MP banki eignast SPRON,er það ekki gott mál!!!!!!


MP banki eignast SPRON
Viðskipti | mbl | 30.3.2009 | 16:30
Skilanefnd SPRON samþykkti rétt í þessu tilboð MP banka í útibúanet og vörumerki SPRON og Netbankann, nb.is Margeir Pétursson, stjórnarformaður MP banka, segir að hægt verði að tryggja að minnsta kosti 45 störf með þessu.
Margeir ætlar að viðhalda vörumerki SPRON, en fyrirtækið nýtur mikillar velvildar almennings og hefur mælst hátt í Íslensku ánægjuvoginni, sem mælir afstöðu almennings til fyrirtækja, undanfarin ár. MP sækir nú inn á viðskiptabankamarkaðinn, en fyrirtækið fékk viðskiptabankaleyfi á síðasta ári.

Margeir Pétursson. mbl.is/Kristinn

Hlynur Jónsson, formaður skilanefndar SPRON, segir að niðurstaðan sé mjög jákvæð fyrir skilanefndina. Tekist hafi að bjarga verðmætum og tryggja hagsmuni þeirra starfsmanna sem halda vinnunni.

Kaupverð hefur ekki fengist upp gefið, en það verður útlistað nánar í fréttatilkynningu frá skilanefndinni síðar í kvöld.

Fyrir helgi höfðu sextán aðilar lýst yfir áhuga á að kaupa einstakar einingar sem tilheyrðu SPRON. Meðal þeirra var færeyski bankinn Føroya Bank og VBS fjárfestingarbanki, auk MP banka.

Allar innstæður hafa færst til Nýja Kaupþings og hefur átt sér stað fullkomin eignayfirfærsla innstæðna. Þeir sem voru í viðskiptum við gamla SPRON eru í reynd viðskiptavinir Kaupþings í dag.///////
Þetta er bara gott að áliti minu/vonandi að þetta verði til góðs og þetta faris em fyrst af stað/Halli gamli


mbl.is MP banki eignast SPRON
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Nú ætla ég að hemja tortryggnina, já ég held að þetta sé gott mál. Ef hægt er að nota orðið gott svona yfirleitt

Finnur Bárðarson, 30.3.2009 kl. 16:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 1045633

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband