Ási í bæ og um Kristinn R.Ólafsson og skildleika þeirra og vísur góðar!!!!

Bæjarabragur 31. júlí 2014 kl. 10:52 Óli í Bæ (Ólafur Ástgeirsson), bátasmiður, sjómaður, lundaveiðimaður..., faðir minn, fæddist í Vestmannaeyjum 3. ágúst 1892).
 
Hann yrði því 122 ára núna á sunnudag í Þjóðhátíð 2014, sem sjálf er 140 ára. En Ási, bróðir, í Bæ, hefði orðið 100 ára í febrúar í vetur.
 
Margs að minnast. Textaskýringar: Faðir minn notaði orðið “díspírat”(með áherslu á síðasta akvæði) um það sem honum þótti afburðagott.
 
Fyrri kona hans hét Kristín Jónsdóttir (börn þeirra voru Magný, Ástgeir (Ási í Bæ), Sigurjón (Siggi í Bæ) og Sigrún (Rúna), sem lést af barnsförum tæplega 22 ára. Seinni kona hans var Guðrún Sigurðardóttir, móðir mín.
 
Ég heiti eftir þeim Kristínu og Rúnu. Við, afkomendur Óla í Bæ, hittumst útí Eyjum helgina 18. - 20. ágúst s.l. og áttum bæjaralegan gleðifundi þar sem mikið var sungið og sopið, bæði í Herjólfsbæ og í "Skátastykkinu".
 
Þar flutti ég þennan brag sem ég hafði barið saman og telst vera í limrustíl. Myndina teiknaði ég 2012 eftir ljósmynd sem ég tók af honum vorið 1966, nokkru áður en hann safnaðist til feðranna.
 
BÆJARABRAGUR (Kristinn R. Ólafsson, 2014)
 
Þótt á Stórhöfða stormur sé hvínandi ei
 
stöndum við Bæjarar hrínandi;
 
aldrei heimaskítsmát,
 
erum hýr, erum kát
 
 
því handbær er kappnógur vínandi.
 
Já, ég er rakur í aðra röndina og reyni að
 
hafa við höndina þá ljúffengu skál
 
sem lyftir æ sál og lífgar í brjósti mér öndina.
 
 
Um Ástgeirsbur Ólaf er skrafandi
 
og ótalmargt um hann er hafandi.
 
Nokkur orð fram hér tel um æv´ans og
 
þel..., sona áður en verð ég mjög... drafandi..
 
 
. Á miðin hann kunni og klakkana,
 
á klettana, drangana, slakkana;
 
var stæltur og mjór,
 
stinnur og frjór: við Stínu gat fjóra krakkana.
 
 
Já, hann pabbi... linnt´ ekki látunum:
 
lauk smíð á ófáum bátunum og kjöl lagð'
 
að þeim sem koma nú heim að kætast á túni hjá skátunum.
 
Eftir bjargræði í björgin var sígandi,
 
í bládjúpan sæinn æ mígandi,
 
 
lunda veiddi í háf, leit oft rytu og máv;
 
léttfættur ölduna stígandi.
 
Tung´ okkar forfeðra talaðe,
 
tók í nefið og áfram hann malaðe;
 
var flámæltur smá einsog fjölmargir
 
þá en fróður um allt sem hann hjalaðe.
 
.
. Og margt enn hann sextugur sýslaði:
 
eitt síðkvöld við Guðrúnu ríslaði.
 
 Og er mig, örverpið leit,
 
sem öskrað' og skeit,
 
“Sá er aldeilis díspírat,”
 
hann hvíslaði. Líkar þetta 
 
l ////ÉG veit að Kristinn R. fyrirgefur mér þetta ,en manni finnst þetta eiga við núna er að rþjóðhátíð stendur numer ég veit ekki hvað,en þetta er bara svona og ég dái Vestamanaeyjinga,og vini þeirra!!!!!/Halli gamli p/s gat ekki haft  myndina með því miður!! 
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045793

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband