Ótrúlegt skilningsleysi//Svo maður tali nú heynt út er þetta mjög rétt,og vekalýðsfélögin,taki sig einnig á

„Ótrú

Fjárlagafrumvarp næsta árs. Otrúlegt skilningsleysi“ Innlent | mbl.is | 26.9.2014 | 16:48 Fjárlagafrumvarp næsta árs. Verkalýðsfélag Suðurlands mótmælir harðlega því sem það kallar aðför að launafólki sem birtist í nýju fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar.

Verkalýðsfélagið sakar stjórnvöld um skilningsleysi gagnvart kjörum almennings.

Fram Kemur í álykt­un frá VLFS, að gagn­rýn­ir hækk­un virðis­auka­skatts á mat­væli, skert rétt­indi at­vinnu­lausra, lækk­un fram­lags rík­is­ins til jöfn­un­ar á ör­orku­byrði Líf­eyr­is­sjóða „á sama tíma og dælt er pen­ing­um inn til op­in­beru sjóðanna sem þýðir enn meiri ójöfnuð á milli kjara al­mennra og op­in­berra Líf­eyr­is­sjóða.

Þetta legg­ur aukn­ar byrðar á lág­tekju­hópa og sýn­ir að þeir eru ekki í for­gangs­hópi rík­is­stjórn­ar­inn­ar,“ seg­ir í álykt­un­inni.

„Það er ótrú­legt skiln­ings­leysi ríkj­andi við gerð þessa fjár­laga­frum­varps á kjör­um al­menn­ings.

Með þessu frum­varpi er rík­is­stjórn­in að gefa sam­starfi við verka­lýðshreyf­ing­una langt nef. Við þess­ar aðstæður verður verka­lýðshreyf­ing­in að svara þeim skila­boðum skýrt og búa sig und­ir harðari deil­ur við gerð kjara­samn­inga en verið hafa í lang­an tíma.

VLFS árétt­ar að fé­lög inn­an ASÍ hafa sýnt mikla ábyrgð við gerð samn­inga á und­an­förn­um árum. Það get­ur ekki verið rétt­læt­an­legt að þau beri hana ein í þjóðfé­lagi sem vill byggja á jöfnuði og sann­girni fyr­ir þegna sína,“ seg­ir enn­frem­ur.kerðing­um sem fram koma í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­inn­ar er harðlega mót­mælt í álykt­un sam­bands­stjórn­ar­fund­ar Samiðnar sem fram fór í dag.

Þar kem­ur fram að þrátt fyr­ir yf­ir­lýs­ing­ar stjórn­ar­inn­ar um mót­vægisaðgerðir sem bæta eigi hag heim­ila sé ljóst að þær snerti heim­il­in með mis­mun­andi hætti og komi síst tekju­lægri heim­il­um til góða.

Sér­stak­lega er mót­mælt hækk­un lægra virðis­auka­skattþreps­ins úr 7% í 12% sem skili rík­is­sjóði 11 millj­örðum króna og fjár­magni þannig nán­ast all­ar breyt­ing­ar á hærra þrepi virðis­auka­skatts­ins og niður­fell­ingu á vöru­gjöld­um.

Enn­frem­ur er meðal ann­ars mót­mælt skerðingu á rétti til at­vinnu­leys­is­bóta með stytt­ingu bóta­tíma­bils og tak­mörk­un á vinnu­markaðsúr­ræðum at­vinnu­lausra.

Þá er því mót­mælt að ekki sé tryggt fjár­magn til þess að bregðast við aukn­um vanda í heil­brigðis­kerf­inu og þátt­taka sjúk­linga í lyfja­kostnaði sé auk­in, tekju­teng­ing­ar barna­bóta séu aukn­ar og út­gjöld til mála­flokks­ins séu lægri en 2010, að hús­næðisstuðning­ur sé lækkaður að raun­gildi og viðmiðun­ar­fjár­hæðir vaxta­bóta séu óbreytt­ar fimmta árið í röð þrátt fyr­ir að al­mennt verðlag hafi hækkað og kostnaður við hús­næði stór­auk­ist.

Fram kem­ur að komi of­an­greind atriði til fram­kvæmda sem og önn­ur sem nefnd eru í álykt­un­inni hafi „orðið mik­il vatna­skil í sam­skipt­um stjórn­valda og stétt­ar­fé­lag­anna sem mun leiða til harðari árekstra í tengsl­um við gerð kjara­samn­inga en þekkst hef­ur hér á landi síðustu ára­tugi.

“ Minnt er á að við gerð síðustu kjara­samn­inga hafi verið tekið hönd­um sama um að koma á efna­hags­leg­um stöðug­leika sem hafi skilað betri ár­angri en von­ast hafi verið eft­ir.

Óbreytt fjár­laga­frum­varp ógni þeim ár­angri.

„Sam­band­stjórn­ar­fund­ur Samiðnar skor­ar því á rík­is­stjórn Íslands að end­ur­skoða fram­komið fjár­laga-­

frum­varp og taka upp skil­virkt sam­ráð við stétt­ar­fé­lög­in og stuðla þannig að auk­inni sátt í sam­fé­lag­inu í

gna bbesturstað þess að efna til ófriðar.“////////////////////Þetta er vel mælt ,og við sem setjum út á veraklíðsforustuna,segjum já takið vel á málum það er tími til komin,við skulum bara vera sammála að þessi ríkisstjórn, er ekki okkur væn sem minna höfum  als ekki,skrítið að sjálfstæðimaður skuli tala svona en sannleikurinn og er sannleikurinn er sagna bestur og við skulum þessa vegna  vona að Verkalýðsfélögin standi nú saman um að leist þetta mál,þeir virðast ekki skilja neitt fyr en skellur í og það verður eflaust gert,svo um munar,ef þessi ríkisstjórn vill að allt logi í verkföllum .þá verður hún ekki langlíf,það er sama hvað hver segir að þetta taka þeir ekki af okkur,það er að segja réttin sem við höfum!!!!/Halli gamli


mbl.is „Ótrúlegt skilningsleysi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045676

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband