28.8.2014 | 20:51
Spurningum um ólögmæti enn ósvarað/En við heimtum svar,öll þessi lán munu setja þá, sem tóku á hausin ,ef ekki þeir, þá þeir sem af þeim kaupa!!!!
Spurningum um ólögmæti enn ósvarað Innlent | mbl.is | 28.8.2014 | 19:22 Hagsmunasamtök heimilanna segja að EFTA-dómstóllinn hafi með áliti sínu í morgun tekið undir með samtökunum um að íslenskir dómstólar skuli skera úr um lögmæti verðtryggingar.
Spurningum um ólögmæti sé enn ósvarað.Eins og fram hefur komið á mbl.is í morgun EFTA-dómstóllinn ráðgefandi álit sitt vegna dómsmáls sem rekið er fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur gegn Íslandsbanka hf.
Í málinu er deilt um hvort verðtryggingarákvæði í skuldabréfi sem gefið var út í tengslum við fasteignakaup teljist ósanngjarn samningsskilmáli þannig að því megi víkja til hliðar í skilningi a. c. liðar í 36. gr. samningalaga nr. 7/​​1936, með síðari breytingum.
Umrædd ákvæði komu inn í samningalögin 1995 með innleiðingu á tilskipun 93/​​13/​​EBE, um ósanngjarna skilmála í neytendasamningum. Hagsmunasamtök heimilanna segja í tilkynningu, að tvö önnur mál um verðtryggingu séu fyrir dómstólum, annað þeirra sé rekið af Hagsmunasamtökum heimilanna og hitt af Verkalýðsfélagi Akraness.
Bæði snúist þau um framkvæmd verðtryggingar hér á landi, það er hvort kynning fyrir neytendum á kostnaði við verðtryggingu sé í samræmi við lög um neytendalán nr. 121/​1994.
Fram kemur, að lögin feli í sér mjög skýr ákvæði um upplýsingagjöf til neytenda við lántöku.
Þá segir að dómsmál samtakanna sé rekið af félagsmönnum í samtökunum, en samtökin greiði af því allan kostnað.
Málið fjallar um venjulegt, íslenskt, verðtryggt húsnæðislán sem tekið var hjá Íbúðalánasjóði. Málatilbúnaðurinn snýst um útfærslu verðtryggingar og upplýsingar um hana í lánasamningi þar sem miðað var við 0 % verðbólgu í greiðsluáætlun.
Þetta telja samtökin ekki samræmast ákvæðum laga um neytendalán (nr. 121/​1994) og á það við um lán til fasteignakaupa frá árinu 2001 þegar neytendalánalögunum var breytt þannig að þau næðu einnig til húsnæðislána.
Málið er rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur enda telur Neytendastofa, stjórn HH og lögmenn sem komið hafa á málinu það mjög skýrt í íslenskum lögum um neytendalán hvaða upplýsingar þurfa að koma fram í lánasamningum um lánskostnað, þar með talið verðbætur, segir í tilkynningunni.
Þá segir, að álit EFTA-dómstólsins fá því í morgun styðji ákvörðun samtakanna um að ekki væri þörf á áliti frá EFTA vegna dómsmálsins sem samtökin standa að baki, enda séu íslensk lög um neytendalán alveg skýr.
Íslenskir dómstólar ættu ekki að vera í neinum vandræðum með að dæma eftir þeim um hið sérséríslenska fyrirbrigði sem verðtrygging neytendalána er.
Efnisleg meðferð í máli Hagsmunasamtaka heimilanna mun fara fram þegar EFTA dómstóllinn hefur skilað ráðgefandi áliti í máli sem Verkalýðsfélag Akraness stendur að baki.
Þar er ekki um að ræða húsnæðislán heldur neytendalán án veðs í fasteign.
Að öðru leyti er málatilbúnaður mjög sambærilegur við mál Hagsmunasamtaka heimilanna, þ.e.a.s. snýst um upplýsingagjöf til neytenda varðandi verðtryggingu, að því er segir í tilkynningu.
Hagsmunasamtök heimilanna hafa aldrei haldið því fram að verðtrygging sem slík sé ólögleg milli fagfjárfesta, fjármálafyrirtækja og ríkisins.
Þegar hins vegar kemur að lánasamningum við neytendur ber lánveitendum skylda til að standa rétt að upplýsingagjöf í samræmi við lög um neytendalán.
Þeirri spurningu hvort rétt hafi verið staðið að þeirri upplýsingagjöf, og þar með hvort útfærsla
verðtryggðra neytendalánasamninga sé og hafi verið lögleg hér á landi, er því enn ósvarað, segja samtökin.///////////////////////////Þessu er ekki tekið vel af skuldurunum ,er það nokkur furða,sjá smettið á Seðlabankastjóra í báðum fréttum,þetta eina rétta leiðin sagðan,við skulum skoða hver, borgar þessum mönnum launin,eru þau ekki almanafé,Bankarnir tala einnig um að þetta sé eina leiðin að verðtryggingin haldi,þeir keyptu þessar skuldir á tombóluvirði,og lifa svo flottu lífi ,með verðtrygginguna,en ég og við sem erum í þessum samtökum H.H. vitum betur, að við getum ,aldrei borgað þetta upp þeir sem tóku þessi lán 2007 eru ekki fanir að borga niður lánið fyrr en 2030 og svo svarar bara Bankinn breytið láninu í óverðtryggt,en þar er kostnaður svo mikill,og afborgannir snar hækka,ef eitthvert vit væri í þessum hlutum,væri þeir búnir að breyta þessu í hagstæð lán,þegar ég talaði við bankann minn 2007 vildi ég taka erlent lán,en þau töldu mig ofanaf því,það er meinið ef ég ,hefði gert það væri málinu reddað,Nei samtök þarf og þau sterk/Halli gamli
Spurningum um ólögmæti enn ósvarað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Svarið mun birtast hérna, líklega eftir nokkrar vikur:
http://www.eftacourt.int/cases/detail/?tx_nvcases_pi1[case_id]=209
Góðar stundir þangað til.
Guðmundur Ásgeirsson, 28.8.2014 kl. 21:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.