Fjögur börn meðal látinna//Þessu linnir ekki nema B.N.A. taki þátt í aðgerðum!!!!

17 ára.j
Fjögur börn meðal látinna Erlent | AFP | 21.8.2014 | 7:16 Fjögur börn eru meðal þeirra sem létust í loftárásum Ísraela á Gaza í nótt. Hernaðararmur Hamas hefur staðfest að þrír herforingjar Hamas hafi fallið í árásunum í nótt.
 
Hernaðar­arm­ur Ham­as, Ezzedine al-Qassam Briga­des, hef­ur nafn­greint þre­menn­ing­ana:Mohammed Abu Shamala, Raed al-Atar og Mohammed Bar­h­um.
 
Vitni segja að menn­irn­ir hafi lát­ist í árás­um Ísra­ela á borg­ina Rafah sem er við landa­mæri Egypta­lands.
 
Fjög­urra hæða íbúðar­hús jafnaðist við jörðu í árás­inni.
 
Í gær reyndi Ísra­els­her að drepa yf­ir­mann hernaðararms Ham­as, Mohammed Deif, en hann lifði árás­ina af.
 
Aft­ur á móti lést eig­in­kona hans og sjö mánaða gam­all son­ur hans í árás­inni ásamt fleir­um óbreytt­um borg­ur­um.
 
Ham­as hef­ur varað flug­fé­lög við því að fljúga til Tel Aviv en allt flug þangað er sam­kvæmt áætl­un þrátt fyr­ir það.
 
Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá hjúkr­un­ar­fólki lét­ust sjö í árás­um Ísra­els­hers í nótt í Rafah og nokkr­ir í árás­um hers­ins á Nus­seirat flótta­manna­búðirn­ar.
 
Um 2060 Palestínu­menn og 67 Ísra­els­menn hafa lát­ist í átök­un­um milli Ísra­els­hers og Ham­as síðan 8. júlíVopnaðar sveit­ir Ham­as í Palestínu sendu frá sér yf­ir­lýs­ingu í dag þar sem þau vöruðu er­lend flug­fé­lög við þvi að fljúga til Tel Aviv frá klukk­an þrjú í nótt á ís­lensk­um tíma.
 
Jafn­framt lýsti talsmaður Ham­as því yfir að friðarviðræðum milli Palestínu og Ísra­els væri lokið af þeirra hálfu og hvatti hann palestínska samn­ingsaðila til að snúa aft­ur heim frá Kaíró, þar sem viðræðurn­ar hafa farið fram.
 
Gríðarleg reiði hef­ur ríkt meðal Palestínu­manna eft­ir að Ísra­els­her drap eig­in­konu og sjö mánaða gam­alt barn Ham­as leiðtog­ans Mohameds Deif í loft­árás­um.
 
Sam­tök­in segja Deif hins veg­ar hafa lifað árás­ina af, en hún var sjötta til­raun Ísra­els­manna til að ráða hann af dög­um. Ísra­elski for­sæt­is­ráðherr­ann Benjam­in Net­anya­hu sagði í dag að „leiðtog­ar hryðju­verka­hópa væru lög­leg skot­mörk“ og að „eng­inn væri ónæm­ur fyr­ir árás­um hers­ins
 
“. „Okk­ar stefna er eft­ir­far­andi: Ef Ham­as-liðar skjóta, svör­um við af enn meiri þunga.
 
Ef þeir skilja þetta ekki í dag þá skilja þeir þetta á morg­un, og ef ekki á morg­un þá dag­inn þar á eft­ir,“ sagði Net­anya­hu.
 
Minnst 2.049 manns Palestínu­menn og 67 Ísra­els­menn hafa nú lát­ist í átök­um þjóðanna.///////////////////////////Þessu mun ekki linna nema B.N.A. verði með í því að loka á Ísraela ,þeir einir geta þarna haft áhrif !!! ekki spurning um það,þetta vitum við en  Kaninn vill ekki viðurkenna,þeir hræðast Gyðingana í landi sýnu,vegna kosninganna í landi sínu,og auðvitað aðal vinanna í austurlöndum nær///Halli gamli 

mbl.is Fjögur börn meðal látinna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045680

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband