20.12.2014 | 15:38
Olíufélögin taka hluta verðlækkunar,þetta er gert og ekkert ,og ekkert er hægt að gera,bara einn og einn dagur með áfslætti sem er sennilega raun verð!!!
Olíufélögin taka hluta verðlækkunar Innlent | mbl | 20.12.2014 | 14:00 Íslendingar setja um 340 milljón lítra af eldsneyti á bíla...
Eldsneytisverð hefur lækkað mikið undanfarna mánuði. +
Þótt flestir fagni eflaust minnkandi útgjöldum virðast olíufyrirtækin taka til sín nokkurn hlut lækkunarinnar þannig að hún skilar sér ekki að fullu út í verðlag til almennings.
Þannig hefur álagning olíufélaganna aldrei verið hærri en í desember.Þótt flestir fagni eflaust minnkandi útgjöldum og minna gjaldeyrisútflæði virðast olíufyrirtækin taka til sín nokkurn hlut lækkunarinnar þannig að hún skilar sér ekki að fullu út í verðlag til almennings.
Álag olíufélaganna hækkað um 5-6 krónur þrátt fyrir mikla lækkun Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) hefur undanfarin ár tekið saman tölur um eldsneytisverð og álögur olíufélaganna. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB segir í samtali við mbl.is
að ljóst sé að þótt útsöluverð fari lækkandi séu olíufélögin að taka meira í sinn hlut nú en fyrir nokkrum mánuðum.
Hann segir engar forsendur fyrir þessari hækkun á hlut olíufélaganna, sérstaklega í ljósi þess að stór útgjaldaliður þeirra sé vegna flutnings og lækkandi olíuverð ætti að lækka þann kostnaðarlið.
Á þessu ári fór olíuverð á heimsmarkaði hæst í júní en hefur síðan lækkað um meira en 36%. Runólfur segir að þá hafi uppreiknað verð á heimsmarkaði í krónum talið verið 89,60 krónur á hvern lítra.
Á miðvikudaginn í þessari viku var verðið komið niður í 57,50 krónur og síðan þá hefur það lækkað enn frekar.
Álögur olíufélaganna hafa hækkað talsvert á síðustu þremur mánuðum þrátt fyrir að olíuverð hafi farið ... Álögur olíufélaganna hafa hækkað talsvert á síðustu þremur mánuðum þrátt fyrir að olíuverð hafi farið lækkandi og þar af leiðandi stór kostnaðarliður í rekstir félaganna þegar kemur að flutningi. mbl.is/​Arnaldur Halldórsson Ekki er þó hægt að miða bara við þessa tölu, heldur þarf að gera ráð fyrir sköttum hér á landi. Þegar þeir hafa verið dregnir frá stendur eftir flutningur og annar kostnaður olíufélaganna.
Þessi álagning var að meðaltali 38,10 króna frá september í fyrra til september á þessu ári. Í október fór eldsneytisverð hér á landi að lækka í kjölfar lækkandi verðs á heimsmarkaði. Samkvæmt tölum FÍB var meðalálagning olíufélaganna í september 39,58 krónur á hvern lítra, en í október var hún komin upp í 41,50 krónur.
Aðeins einu sinni frá árinu 2005 hafði álag á bensín farið yfir 40 krónu markið áður. Það var í mars í fyrra, en strax í næsta mánuði lækkaði álagið aftur og hélst undir 40 krónum þangað til í október síðastliðinn.
Í nóvember hélst álag félaganna enn yfir þessu marki og var 41,03 krónur. Fyrstu tvær vikurnar núna í desember var svo hlutur olíufélaganna af hverjum lítra 44,83 krónur og hefur það aldrei verið svo hátt áður.
Aukin álagning allt að 2 milljarðar á ársgrundvelli Svipaða sögu er að segja með dísilolíu, en álag olíufélaganna fyrstu tvær vikurnar í desember var 45,45 krónur á hvern lítra. Hafði álagið fyrir október aldrei farið yfir 41 krónu.
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað um rúmlega 36% á síðustu mánuðum. Hækkun Bandaríkjadals hefur vegið ... Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað um rúmlega 36% á síðustu mánuðum. Hækkun Bandaríkjadals hefur vegið upp á móti þeirri lækkun.
mbl.is/​Hjörtur Runólfur bendir á að hér á landi séu árlega seldir 340 milljón lítra af eldsneyti á bíla landsmanna. Hver króna í aukna álagningu þýðir því 340 milljónir auk virðisaukaskatts og því er um verulegar fjárhæðir að ræða.
Ef álagning desembersmánaðar helst áfram er því um að ræða 1,7 til 2 milljarða aukalega í álögur fyrir bílaflota landsmanna á árs grundvelli.
Runólfur segist ekki taka afstöðu til þess hvort álagið sé hátt eða lágt hér á landi, en í Svíþjóð er það þó aðeins um helmingur þess sem gerist hér á landi.
Hann segir þó umhverfið allt öðruvísi og flutningar til og frá landinu kosti sitt.
Það veki þó upp spurningar þegar álag félaganna hækki hjá öllum á sama tíma og stór kostnaðarliður við flutninga lækki gífurlega. Oft fljótari að hækka en að lækka Þá nefnir hann einnig að olíufélögin séu oftast fljótari til að hækka verð en að lækka það þegar heimsmarkaðsverð breytist.
Þetta hafi rannsóknir sem unnar hafi verið við háskóla landsins sýnt fram á.
Hann segir viðbrögð olíufyrirtækjanna ekki hafa verið mikil hingað til.
Einu móttökin frá fyrirtækjum á markaði hér er að þetta sé mýta, en engar tölulegar staðreynd-
ir, segir Runólfur./////////////////Þetta er ekki pólitík ,þetta er svindill sem við látum yfir okkur ganga,og við Ísendingar erum alltaf linir við að taka á þessu,hætta að kaupa bensín og Olíur um stund,og gera mikið mótmæli,að hugsa sér að þetta sem í vísitölunni og ætti að lækka lánin okkar en gerir það als ekki,bankarnir með sömu tölu þó þó verðbólgan sé komin að núllinu,er hægt að skíra það,nei þetta er bara svindl á svindill ofan,er nema von að sagt sé að Spillingin sé á fullu ennþá!!Og sagt að við höfum lært af Kreppunni,það er ná bara alls ekki!!En áfram með Olíufélögin þau eru að plata okkur í botn einnig,við eigum samtök sem ég er á F.Í.B. og ég vil að við herðum sóknina fyrir okkur og Einnig að skattur okkar á bifreiðar fari í vegina,og við stór R.víkur svæðinu fáum þetta af stórum hluta að gera hér almennilega brautir um borgina með mislægum gatnamótum,það væri hægt að koma í veg fyrir megin þorra slysa,eins með göngu og Hjólreyðarstíga,Við verum að hafa þarna reglu á að vernda gangandi fólk Hjólreyðafólk og ekki síst Bilana okkar sem við kaupum dyrum dómum og skattur er þar um helmigur Einnig skattur á eldneytið,svo þessi þjófnaður Ríkisins á þessu í annað en vegi er bara spilling og ekkert annað,Við erum nú komin að jólum og Jólagjöfin til okkar eru bara hækkanir,á öllu nema laununum,hvernig á þetta að geta gengið að fjarlægja alltaf meir og meira launin milli starfa og gera úr þessu 3 hópa Fáttæka og svo millistétt og svo Ríka fólksins//Halli gamli
Olíufélögin taka hluta verðlækkunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:14 | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 1046583
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.