Ísland stendur undir skuldum/IMF segir þetta /um þetta er samið að við gerum???

Viðskipti | mbl.is | 29.5.2009 | 10:10
Fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á blaðamannafundi á...Fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Mark Flanagan, segir að mat IMF sé að Ísland geti staðið undir skuldabyrði hins opinbera, en hann hafi oft verið spurður að því í heimsókninni nú. Hugsanlega verði hægt að hefja slökun gjaldeyrishafta á seinni hluta þessa árs.sjóðurinn enn á þeirri skoðun að gjaldeyrishöft séu ennþá nauðsynleg, en hugsanlega sé hægt að létta á þeim á seinni hluta þessa árs. Það verði hins vegar að gerast smátt og smátt. Krónan sé ennþá viðkvæm og því sé þörf á styrkri peningastjórn hér á landi.

Viljayfirlýsing send til IMF 

Íslensk stjórnvöld munu á næstu vikum senda framkvæmdastjórn sjóðsins uppfærða viljayfirlýsingu, líkt og gert er í lok hverrar endurskoðunar. Yfirlýsingin lýsir helstu verkefnum og áætlunum stjórnvalda næstu mánuði. Hún byggir á þeim grunni sem lagður var í upphafi samstarfsins í nóvember.

Búist er við að framkvæmdastjórn sjóðsins taki afstöðu til yfirlýsingarinnar í júlímánuði. Í kjölfar þess mun Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn veita annan hluta láns hans til styrkingar gjaldeyrisforða Seðlabanka Íslands.

Fyrirhuguð heildarlánveiting sjóðsins til Íslands nemur 2,1 milljarði Bandaríkjadala. Þegar hafa verið greiddar um 830 milljónir dala inn á reikning Seðlabanka Íslands hjá seðlabanka Bandaríkjanna. Að lokinni samþykkt stjórnar sjóðsins verður viljayfirlýsingin ásamt greinargerð sendinefndarinnar gerð opinber//Við' eruu  dregin á asnaeyrunum aftur og aftur af þessum gjaldreyrássjóð IMF ,þetta er bara tálsyni við eigum ekki að borga þetta,erum engir menn til þessa og verðum bara að segja sannleikan við borgum ekki,það er nóg á okkar könnu fyrir/Þetta var vitað að þessi sjóður FIM er svona ræðst á garðinn þar sem hann er lægstur,og vinnur fyrir stórþjóðir sem drottna yfir þeim sem mynna meiga sín/við eigum að' segja hingað og ekki lengra,annað er ekki i stöðunni/Halli gamli


mbl.is Ísland stendur undir skuldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045797

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband