Hvalur 8 í slipp /Gott mál !!!!!!

Hvalur 8 er komin af stað,ekki langt bara i slipp,hefur ekki farið það i tvö ár,það er gaman að þetta skuli verða komið af stað!!!Hvalur 9 fór i fyrra og verður fljótlega klár,þetta vekur manni vonir og maður fylgist vel með,eins og i gamla daga/Halli gamli
mbl.is Hvalur 8 í slipp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, mér sem gömlum sjómanni sem er" búinn að hengja stakkinn á snaga" finnst það gleðitíðindi að Kristján skuli vera að starta hvalveiðum á ný og nota þessi öldnu skip til veiðanna. Ætli þetta séu ekki einu gufuknúnu veiðiskipin sem finnast hér í norður höfum, og jafn vel í öllum heiminum. Ríkir kallar víða að væru eflaust tilbúnir af fá að fara túr á svona skipi, og skoða hvali frá sjónarhorni veiðimannsins. Hvalveiðar í sumar skapa mikla og velborgaða vinnu í Hvalfirði og á Akranesi, eins og í gamla daga! Hvalurinn verður frystur þar, en skorinn í Hvalstöðinni þar fer úrvinnsla annarra hluta en kjötsins fram. Þar verður líka einn fjölmennasti viðkomustaður ferðafólks hér á SV-landi meðan hvalskurður stendur yfir. Og svo geta veitingahúsin boðið túristunum mat sem þeir fá ekki annarsstaðar, hvala þetta og hvala hitt, og "hvalavinir" sem koma svangir úr skoðunarferðum á sjó og landi eru sólgnir í lostætan bita af þessum stóru skepnum. Úlfar Eysteinsson matbjó á síðasta sumri kjöt af 4 Hrefnum ofan í gesti sína á veitingastað sem tekur 55 í sæti, svo það er ekki skortur á þeim sem vilja snæða hvalkjöt. Japanskir vilja þetta hrátt, t.d. með soju og engifer. Ég þekki það eftir dvöl með þeim. Hvalaskoðunarútgerðir reka áróður á móti veiðum með skrítnum rökum. Hvernig hefur það áhrif á hvalaskoðun frá Húsavík, ef skotinn er hvalur djúpt vestur af Öndverðarnesi, ég spyr?? Þetta er hægt að bera á borð fyrir auðtrúa sakleysingja sem öllu trúa, en ekki fyrir þá sem stundað hafa sjó áratugum saman, sér til lífsviðurværis. Það er feikna magn af þessum kvikindum í hafinu, og af nógu að taka!!

Stefán Lárus Pálsson (IP-tala skráð) 24.2.2009 kl. 16:46

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þakka fyrir þetta ,það er gott að einhver skilur okkur sem á þessu lifðum og getum sem betur fer ennþá/Aftur þökk /Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 24.2.2009 kl. 16:54

3 identicon

Hvalkjöt er eitrað, vinur. Það er ekki mönnum bjóðandi.

Halldór Valur Sæmundsson (IP-tala skráð) 24.2.2009 kl. 16:56

4 Smámynd: Árni Sigurður Pétursson

Miðað við fréttina þá fór Hvalur 9 í slipp 2006

og Hvalur 8 ekki síðustu 20 árin.

en Halldór Valur, hvaða upplýsingar hefur þú fyrir þér að hvalkjötið sé eitrað ?

vegna þess að ég borðaði nú eitthvað af því í fyrra og er enþá á lífi og ekki kennt mér meins.

Árni Sigurður Pétursson, 24.2.2009 kl. 17:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 1045679

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband