Áhugi á samstarfi//mikið gott mál sem við eigum að taka þátt í !!!!!


Össur og Obama.Barack Obama Bandaríkjaforseti lýsti miklum áhuga á nánara samstarfi Íslands og Bandaríkjanna á sviði jarðhitavinnslu á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem haldinn var Strassborg-Kehl um helgina. Obama átti viðræður við Össur Skarphéðinsson, utanrí
Obama sagði ríkisstjórn sína mjög einbeitta í því að þróa endurnýjanlega orkugjafa til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og skapa ný græn störf.

Áður en leiðtogafundinum lauk útnefndi Obama forseti einn af helstu ráðgjöfum sínum sem sérstakan tengil skrifstofu sinnar í Hvíta húsinu við Ísland á þessu sviði.

Íslendingum þakkað frumkvæðið

Í ræðu á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Strassborg-Kehl um helgina lagði Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra áherslu á að við þróun nýrrar framtíðarsýnar bandalagsins yrði sérstaklega tekist á við vaxandi mikilvægi norðurslóða og heimskautasvæðanna.

Össur benti á að vegna hlýnunar loftslags myndi innan skamms opnast skipaleið milli Kyrrahafs og Atlantshafs. Í kjölfarið myndu stórauknir vöruflutningar milli heimsálfanna hefjast um Norður-Íshafið.

Sömuleiðis myndi bráðnun heimskautaíssins opna ný svæði þar sem líklegt væri að vinnsla náttúruauðlinda, svo sem olíu og gass hæfist í framtíðinni. Össur varaði við því að ýtt yrði undir hernaðarleg umsvif á norðurslóðum en kvað nauðsynlegt að bandalagsríkin byggju sig undir frekara hlutverk á norðurslóðum í tengslum við aukna umferð og nýtingu svæðanna á næstu áratugum.

Í lokaályktun fundarins er Íslendingum sérstaklega þakkað frumkvæði í umræðum um öryggi á norðurslóðum.

Þetta er hið besta mál og við eigum að taka þátt i þessu og bjóða Bandarikjaforseta Obama hingað til viðræðna um norður  slóðir og Jarðvarma og annað sem  við eigum sameiginlegt,þetta er mikið trúverðugra en að vara með ESB í þessu,svo nátturelag eins og maður hefur áður sagt Dollar fyrir okkur!!!!!!! /Halli gamli


mbl.is Áhugi á samstarfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Össur rokkar!

G.

Gunnar (IP-tala skráð) 6.4.2009 kl. 01:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045690

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband