Ætla að ganga frá Ríki Íslams/Stór orð af Lýðræðisríki eins og B.N.A. og Bretum!!!!


Úr myndbandinu þar sem David Haines er afhöfðaður.Ætla að ganga frá Ríki Íslams Erlent | mbl.is | 14.9.2014 | 2:04 Úr myndbandinu þar sem David Haines er afhöfðaður.

Aftaka Ríkis Íslam á hjálparstarfsmanninum David Haines hefur hleypt illu blóði í Breta.

Fyrrverandi hershöfðingjar hafa verið áberandi á fréttastofu Sky og þeirra skilaboð eru skýr. Ganga skal milli bols og höfuðs á meðlimum Ríkis Íslams.

Rétt eins og gert var við Haines.Meðal þeirra sem hafa tjáð sig um af­tök­una eru Dav­id Ca­meron, for­sæt­is­ráðherra Bret­lands, og Barack Obama, Banda­ríkja­for­seti.

Í gær­kvöldi fjallaði mbl.is um yf­ir­lýs­ingu Ca­merons sem ætl­ar að hundelta þá meðlmi Ríki Íslams sem stóðu að af­tök­unni.

Banda­ríkja­for­seti var einnig ber­orður þegar hann tjáði sig um af­tök­una. Obama sagði Banda­rík­in standa við bakið á Bretlandi á þess­um erfiðu tím­um

. Einnig að Banda­rík­in muni vinna með Bretlandi og öðrum ríkj­um sem standi að banda­lagi gegn Ríki Íslams.

„Við mun­um finna þá sem frömdu þenn­an sví­v­irðilega glæp, við mun­um tryggja að rétt­læti nái fram að ganga og ganga frá þeirri ógn sem vest­ræn­um ríkj­um staf­ar af þess­um sam­tök­um.

“ Fram­ferði þeirra, að birta mynd­bönd af af­tök­um á vest­ræn­um borg­ur­um, hef­ur orðið til þess að Vest­ur­lönd beina sjón­um sér­stak­lega að sam­tök­un­um.

Það sem sér­fræðing­ar sem rætt hafa við Sky frétta­stof­una nefna er að það verða eng­ar samn­ingaviðræður við Ríki Íslam.

Ráðist verði gegn sam­tök­un­um með loft­árás­um og af full­um þunga. Sam­tök­in séu skipu­lögð en ekki mjög tækni­lega vel út­bú­in.

Þá hef­ur verið nefnt að sam­tök­in séu búin að taka yfir mun meira svæði en þau ráða yfir og því ætti að

vera ein­fald­ara en ella að brjóta þau niður á hverj­um stað.//////////////////Þetta eru stór orð,og engum til sóma, að segja svona í hita leiksins,Er þetta heilbrigt að segja svona,nei það er það als ekki,þetta er svolítil alhæfing á þjóðflokkum,þetta gyldir als ekki um alla Íslam það er til Glæpamenn af öllum þjóðernum,og það er bara svo,en auðvitað einnig til hjá Íslam,en að tala svona og alhæfa er til skammar!!!!/Halli gamli


mbl.is Ætla að ganga frá Ríki Íslams
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband