16.8.2014 | 17:48
Reynir: Ekkert varir að eilífu//Satt er það,en eitt er víst að lifum ekki að eilífu!!!
Reynir:Ekkert varir að eilífu Innlent | mbl | 16.8.2014 | 15:06 Reynir Traustason, ritstjóri DV. Ég vil nú heldur fara út sem frjáls maður en að þurfa að lúta ofríki einhverra einstaklinga, segir Reynir Traustason, ritstjóri DV, í samtali við mbl.is.
Hann segist vera í miðju stríðinu og vilja bölvanlega hætta undir núverandi kringumstæðum.
Ekkert vari hins vegar að eilífu.
Á Facebook-síðu sinni í dag sagðist Reynir vera að velta fyrir sér næstu framtíð. Fyrir tveimur árum hafi himinháar skattaskuldir og innri breyskleiki verið að sliga félagið.
En starfsfólkinu hafi tekist undir forystu Ólafs M. Magnússonar stjórnarformanns að sigrast á erfiðleikunum
. Þar lögðu margir góðir menn hönd á plóg. mbl.is/​Sverrir Hagur DV hefur líklega aldrei verið betri en nú.
Ritstjórnin hefur farið á kostum og svo sannarlega virtist vera að rofa til. En að sama skapi hefur árásum á fjölmiðilinn fjölgað.
Óvinurinn er allt í einu undir rúminu. Það verður áhugavert að sjá hvað gerist á næstu vikum.
Áhyggjuefnið er það hvernig fer fyrir frjálsum og óháðum miðli undir tilraunum til fjandsamlegrar yfirtöku.
Sjálfur er ég pollrólegur og trúi því að réttlætið muni sigra. Ef ekki þá verður maður að taka ranglætinu, sagði hann jafnframt á Facebook-síðu sinni.
Átök um eignarhaldið Fréttastofa Rúv greindi frá því fyrr í vikunni að mikil átök væru nú um eignarhaldið á DV. Stjórnarformaðurinn, Þorsteinn Guðnason, keypti hlut í félaginu og greiddi að hluta fyrir það með hlut í vefsíðunni eirikurjonsson.is. Lilja Skaftadóttir.
Lilja Skaftadóttir. mbl.is/​Kristinn Aðrir stjórnarmenn í DV ehf.
voru afar óánægðir við þessi viðskipti, bæði vegna efasemda um að eirikurjonsson.is væri eins mikils virði og Þorsteinn héldi fram og eins vegna þess að Þorsteinn hefði setið báðum megin borðsins þegar hann seldi eigin félagi hlutinn í DV.
Þorsteinn var í kjölfarið settur af sem stjórnarformaður DV ehf., þar sem hann naut ekki lengur trausts eða trúnaðar annarra stjórnarmanna.
Svo virðist sem þetta sé hluti af stærri átökum um völdin yfir DV, vegna þess að eftir að Þorsetinn var settur af sem stjórnarformaður keypti félag í hans eigu hlut Lilju Skaftadóttur í DV, en hún var áður stærsti hluthafi blaðsins.
Lilja segir að að baki ákvörðuninni hafi verið persónulegur harmleikur, sem sé blaðinu með öllu óviðkomandi.
Ég óska þeim sem keyptu minn hlut alls hins besta og vil trúa því að þeirra markmið sé að halda áfram að reka óháðan og gagnrýninn fjölmiðil og að með nýrri stjórn og yfirstjórnendum verði haldið áfram á sömu braut.
Ég vil trúa því að samfélagið í heild eigi eftir að njóta góðs af og styðja blaðið áfram, segir Lilja enn fremur. Félög í eigu Þorsteins og honum tengd eiga því stóran hlut í blaðinu núna, eða um 30%, rétt eins og Reynir.
Við erum bara í miðju stríðinu og ég mun fara sáttur ef ég þarf.
Ég mun líka vera sáttur ef að gott fólk heldur áfram að halda utan um stjórnartaumana, segir Reynir við mbl.is. Óttast fjandsamlega yfirtöku Starfsmenn DV sendu frá sér yfirlýsingu í gær þar sem þeir lýstu áhyggjum sínum af væringum um eignarhald félagsins og því sem þeim virðist vera tilraun til fjandsamlegrar yfirtöku
. Ekki liggi ljóst fyrir hverjir fjármagni í raun kaupin og óttast starfsmennirnir því um ritstjórnarlegt sjálfstæði miðilsins. Í yfirlýsingu Þorsteins Guðnasonar sagði hins vegar að allt tal um fjandsamlega yfirtöku væri úr lausu lofti gripið.
Ég gerðist stjórnarformaður DV meðal annars fyrir orð Reynis Traustasonar, ritstjóra blaðsins, og hef lagt til þess umtalsverða fjármuni sem hluthafi og lánveitandi.
Upphaf þessa má rekja til þess að stjórnendur blaðsins töldu stefna í gjaldþrot og leituðu efitr fjármögnun og nýju hlutafé til að koma í veg fyrir slíkt.
Við því var orðið og ahfa umtalsverðir fjármunir verið settir í rekstur DV undanfarna mánuði og misseri, sagði Þorsteinn.
Hann tók jafnframt undir með starfsmönnum DV um mikilvægi þess að standa áfram vörð um óháða og frjálsa fjölmiðlun.
Ekki stæði neitt annað til en að efla blaðið á næstunni. Frétt mbl.is: Óttast fjandsamlega yfirtöku á DV
//////////////////////Þetta verður hasar!!, mikill og endar með að, Reynir Traustason hættir og hvað þá,spurning sem maður D.V. hefur verið umdeilt mjög en samt,keypt af því þar er hreift við mörgu,og það er blöð svoleiðis sem vantar og stundar rannsóknabaðamennsku,og fer ekki yfir strikið samt!!, en við viljum að þetta bíð haldi áfram krítískt mjög og það bara gott og þarft,en ekki mannsandi að ósönnu,og engin er sekur fyrr en sekt er sönnuð!!!//Halli gamli
Reynir: Ekkert varir að eilífu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 1046584
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Af mbl.is
Íþróttir
- Ísland - Ítalía, staðan er 12:14
- Haukar - Valur, staðan er 6:7
- Öruggt hjá Tyrkjum í riðli Íslands
- Ég er rétti maðurinn fyrir United
- Líta á tilboð í Gylfa sem grín
- Gunnar tekur við Selfossi á ný
- Mættur aftur á hliðarlínuna
- Fyrrverandi liðsfélagi þjálfar Messi
- Framarar halda áfram að styrkja sig
- Staðgengill þess besta líka meiddur
Athugasemdir
Það er rétt, að við þurfum dagblað með alvöru, sannsöglum blaðamönnum sem stunda rannsóknarblaðamennsku.
Þess vegna má sorpsnepillinn DV með sína ómerkilegu ritstjórn og lygnu blaðasnápa fara til andskotans. Þeirra verður ekki saknað.
Það sem ný stjórn getur gert er að henda út Reyni Traustasyni og öllum hans ættingjum af launalistanum, breyta síðan ritstjórnarstefnunni, þannig að sannleikurinn verði leiðarljós í rannsóknarblaðamennskunni í staðinn fyrir upploginn rógburð. Í staðinn fyrir að skálda í eyðurnar, eiga blaðamennirnir að velta hverjum steini, bæði hjá hinu opinbera og í einkageiranum.
Þetta krefst auðvitað að alvöru blaðamenn verði ráðnir sem birta alvöru fréttir í stað þeirra núverandi sem hafa smitazt af lágum standard blaðsins. Helmingur af blaðinu í dag er rusl sem fengið er af internetinu sem hver sem er getur fundið hvort eð er. Alvöru rannsóknarblaðamennska gengur út á það að velta hverjum steini, afhjúpa spillingu í stjórnsýslunni, spyrja rétta aðila réttra (óþægilegra) spurninga, óháð flokkslit. Og umfram allt halda sig við staðreyndir. Svona nýtt dagblað má gjarnan vera vinstrisinnað, en ekki á neinn hátt tengt Samfylkingunni eða VG eða neinum stjórnmálaflokkum líkt og það er í dag, enda gengur það erinda stjórnarandstöðunnar og gerir skítverk hennar.
Alvöru vinstrisinnað blað heldur með láglaunafólki og lægri stéttum þjóðfélagsins, heldur með lítilmagnanum óháð flokkum eða þrýstihópum. Þetta nýja blað, hvað sem það kemur til með að heita, á að vera alveg óháð í stað þess eins og núna að stjórnast af öfgafeminískum sjónarmiðum. Jafnrétti - já, að sjálfsögðu. Dólgafemínisma, nei takk.
Réttast væri líka, eftir úthreinsunina, að breyta nafni blaðsins, þar eð nafnið DV hefur fengið óorð á sig meðan Reynir og hans fjölskylduhyski hafa verið allsráðandi.
Pétur D. (IP-tala skráð) 16.8.2014 kl. 19:45
Við erum að mörgu leiti sammála,en ekki endilega Vinstra blað!!!!!!Kveðja
Haraldur Haraldsson, 16.8.2014 kl. 23:27
Nei, það þarf ekki endilega að vera vinstriblað, en lægri stéttir landsins vantar sárlega málgagn og það er (kannski úrelt?) hefð að líta á verkalýðsbaráttu sem vinstriöfl. Alvöru vinstri, ekki eins og svokölluð vinstristjórn 2009-2013, sem var lítið annað en hækja auðvaldsins.
Nú er ég sjálfur dálítið hægrisinnaður og treysti mbl.is bezt bæði vegna alhliða fréttaflutnings og vegna þess að allir geta komizt til orða. En það er málgagn Sjálfstæðisflokksins. Á hinn bóginn eru Fréttablaðið/visir.is/365 miðlar málgögn Samfylkingarinnar og DV málgagn öfgafemínistanna og VG. Þess vegna vantar fréttamiðil, sem tekur upp hanzkann fyrir lítilmagnann, fyrir láglaunafólk.
Pétur D. (IP-tala skráð) 17.8.2014 kl. 12:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.