Geir: Verðum að bregðast við//Haltu mér sleptu mér,tekið á þetta!!!!


Undirbúningur ebóluteymis hér á landi er hafinn að sögn...Geir:Verðum að bregðast við Innlent | mbl | 18.10.2014 | 13:11 Undirbúningur ebóluteymis hér á landi er hafinn að sögn..

. Geir Gunnlaugsson, landlæknir, segir að ef ekkert er gert gætum við staðið frammi fyrir því að í lok árs hafi 50-100 þúsund manns látist af völdum ebólusmits.

Hann segir undirbúning við myndun ebóluteymis vera í gangi hér á landi svo hægt sé að taka á móti Rætt var við hann í Viku­lok­um á Rás 1 þar sem hann sagði aldrei of seint að bregðast við ástand­inu.

„Við verðum að bregðast við því þessi sjúk­dóm­ur sýn­ir öll ein­kenni far­ald­urs þar sem fjöldi ein­stak­linga tvö­fald­ast í hverri viku.

“ Þá seg­ir Geir að ef ekk­ert er gert gæt­um við staðið frammi fyr­ir því í lok árs að 50-100 þúsund manns séu látn­ir af völd­um ebólu-sýk­ing­ar. Gera þarf ráð fyr­ir ebólu­smit­un á Íslandi Und­ir­bún­ing­ur við mynd­um ebólu­teym­is er í gangi að sögn Geirs

og er hann full­viss um að ís­lensk stjórn­völd og heil­brigðis­starfs­fólk geti tekið við sjúk­ling­um ef þeir skyldu koma. Geir Gunnlaugsson landlæknir.

Geir Gunn­laugs­son land­lækn­ir. mbl.is/Ó​mar Óskars­son Eng­in þekkt ebólu­smit

hafa komið upp hér á landi en gera verður ráð fyr­ir að slíkt gæti gerst.

Íslend­ing­ar eru á svæðinu og gætu hugs­an­lega komið til lands­ins, auk þess sem mögu­leiki sé á því að einn af þeim tugþúsund flug­f­arþega sem fara um ís­lenskt flug­um­sjón­ar­svæði veikist og flug­vél þurfi því að lenda hér.

Geir seg­ir jafn­framt að það sé ekki rétt að það sé hættu­legt að vera í allri Vest­ur Afr­íku. „Það eru ekki bara þessi svæði sem ein­angr­ast, því fólk vill ekki fara þangað.

“ Tel­ur hann að byggja þurfi upp alþjóðlegt átak til að styðja þau ríki sem eiga landa­mæri að þess­um ríkj­um; Líb­eríu, Síerra Leóne og Gín­eu. Gísli Rafn Ólafs­son, Íslend­ing­ur­inn sem nú dvel­ur í Líb­eríu til að aðstoða heima­menn í bar­átt­unni gegn ebólufar­aldr­in­um, mun ekki koma heim til Íslands fyrr rúm­um þrem­ur vik­um eft­ir að hann fer frá Líb­eríu.

Gísli skrif­ar færslu á Face­book-síðu sína en þar seg­ir hann að hon­um hafi borist til eyrna að ákvörðun hans um að fara til Líb­eríu hafi valdið óánægju inn­an heil­brigðis­geir­ans hér á landi,

þar sem ekki hafi verið búið að koma á viðbragðsáætl­un fyr­ir ebólu á Íslandi.

Með færsl­unni seg­ist hann vilja varpa ljósi á málið. Kem­ur ekki beint heim til Íslands Gísli Rafn seg­ist hafa vitað að á Íslandi væri eng­inn spít­ali og eng­in aðstaða til að taka við sjúk­ling­um með ebólu.

Því hafi sú ákvörðun verið tek­in að hann kæmi ekki til Íslands fyrr en að minnsta kosti rúm­um þrem­ur vik­um eft­ir að hann fer frá Líb­eríu, en lengsti tími þar til ein­kenni koma fram er 21 dag­ur.

Hann seg­ir að flest­ir fái aft­ur á móti ein­kenni inn­an átta daga.

Mun Gísli Rafn dvelja á sjúkra­húsi í Belg­íu. „Þess­ar ákv­arðanir voru tekn­ar í sam­ráði við ráðlegg­ing­ar CDC (Smit­sjúk­dóma­stofn­un­ar Banda­ríkj­anna) um hvernig þeir sem starfa við hjálp­ar­starf eiga að hegða sér,“ skrif­ar Gísli Rafn.

Ræddi við lækna áður en hann fór Hann seg­ist einnig hafa rætt við lækni hér á landi áður en hann fór út sem hafi veitt hon­um ráðlegg­ing­ar en aldrei hafi komið til tals að banna hon­um að fara til Líb­eríu.

Þá seg­ist hann einnig hafa rætt við er­lend­an sér­fræðilækni sem taldi ákvörðunin mjög ásætt­an­lega. Lækn­ir­inn er í dag­legu sam­bandi við Gísla Rafn og fylg­ist með hon­um.

Gísli Rafn hef­ur búið í er­lend­is í fjög­ur ár og er ekki kom­inn inn í sjúkra­trygg­inga­kerfið hér á landi.

Þar þem hann væri þá ótryggður hvar sem er í heim­in­um ef eitt­hvað kæmi upp á tóku hjálp­ar­sam­tök­in sem Gísli Rafn starfar hjá dýra sér­hæfða sjúkra­trygg­ingu til að geta greitt all­an hugs­an­leg­an lækn­is­kostnað.

Seg­ist taka meðvitaðar ákv­arðanir um áhættu „Ég er ekki að setja ís­lenska heil­brigðis­kerfið á haus­inn ef eitt­hvað kæmi upp.

Ég er ekki að koma til Íslands í mánuð frá heim­komu frá Líb­eríu.

Ég er ekki að setja vini eða fjöl­skyldu í hættu.

Ég er að fara eft­ir fyr­ir­mæl­um virt­asta sótt­varn­araðila í heim­in­um.

Ég er í sjálf­skipaðri sótt­kví í landi sem er til­búið að taka á við ebólu.

Ég er með aðgang að sér­fræðilækni 24/​7 til að fá fag­lega ráðgjöf. Ég tek meðvitaðar ákv­arðanir um

áhættu og hjálpa þeim sem eru í neyð,“ skrif­ar Gísli Rafn.//////////////Maður er búin að skrifa  um þetta Áðu,r og við Íslendingar og Landlæknir sem er eins og hálfgerður trúður að mér finnst,á löngu að vera búin að taka völdin ásamt Haraldi Brim og Heilbryggðisráðherra okkar er þarna í þessu einnig en sínir því ekki er samt valdamestur í þessu,eins og ég sagði er þetta of seint í rassinn gripið,og alvarleikin bíður okkar eins og annarra,en betra seint en aldrei,ég segji hiklaust að þessir menn hafa sofið á verðinum ekki spurning!!!/Halli gamli 


mbl.is Geir: Verðum að bregðast við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Ég er sammála þér í þessum pistli Halli minn.

Hvað var það raunverulega, sem gerði Geir Gunnlaugsson hæfan til að vera landlæknir á Íslandi? Og hvers vegna er hann enn landlæknir á Íslandi? 

Hann ætti að rifja upp siðferðisbrenglaða afstöðu sína til sílikon-brjóstaaðgerðanna hættulegu. Þar þótti honum réttast að þagga niður sannleikann!

Allavega áður en hann spilar sig traustsins verðan í þessu pólitíska bólusetningar/lyfja-markaðsetningar-e-bólumáli, og siðferðisbrenglunar guðlausra vísinda viðskiptaheims skurðgoðatortímandi.

Sóttvarnarlæknirinn fullyrti án nokkurra eftirmála á ábyrgðarleysi sínu, að svínaflensubóluefnið væri ekki skaðlegt, og væri jafnvel nauðsynlegur rándýr útgjaldaliður hjá bankarændri þjóð í sárum! Drómasýki-sjúklingar þeirrar bólusetningar voru í raun andlega og tilfinningalega drepnir, með fullu leyfi þessara óábyrgu, hættulegu og marklausu embættismanna. Ég veit ekki hvað vakti fyrir þeim embættismennum, en ábyrgðarleysi þeirra er vítavert brot á þjónustu við saklausan almenning. Í Noregi og víðar eru stjórnvöld farin að borga skaðabætur til drómasjúklinga, vegna þessarar hættulegu og gagnslausu bólusetningar, sem ollu drómasýki! Er það planið að fólk deyi andlega og tilfinningalega? Og til hvers? Til að sinna tilraunavísinda-háskólakennslu umfram sjúklinga?

Þetta er enn ein sönnun þess að dómskerfisvanrækslan og siðleysið er að drepa allt og alla, bæði hér á landi og í öðrum mafíudómstólastýrðum samfélögum og ríkjum veraldar. Reynsla landlæknis frá Afríku er greinilega á bananalýðveldis-siðferðisplani, eða reyndar enn verra en það, því apa-siðferðisplanið er í frumskógarlögmálinu miklu siðlegra.

Það hefur verið þessara embættismanna lausn, að hækka lögboðna lyfja og læknisþjónustu hjá fátækum og varnarlausum sjúklingum, til að fjármagna mafíuplan siðlausra villimanna valdakerfisins. Og lækka laun hjá heilbrigðisstarfsfólki á verkagólfinu. Forstjóralaun á ofurprósentum eru vinsæl hjá lyfjamafíu heimsveldisræningjanna, og verða enn vinsælli með hverju árinu! Fleiri munu deyja úr fátækt og heimilisleysi, heldur en e-bólu, hvað sem þessu embættisliði verður stjórnað til að gera, ef enginn tekur af skarið!!!  

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 18.10.2014 kl. 17:08

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þakka þetta vinkona mín Anna Sigríður,við erum þarna algjörlega sammála,og þessi maður er ekki launana sinna verður!!!!Kveðja

Haraldur Haraldsson, 18.10.2014 kl. 20:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045797

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband