Takk fyrir, búið/Segja fleiri,þó fyrr hefði verið!!!!

Innlent | mbl.is | 17.4.2009 | 20:48
Fundum Alþingis var frestað í kvöld fram yfir kosningar. „Takk fyrir, búið," sagði Gunnar Svavarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, þegar hann hélt sína síðustu þingræðu á Alþingi í kvöld. Hann er ekki í framboði til þingkosninganna, sem fara fram

Þingfundum var frestað á níunda tímanum í kvöld eftir að samþykkt höfðu verið lög um bann við kaup á vændi, lög um álver í Helguvík og um skaðabætur. Frumvarp um stjórnskipunarlög var ekki rætt frekar og lauk því aldrei annarri umræðu um málið. 

Fram kom í máli Guðbjarts Hannessonar, forseta Alþingis, að mikill fjöldi þingmála hefði verið afgreiddur undir lok þingsins og tengdust málin flest vandamálum heimila og fyrirtækja.  Alls voru afgreidd 100 frumvörp og 13 þingsályktunartillögur á því þingi, sem lauk í kvöld. Þá sagði Guðbjartur, að á tímabilinu eftir að minnihlutastjórnin tók við völdum hefðu fleiri nefndar- og þingmannafrumvörp verið afgreidd að jafnaði en á fyrri þingum, eða 17 nefndarfrumvörp og 5 þingmannafrumvörp. Sagði Guðbjartur, að þetta væri vonandi vísbending um vaxandi frumkvæði Alþingis í lagasetningu.

Guðbjartur þakkaði sérstaklega Sturlu Böðvarssyni fyrrverandi forseta Alþingis, fyrir samstarfið en Sturla býður sig ekki fram aftur. Hann óskaði einnig Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrrverandi formanni, góðs bata í veikindum sínum. Einnig nefndi hann nokkra þingmenn, sem ekki verða í kjöri eftir viku, þá Árna M. Mathiesen, Björn Bjarnason og Magnús Stefánsson, sem allir hafa gegnt ráðherraembættum, Lúðvík Bergvinsson, sem hefur verið formaður þingflokks Samfylkingar, Kristinn H. Gunnarsson, Einar Már Sigurðarson og Guðfinnu S. Bjarnadóttir sem setið hafa í forsætisnefnd þingsins og Ellert B. Schram, aldursforseta þingsins.

Alþingi verður væntanlega kallað saman að nýju þegar ný ríkisstjórn hefur verið mynduð í kjölfar alþingiskosninganna 25. apríl. 

eftir viku./Loksins lauk þessu og það ekki til fyrirmyndar,Verst þótti þessari minnihlutastjórn og Framsóknarflokki að kom ekki á brettingum á stjórnaskrá til að geta breitt henni að vild eftir kosningar,þetta var það dm þeir vildu,en sem betur fer gerðist ekki,Nú einhendir þessi flokkur minn sjálfstæðisflokkur að  koma sinum málum fram sem við ætlum að gera á viku ,það sem við erum eini flokkunin sem er búin að gera hreint fyrir sinum dyrum,og nú hefst alvöru kosningabarátta,sem verður hörð en stutt,og við  flettum ofan af Ríkieinkavæðingarflokkunum/Halli gamli

mbl.is Takk fyrir, búið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045700

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband