26.11.2014 | 17:24
Vændiskaupamál fyrir luktum dyrum/Eru menn ekki ennþá farnir að sjá þessa vitleisu og lofa vændi en ekki má kaupa það,þetta er arfavittlaust!!!!
Vændiskaupamál fyrir luktum dyrum Innlent | mbl.is | 26.11.2014 | 15:15 Mynd 571214 Hæstiréttur hefur komist að þeirrri niðurstöðu að vændiskaupamál sem höfðuð eru hér á landi skuli vera háð fyrir luktum dyrum.
Einn af þremur hæstaréttardómurum skilaði séráliti og taldi ekki efni til að víkja frá þeirri meginreglu að þinghöld skuli haldin í heyranda hljóði
.Með niðurstöðu sinni hefur Hæstiréttur staðfest úrskurð Héraðsdóm Reykjavíkur um sama efni.
Í hæstaréttardómnum segir að með hinum kærða úrskurði hafi verið komist að þeirri niðurstöðu að þinghöld í málinu skyldu vera lokuð til hlífðar brotaþola, sem varnaraðili væri sakaður um að kaupa vændi af.
Þá var í úrskurðinum vísað til stöðu seljanda í viðskiptum sem þessum og þess yfirlýsta markmiðs löggjafans að ábyrgðin á viðskiptunum hvíldi eftirleiðis á herðum kaupanda en ekki seljanda.
Hæstiréttur féllst á þá niðurstöðu hins kærða úrskurðar að með tilliti til hagsmuna þeirrar konu, sem málið varðar, sé fullnægt skilyrðum a. liðar 1. mgr. 10. gr. laga nr. 88/​2008 um að þinghöld í málinu verði háð fyrir luktum dyrum til hlífðar henni.
Tilgangi löggjafans ekki náð Hæstaréttardómarinn Guðrún Erlendsdóttir skilaði séráliti sem stangast á við niðurstöðu þeirra Helga I. Jónssonar og Benedikts Bogasonar.
Guðrún vísar til þess að í greinargerð með frumvarpi sem gerði kaup á vændi refsiverð komi fram að það sé hlutverk löggjafans að sporna við sölu á kynlífi enda ekki ásættanlegt að líta á mannslíkamann sem söluvöru.
Gengið hafi verið út frá því að ábyrgðin á viðskiptunum hvíli á herðum kaupandans en ekki seljandans.
Þá segir Guðrún: Tilgangurinn með framangreindu ákvæði er að sporna við sölu á kynlífi.
Þeim tilgangi verður að mínu mati frekar náð með því að halda þinghöld í slíkum málum fyrir opnum tjöldum heldur en að halda þau fyrir luktum dyrum.
Meginregla íslensks réttarfars er að þinghöld séu háð í heyranda hljóði, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar og 1. mgr. 10. gr. laga nr. 88/​2008 um meðferð sakamála, og verða ríkar ástæður að vera fyrir hendi til að víkja frá henni.
Í máli þessu þykja ekki efni til að víkja frá þessari meginreglu og tel ég því að þinghöld í
málinu skuli haldin í heyranda hljóði.//////////////////Ein elsta atvinnugrein heimsins er sala á kynlífi,og sitt sinnist hverjum,Femínistar í Íslandi fara sínu fram og vildu Sænsku leiðina að banna vændiskaup en löglegt hjá konum að stuna þetta,þetta vara öfugt með Rjúpuna mátti veiða hana en ekki selja,þessi mál eru fáránleg,annað hvort er bannað vændi almennt bæði að kaupa og selja eða ekkert annað ef menn og konur vilja hafa þetta undirgrund allt í felum og svo framvegis,kynhvöt er eðlileg og það hjá báðum kynjum,svo þessi vitleysa er ekki vatni haldandi ef bæði eru samþykkt,þetta er bara skömm og ekkert annað,breytum þessu!!!!/Halli gamli
Vændiskaupamál fyrir luktum dyrum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.5.): 1
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 49
- Frá upphafi: 1045715
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 46
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.