Sáttasemmjarar í Egyptalandi keppast nú við að miðla málum milli Ísraels- og Palestínumanna, áður en þriggja sólarhringa vopnahlé rennur út á miðnætti í kvöld.
Báðir aðilar þurfa að sættast á annaðhvort varanlegt vopnahlé eða framlengingu á því, til að koma í veg fyrir að blóðugur hernaður hefjist á nýjan leik.
Friðarviðræðurnar eru sagðar á afar viðkvæmu stigi en vonast er til að samkomulag náist fyrir miðnætti, sem er kl. 21 að íslenskum tíma.
Á meðan reyna íbúar Gazasvæðisins að púsla saman lífi sínu á nýjan leik en margir þeirra þurftu að flýja undan hernaði Ísraelsmanna og komu aftur að heimilum sínum í rúst.
Tveir ungir drengir ganga hjá húsarústum á norðurhluta Gaza. Sameinuðu þjóðirnar áætla að yfir 10.000 ... Tveir ungir drengir ganga hjá húsarústum á norðurhluta Gaza.
Sameinuðu þjóðirnar áætla að yfir 10.000 heimili Palestínumanna hafi verið eyðilögð í hernaði Ísraelsmanna.
AFP Sameinuðu þjóðirnar áætla að um 10.000 heimili hafi verið eyðilögð. Krefjast aðgengis að höfn og flugvelli Egyptar áttu frumkvæðið að sáttasamkomulaginu sem tók gildi kl. 0:01 á mánudag að staðartíma til þriggja sólarhringa.
Óbeinar friðarviðræður fara nú fram með þeirra milligöngu í Kaíró og hafa Egyptar hvatt stjórnvöld í Ísrael og Hamas-hreyfinguna á Gasa til að reyna sitt ýtrasta til að varanlegt vopnahlé megi verða að veruleika.
Lykilkröfur Palestínumanna snúast m.a. um aukið ferðafrelsi, með aðgangi að hafi með höfn á Gaza og flugvelli á svæðinu.
Sáttasemjararnir hafa lagt til að þessum kröfum verði frestað þannig að þær verði uppfylltar eftir einn mánuð frá því að varanlegt vopnahlé hefst. Þetta kemur fram á minnisskjali sem Afp-fréttastofan hefur undir höndum.
Þar er líka lagt til að frestað verði framsali á líkum tveggja ísraleska hermanna, sem Hamas-liðar hafa í haldi, gegn því að palestínskum föngum verði sleppt lausum.
8 ára herkví verði aflétt Tillögurnar fela auk þess í sér að varnarsvæði meðfram landamærum Gaza við Ísrael verði smám saman minnkað og að gæsla þess verði í höndum öryggissveita sem heyri undir stjórn forseta Palestínu, Mahmuds Abbas.
Palestínumenn, þar á meðal Hamas-hreyfingin, eru sagðir krefjast þess umfram allt að bundinn verði endi á 8 ára herkví Gaza-svæðisins.
Minnisblað egypsku sáttasemjaranna er óljóst í afstöðunni til þessa, en þar segir að landamærastöðvar verði opnaðar samkvæmt samkomulagi milli stjórnvalda landanna tveggja.
Þá hafa Palestínumenn fyrir sitt leyti hafnað kröfu Ísraelsmanna um að Hamas-hreyfingin og aðrir á Gaza afhendi öll vopn sín.
Tæplega 2000 Palestínumenn létu lífið í hernaði Ísraelsmanna sem stóð í rúman mánuð á Gaza, frá 8. júlí.
Ísraelsmegin hafa 67 látið lífið, flestir þeirra hermenn//////////////Það er svo að friðarviðræður verð að skyla árangri áður en þessu varður öllu slátrað á Gasa og engin til frásagnar,við heimtum það friðelskandi þjóðir,og svona aðfarir að Bandaríkin og Kanada styðji þessa slátrun er ekki þolandi af líðræðisþjóðum,við verðum að taka á þessu öll/Halli gamli
.
Tíminn að renna út í friðarviðræðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 1046583
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Af mbl.is
Erlent
- Sjötti ferðamaðurinn er látinn
- Segjast hafa drepið fimm vígamenn
- Eldflaugavarnarkerfi í skiptum fyrir hermenn
- Segir að friði verði aðeins náð með afli
- Rússar sagðir útvega N-Kóreu milljón olíutunnur
- Pam Bondi næsti dómsmálaráðherra
- Handtekinn fyrir njósnir í bandaríska sendiráðinu
- Hefur áhyggjur af notkun eldflauganna
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.