Áherslan á ESB lýsir taugaveiklun/segir Steingrímur Form.V.G.


Mynd 496604 „Ég er hugsi yfir því hve fast ýmsir talsmenn Samfylkingarinnar sækja ESB-aðildarumsókn. Ég er þó alveg rólegur og lít á þetta sem taugaveiklun. Við í VG höfum áhuga á að samstarfið við Samfylkingu haldi áfram og tel ágætar líkur á að við getum sameinast um afstöðu til málsins,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG í formannaþætti RÚV

Umræðan um aðild að Evrópusambandinu og afstöðu flokkanna til aðildarumsóknar var fyrirferðarmikil í formannaþætti RÚV í kvöld. Formaður VG sagði sinn flokk hafa opnað á möguleikann á því, að undangengnu vönduðu ferli, að þjóðin kjósi um málið.

Formaður Samfylkingarinnar sagði nauðsynlegt að hefja aðildarviðræður strax.

„Öðruvísi getur þjóðin ekki tekið afstöðu. Það er forgangsmál hjá okkur í Samfylkingunni að fara í ESB,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir.

„Það er líklegt að VG og Samfylkingin nái saman um ESB. En það tekur tíma að komast þangað inn. Í millitíðinni þarf að grípa til aðgerða, það þarf að sinna þjóðinni, það er brýnt. Það gerum við ekki með ónýta krónu og 17% stýrivexti,“ sagði Þór Saari, talsmaður Borgarahreyfingarinnar.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins sagði núverandi stjórnarflokka ekki geta náð saman um ESB nema annar hvor gæfi verulega eftir. Hann sagði ESB-aðild ekki þá töfralausn sem Samfylkingin boðaði. Auk þess væri mikil ágreiningur um málið meðal þjóðarinnar.

Ástþór Magnússon, talsmaður Lýðræðishreyfingarinnar gaf lítið fyrir umræðuna og sagði hana óábyrga. Fyrirfram mætti ekki hafna ESB-aðild.

Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins sögðust báðir fylgjandi aðildarviðræðum en undir ströngum skilyrðum. Frjálslyndir hafa sett 5 skilyrði sem lúta að yfirráðum auðlinda landsins og Framsókn vill hefja aðildarviðræður á grundvelli samningsumboðs frá Alþingi sem tryggi hagsmuni almennings og atvinnulífs. Þá er fullveldi og óskorað forræði Íslendinga yfir auðlindum þjóðarinnar grundvallarkrafa í þeim viðræðum.///Þetta voru ágætar umræður,þó sumt væri óþarfa rölf ekkert,enn samt þær bestu sem við höfum horft á til þessa,margt gott kom fram sem áhugavert verður að vita hvað kemur fram eftir kosningar/vonandi að fólið sjái hvað þeim kemur best að kjósa eftir þetta,séðustu forvöð að ákveða sig kosning hefst 9,0 i fyrramálið/Maður ætlar ekki að vera með áróður meira komið nóg af því/skoðum málin á Mánudag/Kveðja Halli gamli


mbl.is Áherslan á ESB lýsir taugaveiklun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorvaldur Guðmundsson

Ertu viss um að Bjarni Ben hafi verið .arna ég varð ekkert var við hann?

Þorvaldur Guðmundsson, 24.4.2009 kl. 22:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045699

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband