Framkvæmdafé til þurrðar gengið/aldrei betri timi til aðgerða i vegagerð'!!!!

Innlent | Morgunblaðið |Mynd 502271 Óvíst er að Vegagerðin bjóði út fleiri verk á þessu ári. Vegna niðurskurðar hefur útboðum verið frestað. Hugsanlegt er að einhver verk verði unnin í einkaframkvæmd með lánsfjármögnun lífeyrissjóða en þau hefjast ekki á þessu ári.þau hefjast ekki á þessu ári.

Öll útboð voru stöðvuð í nóvember á síðasta ári, eftir bankahrunið, en eftir að ákveðið var að skera niður framkvæmdafé um 6 milljarða fól Kristján Möller samgönguráðherra Vegagerðinni að hefjast handa að nýju. Það tímabil stóð aðeins í rúma fjóra mánuði því að í síðustu viku voru öll útboð stöðvuð, meðal annars tvö útboð sem búið var að auglýsa.

Nú er boðað að framkvæmdafé verður skorið niður um 3,5 milljarða til viðbótar í ár og um rúmlega 8,3 milljarða á næsta ári. Eftir eru 17,5 milljarðar til framkvæmda á árinu. Þar af var búið að ráðstafa með samningum um verk frá fyrra ári um 15 milljörðum króna. Verk sem samið hefur verið um það sem af er ári taka til sín þá 2,5 milljarða sem eftir eru. Hreinn Haraldsson vegamálastjóri segir að farið verði yfir stöðu mála í haust og athugað hvort eitthvert svigrúm verði eftir til framkvæmda.

Arnar Sigurmundsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða, segir að væntanlega muni stjórnvöld forgangsraða verkefnum og ræða við lífeyrissjóðina um fjármögnun. Þetta hefur ekki verið útfært, t.d. hvort lánin verði veitt gegn útgáfu skuldabréfa eða hvort sjóðirnir treysta sér til að taka þátt í einkaframkvæmd. Þó er ljóst að tryggingar eru lífeyrissjóðunum mikilvægar og ávöxtunin en Arnar segir að lífeyrissjóðirnir hafi einnig áhuga á að verkefnin séu atvinnuskapandi og þjóðfélagslega hagkvæm.///þetta eru ekki rétt forgangsröðun i hlutunum!!!aldey betra að ger þetta en nú þegar allir verktakar eru lausir og nóg af tækjum til þessa/skapar atvinnu og leysir vanda okkar í umferðamalum,sem eru nauðsyn!!!Lifeyrisjóðirnir eiga nógan pening til að lána á góðum vöxtum,þetta hafa önnur lönd gert i kreppum og gefist vel/Þessi Ríkisstjórn er ekki í neini lagi,og samsyn i meira lagi sesstaklega Kristjan Möller/Halli gamli


mbl.is Framkvæmdafé til þurrðar gengið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045793

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband