Áfengi í lægra þrepið?///Áfengi er svo dýrt að fólk getur ekki ekki veitt sér það og drekkur bara ódýran landa!!!

Áfe
Röng tekjuskráning áfengis er vandamál.Áfengingi í lægra þrepið? Viðskipti | mbl | 17.9.2014 | 10:50 Röng tekjuskráning áfengis er vandamál. Röng tekjuskráning er stórt vandamál í veitingaþjónustu og mældist frávikið um 42% árið 2013.

Hækkun lægra þreps virðisaukaskatts og lækkun þess efra gæti hins vegar verið skref í rétta átt.

Fjármálaráðherra segir koma til greina að færa áfengi í lægra þrepið og hækka áfengisgjald á móti.

Röng tekju­skrán­ing er stórt vanda­mál í veit­ingaþjón­ustu og mæld­ist frá­vikið um fjör­tíu og tvö pró­sent árið 2013.

Hækk­un neðra þreps virðis­auka­skatts og lækk­un þess efra er skref í rétta átt til þess að bæta skrán­ingu að mati Jóns Bjarna Steins­son­ar og Árna Sverr­is Haf­steins­son­ar, höf­unda skýrslu um skattaum­hverfi í ferðaþjón­ustu.

Í rann­sókn­inni skoðuðu þeir meðal ann­ars áfeng­is­sölu á veit­inga­stöðum, krám og hót­el­um og báru sam­an við toll­skrán­ingu og töl­ur hjá inn­flytj­end­um.

Mældu þeir svo­kallað veltu­frávik, sem er upp­gef­in velta bor­in sam­an við upp­reiknað sölu­verðmæti þess áfeng­is sem vín­veit­ing­arstaðir kaupa inn.

Mæld­ist það 42 pró­sent árið 2013 og 45 pró­sent árið þar á und­an.

Í skýrsl­unni er talið að stór­an hluta veltu­fráviks­ins megi rekja til rangr­ar skrán­ing­ar áfengra drykkja í sjö pró­sent þrep virðis­auka­skatts­ins í stað 25,5 pró­sent þreps­ins, þar sem það ætti með réttu að vera. Þá er önn­ur aðferð að selja blandaða áfenga drykki í tvennu lagi; Óáfenga hlut­ann í lægra þrep­inu og áfenga hlut­ann í því efra.

Blóm­leg kaffisala á krám Jón Bjarni og Árni Sverr­ir voru með er­indi á fundi sem Fé­lag viðskipta- og hag­fræðinga stóð fyr­ir á Grand Hót­el í gær und­ir yf­ir­skrift­inni „Pína eða sjálf­stætt fram­lag - skatt­lagn­ing í ferðaþjón­ust­unni“.

Til þess að skýra frá­vikið settu þeir fram hlut­fall upp­gef­inn­ar 25,5 pró­sent veltu hjá mis­mun­andi form­um veit­ingaþjón­ustu. Færa mætti áfengi í lægra þrep virðisaukaskatts og hækka áfengisgjöld á móti.

Færa mætti áfengi í lægra þrep virðis­auka­skatts og hækka áfeng­is­gjöld á móti.

Heiðar Kristjáns­son Þar kom fram að velt­an er ein­ung­is um 31 pró­sent hjá þeim stöðum sem skil­greina sig sem krár, kaffi­hús og dansstaði en ein­ung­is 17 pró­sent hjá veit­inga­stöðum.

„Það er spurn­ing hvort þess­ir staðir séu með svona blóm­lega kaffisölu í há­deg­inu,“ sögðu þeir.

Íslend­ing­ar eru Evr­ópu­meist­ar­ar í bili á milli virðis­auka­skattþrepa og er það svo mikið að menn sjá sér mik­inn hag í því að „hliðra“ vör­um og þjón­ustu á milli skattþrepa að mati Jóns og Árna en skref í rétta átt er stigið með ætluðum breyt­ing­um á lög­um um virðis­auka­skatt.

Áfengi í lægra þrepið Þeir telja þó að ganga mætti lengra í breyt­ing­un­um.

„Við hefðum viljað sjá áfengi fara í neðra þrepið og að áfeng­is­gjöld­in yrðu frek­ar hækkuð á móti,“ sögðu þeir og bættu við að erfiðara væri að kom­ast hjá skatt­in­um með þeim hætti. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­málaráðherra, talaði einnig á fund­in­um, og tók í sama streng.

Fjármálaráðherra Bjarni Benediktsson Fjár­málaráðherra Bjarni Bene­dikts­son mbl.is/​Krist­inn Ingvars­son „Alls staðar þar sem rang­ir hvat­ar birt­ast í skatt­kerf­inu þurf­um við að staldra við.

Töl­urn­ar benda til þess að verið sé að fara á skjön við regl­urn­ar í veit­inga­hús­a­starf­semi og ég er sam­mála því að all­ar þess­ar regl­ur ættu að taka til­lit til þess hvernig lík­legt sé að fólk hegði sér,“ sagði hann.

Dýra rauðvínið til­tölu­lega ódýrt Þá sagði hann það vera hug­mynd til skoðunar að færa áfengið í neðra þrepið og breyta áfeng­is­gjald­inu á móti.

„Ég er hins veg­ar ekki bú­inn að átta mig á því hvað þetta þýðir fyr­ir „gjald­astrúkt­úr­inn“ og það þyrfti að skoða það.

Þá á ég til dæm­is við hvernig það kæmi út fyr­ir ólíka verðflokka áfeng­is, en í dag er ódýrt vín til­tölu­lega dýrt miðað við í öðrum lönd­um vegna þess að áfeng­is­gjaldið er föst krónu­tala og tek­ur ekki til­lit til þess hversu dýr t.d. rauðvíns­flask­an er og verður þannig til þess að dýr­ara vínið er til­tölu­lega ódýrt.

Það þarf aðeins að skoða þau mál,“ sagði Bjarni./////////////////////Skoða þetta og hitt er svo að hæla sér svo af því hvað fljótt það kom,aldrei eins fljótt!! en er ekki betra að skoða, það betur hvað gjört ,er en að fara á móti ,megins þorra fólksins ,og þenja svo talfærin dag eftir dag að verja þessar aðfarir,sem eru bara glórulausar,og þær íþyngjandi fyrir mjög svo marga,sennilega allra sem mynntar tekjur hafa,það sjá allir sem vita að þessir menn núna opna sig til að verja sig og hina ríku það er alveg skírt,þeir borga mynna til þjóðfélagsins en við þegar upp er staði,Auðlindagjaldið lagt niður ,og efra þrep skattsins lagt niður,og svo komið með dæmi um einhverar eldri konur sem urðu að selja eignir yfir 100 milljónir,Svo koma þessir menn   og segja okkur bara að halda kjafti,!!!við verðum að standa saman hvar í flokki sem við erum og leggjast á að þessi aðferð þeirra,mistakist og vel það,að koma þara út úr skápnum til að verja þetta að þá hygla bara þeim efnameiri er alveg út úr kú!!!Að Framsóknarflokks eru ekki þá samála keyptir til hlýðni,við sem erum að berjast í bökkum með að búa heima sem lengst,heima í nokkuð of stærri íbúð sem er slett inn gengið,en ef við værum á heimili  aldraðra kostaði það 721 þus á  hvort okkar,og þá sjá allir hvort við spörum ekki,þvi opinbera mikið en samt er á okkur ráðist ,og allt er á sömu bókina lært,við erum úrhrak þegar við erum orðin gömul,þetta er stefna míns flokks,ég sé ekkert annað en að við Eldri Borgara verðum að bjóða fram næst með um 35% fylgi ef við stöndum saman//Halli gamli


mbl.is Áfengi í lægra þrepið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045793

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband