ekki verið 100%.
 
“ Flugvélin var því einungis klukkustund á eftir áætlun þegar hún lenti á Keflavíkurflugvelli.
 
„Flugfreyjan tilkynnti öllum um borð að einn af farþegunum hefði haft þekkingu og færni til að laga vélina
 
og koma okkur heim,“ segir Davíð, sem hlaut mikið lófaklapp frá þakklátum farþegum vélarinnar.///////////////////þetta glæsilegt að gera ,þessi drengur er svona ,mjög góður í sinu fagi enda vinnur við það.en það er ekki sjálfgefið að menn gefi sig svona fram,en þetta  gerða og sparaði flugfélaginu stór pening,hann hlýtur að fá eitthvað annað flug í staðin með sig og fjölskylduna,Glæsileg framístaða hjá þér Davíð Aron //Halli gamli

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband