Skuldauppgjöri Björgólfs lokið/Maður bara spyr hvert fóru penigarnir????

Björgólfur Thor Björgólfsson.
Skuldauppgjöri Björgólfs lokið Viðskipti | mbl.is | 6.8.2014 | 18:51 Björgólfur Thor Björgólfsson. Skuldauppgjöri Björgólfs Thors Björgólfssonar og Novators, fjárfestingafélags hans, er nú lokið og hefur hann gert upp við alla innlenda og erlenda lánadrottna.
 
Heildarfjárhæðin sem greidd er til lánadrottnanna er 1.200 milljarðar króna.
 
Til­kynnt var um sam­komu­lag Björgólfs við lána­drottn­ana árið 2010 og bú­ist við að það tæki um fimm til sex ár að selja eign­ir og klára upp­gjör.
 
Tölu­vert af per­sónu­leg­um eign­um Björgólfs runnu til lán­ar­drottna um leið og gengið var frá sam­komu­lag­inu, þar á meðal hús­eign í Reykja­vík, sum­ar­hús við Þing­velli, snekkja og einkaþota.
 
Hafa þess­ar eign­ir nú verið seld­ar og and­virði ráðstafað til kröfu­hafa.
 
Jafn­framt fólst í sam­komu­lag­inu að Björgólf­ur Thor yrði áfram hlut­hafi í fé­lög­um á borð við Acta­vis, Play, CCP og Ver­ne Hold­ing og þær eign­ir væru til trygg­ing­ar á eft­ir­stand­andi skuld­um.
 
Kæmi til sölu þess­ara eigna myndi arður­inn af þess­um eign­ar­hlut­um og verðmæti renna til upp­gjörs skuld­anna.
 
Slita­stjórn Lands­bank­ans stærsti ís­lenski viðsemj­and­inn Stærsti hluti upp­gjörs Björgólfs var við er­lendu lána­drottn­ana Deutsche Bank, Stand­ard Bank, Barclays og Fort­is en kröf­ur ís­lensku bank­anna námu um 10% af heild­ar­upp­gjör­inu.
 
Stærsti hluti greiðsln­anna til ís­lenskra lána­drottna var greidd­ur til slita­stjórn­ar Lands­bank­ans og Lands­bank­ans í Lúx­em­borg, eða um 85 millj­arðar króna af þeim 100 millj­örðum sem hann greiddi til ís­lenskra fé­laga.
 
Í til­kynn­ingu frá Novator seg­ir að í Rann­sókn­ar­skýrslu Alþing­is hafi Björgólf­ur verið til­greind­ur sér­stak­lega sem stærsti skuld­ari Lands­bank­ans í Lúx­em­borg, en að ekki hafi verið tekið til­lit til þess að hann væri jafn­framt stærsti inni­stæðueing­and­inn í bank­an­um og raun­veru­leg skuld hans því lægri.
 
Með til­kynn­ing­unni fylg­ir yf­ir­lýs­ing frá Björgólfi. „Skulda­upp­gjöri mínu og fjár­fest­ing­ar­fé­lags míns við alla lán­ar­drottna er nú lokið, mun fyrr en áætlað var.
 
hag / Har­ald­ur Guðjóns­son Ég var alla tíð ákveðinn í að ganga frá upp­gjör­inu með sóma.
 
Til að svo mætti vera þurfti mikla og þrot­lausa vinnu til að há­marka virði þeirra eigna sem lágu til grund­vall­ar upp­gjör­inu.
 
AFP Þegar til­kynnt var um upp­gjör mitt í júlí 2010 kom fram að skuld­ir myndu verða gerðar upp að fullu og ekki gefn­ar eft­ir. Við það hef ég staðið.
 
“ „Lánuðu of fáum of mikið“ „Ég hef margoft sagt, að skuld­ir verða ekki gerðar upp nema menn eig­in raun­veru­leg­ar eign­ir til að greiða þær með.
 
Vissu­lega voru skuld­ir mín­ar mikl­ar við hrun, en að sama skapi voru inn­eign­ir mikl­ar og trygg­ing­ar ör­ugg­ar.
 
Íslensku bank­arn­ir lánuðu sann­ar­lega of fáum of mikið.
 
Verra var, að stór hluti þeirra sem frek­ast­ir voru til lán­anna átti aldrei raun­veru­leg­ar eign­ir, held­ur aðeins sýnd­ar­eign­ir á papp­ír, sem þeir eignuðust í sýnd­ar­viðskipt­um við fé­laga sína. Þeir hafa ekki reynst borg­un­ar­menn fyr­ir skuld­um sín­um og skyldi eng­inn undra.
 
“ Seg­ir vinnu­brögðin gagn­særri en hér hafi tíðkast
 
„Um 100 manna her lög­fræðinga, end­ur­skoðenda og annarra sér­fræðinga vann að skulda­sam­komu­lag­inu. Ég lagði all­ar mín­ar eign­ir und­ir.
 
Þá fengu lána­drottn­ar aðgang að öll­um banka­reikn­ing­um mín­um og allra fé­laga minna nokk­ur ár aft­ur í tím­ann og gátu þannig gengið úr skugga um að eng­ar eign­ir voru und­an­skyld­ar.
 
Deutsche Bank Deutsche Bank AFP Sú rann­sókn­ar­vinna er­lendra sér­fræðinga stóð í tæpt eitt og hálft ár og lauk í apríl 2010.
 
Ég full­yrði að svo gagn­sæ vinnu­brögð hafa ekki verið viðhöfð í upp­gjörs­mál­um neinna annarra í ís­lenska banka­kerf­inu.
 
“ „Ljóst er, að kröfu­haf­ar hefðu aldrei náð full­um end­ur­heimt­um ef gengið hefði verið að eign­un­um og þær seld­ar á bruna­út­sölu, í stað þess að semja um upp­gjör.
 
All­ir lán­ar­drottn­ar samþykktu að setj­ast að samn­inga­borði og sú ákvörðun reynd­ist rétt fyr­ir alla þeim sem
 
að samn­ing­um komu,“ seg­ir Björgólf­ur./////////////////////Þetta er ekki það sem við leikmenn skiljum að hann borgi bara í hítar sem allt gufar upp!!! eða annað skil ég ekki  öðruvísi en að þessi og hinn hafi fengið sitt,en ennþá liggur skuldafenið af landsbankanum  á okkur milljarðar komið með skíringu á þessu,við vitum að slitastjórninn og lögfræðinngar þar.eru búnir að þykja ofurlaun sem engin skilur ,en svona er þetta 1200 milljarða ,ég við fá mikið betri afgreiðstu á þessu,hann talar um að aðrir hafi ekkert átt nema pappíra ,ég sé ekki betur en þetta sé einnig svoleiðis!!!/Halli gamli

mbl.is Skuldauppgjöri Björgólfs lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Páll Garðarsson

Smá liggur hér:
http://www.dv.is/frettir/2012/7/7/afskriftakongar-islands/

Jón Páll Garðarsson, 6.8.2014 kl. 23:02

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Sammála þér.  Ég veit ekki betur en að hann hafi fengið "lán" hjá Búnaðarbankanum sáluga til að kaupa Landsbankann.  Hvað varð um það og margt fleira, sem voru svo bara einhverjir "pappírar" og "bólufé" þegar upp var staðið.............

Jóhann Elíasson, 6.8.2014 kl. 23:29

3 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Já sæll Haraldur minn, þetta er nú meira bullið bara segi ég og algjörlega er ég sammála þér hér að skuldir bankans sitja enn á okkur Þjóðinni og ekki bara það, heldur segir hann í þessari frétt að vegna þess að eignir hans voru ekki seldar á brunaútsölu þá gat hann þetta...

Hvað með eignarsafn húsnæðislána heimilana, var því fórnað fyrir eignir hans... Það var sellt á brunaútsölu og tapið situr eftir á lántakanum og heilu fjölskyldurnar misstu allt sitt...

Hefði það þurft að gerast á sínum tíma ef eignir hans hefðu nú verir settar í forgangs-brunaútsölu...

Kv.góð.

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 7.8.2014 kl. 00:11

4 Smámynd: Jón Bjarni

Þetta stendur þarna í fréttinni: "Stærsti hluti upp­gjörs Björgólfs var við er­lendu lána­drottn­ana Deutsche Bank, Stand­ard Bank, Barclays og Fort­is en kröf­ur ís­lensku bank­anna námu um 10% af heild­ar­upp­gjör­inu"

Semsagt, það voru 10% af þessari upphæð sem fór til íslensku bankanna, hin 90% voru erlendir kröfurhafar..

Hvað er svona flókið?

Svo er þessi samanburður þinn Ingibjörg ekki alveg að meika sense.. Björgúlfur átti fyrirtæki sem hann þekkti betur en aðrir, hann samdi um það að fá að stýra því sjálfur hvernig þeim yrði komið í verð og gerði það þannig að niðurstaðan er sú að allir kröfurhafar fengu greitt í topp, hann gerði það ekki til að halda eignunum.. Hefði það einhverju breytt fyrir heimili á íslandi að fá að sjá sjálf um að selja eignirnar sínar upp í skuldir? Hvernig væri nú að anda aðeins með nefinu og hugsa rökrétt eitt augnablik

Jón Bjarni, 7.8.2014 kl. 09:12

5 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Það er alveg sama hvað þú segir um þetta Jón Bjarni,þessar skuldir lansbankans eru ekki uppgteiddar als ekki,koma bara með erlend fyirtæki er bara til að hann getit afram haft viðskipti,þessi greiðsla er tómt ruggl að máiu áliti og ekkert annað!!!;Kveðja

Haraldur Haraldsson, 7.8.2014 kl. 13:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 1045718

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband