27.6.2009 | 08:03
Einkaframkvæmd líkleg/Forgangsröðun Möllersins er bölvuð!!!!!
Kristján L. Möller samgönguráðherra segir góðar horfur á að bjóða megi út Vaðlaheiðargöng og samgöngumiðstöð í Reykjavík sem einkaframkvæmdir. Hugsanlega verði auglýst forval vegna fjármögnunar og verktöku Vaðlaheiðarganga síðar í suma
Fulltrúar verktakafyrirtækja innan Samtaka iðnaðarins ræddu í dag við samgönguráðherra og vegamálastjóra um ástand og horfur í útboðum á sviði vegagerðar á næstunni. Samtök iðnaðarins hafa hvatt stjórnvöld til að endurskoða áform um frestun framkvæmda.
Fulltrúar Samtaka iðnaðarins voru Árni Jóhannsson, Loftur Árnason og Sigþór Sigurðsson og lýstu þeir áhyggjum verktaka vegna fyrirhugaðs samdráttar í vegagerð. Sögðu þeir þau áform koma verktökum sérlega illa þar sem harla litlar framkvæmdir væru á vegum sveitarfélaga og byggingaiðnaðurinn við frostmark.
Kristján L. Möller samgönguráðherra og Hreinn Haraldsson vegamálastjóri fóru yfir stöðuna á árinu og sögðu að þrátt fyrir frestun framkvæmda væri útlit fyrir að bjóða mætti út verk þegar liði á árið. Upphaflegt framlag til vegaframkvæmda var í ár 21 milljarður en yrði 17,5 milljarðar miðað við ákvörðun um samdrátt. Í upphafi árs var gert ráð fyrir að yfirstandandi verk myndu kosta um 15 milljarða sem myndi ef til vill hækka eitthvað vegna verðbóta.
Fram kom að mörg útboð ársins hafa verið hagkvæm og nefndi ráðherra að við 12 útboð síðustu mánaða hefði áætlaður verktakakostnaður verið um 5,2 milljarðar króna en samanlögð upphæð verksamninga verið 3,2 milljarðar.
Einkaframkvæmd líkleg
Samgönguráðherra nefndi að góðar horfur væru á að bjóða mætti út Vaðlaheiðargöng og samgöngumiðstöð í Reykjavík sem einkaframkvæmdir. Undirbúningur vegna hönnunar samgöngumiðstöðvar væri langt kominn á vegum Flugstoða ohf. og fyrir lægi að ganga frá lóðaskiptum ríkis og Reykjavíkurborgar. Þá sagði hann mikinn undirbúning hafa farið fram á vegum Greiðrar leiðar vegna Vaðlaheiðarganga sem nýtast myndi við gerð útboðsgagna og væri hugsanlegt að auglýsa forval vegna fjármögnunar og verktöku síðar í sumar.
Þá sögðu þeir samgönguráðherra og vegamálastjóri að á næstu vikum yrði farið yfir fjárhagsstöðu verka sem nú væru í vinnslu og að henni lokinni yrði ljóst hversu mikla fjármuni væri hægt að setja í frekari útboð sem þeir sögðu að stefnt væri að síðari hluta ársins.//Enn og aftur gleymist Sundabraut sem er það lang besta fjárfestingin ,og bara nauðsin að þetta verði gert strax,þetta er að verða ómögulegt að komast út úr þessu bæ á norðurleið,þetta er algjört forgagnatriði að mati flestar,nema Kristjáns Möller,er ekki hæfur i þetta setja hann af strax og ekkert annað/Halli gamli
Til bakar
Einkaframkvæmd líkleg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:40 | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Af mbl.is
Erlent
- Sakar dómstólinn um gyðingahatur
- Merkel segir Trump heillaðan af einræðisherrum
- Hótar Bretum og Bandaríkjamönnum
- Hættir við að reyna að verða ráðherra Trumps
- Segir að Rússar séu að nota Úkraínu sem tilraunasvæði
- Handtökuskipun á hendur Netanjahú og Gallant
- Leitar á ný mið eftir kolranga könnun
- Mun borða nærri 900 milljóna króna banana
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.