Einkaframkvæmd líkleg/Forgangsröðun Möllersins er bölvuð!!!!!

Innlent | mbl.is | 26.6.2009 | 15:52
Mynd 502527 Kristján L. Möller samgönguráðherra segir góðar horfur á að bjóða megi út Vaðlaheiðargöng og samgöngumiðstöð í Reykjavík sem einkaframkvæmdir. Hugsanlega verði auglýst forval vegna fjármögnunar og verktöku Vaðlaheiðarganga síðar í suma

Fulltrúar verktakafyrirtækja innan Samtaka iðnaðarins ræddu í dag við samgönguráðherra og vegamálastjóra um ástand og horfur í útboðum á sviði vegagerðar á næstunni. Samtök iðnaðarins hafa hvatt stjórnvöld til að endurskoða áform um frestun framkvæmda.

Fulltrúar Samtaka iðnaðarins voru Árni Jóhannsson, Loftur Árnason og Sigþór Sigurðsson og lýstu þeir áhyggjum verktaka vegna fyrirhugaðs samdráttar í vegagerð. Sögðu þeir þau áform koma verktökum sérlega illa þar sem harla litlar framkvæmdir væru á vegum sveitarfélaga og byggingaiðnaðurinn við frostmark.

Kristján L. Möller samgönguráðherra og Hreinn Haraldsson vegamálastjóri fóru yfir stöðuna á árinu og sögðu að þrátt fyrir frestun framkvæmda væri útlit fyrir að bjóða mætti út verk þegar liði á árið. Upphaflegt framlag til vegaframkvæmda var í ár 21 milljarður en yrði 17,5 milljarðar miðað við ákvörðun um samdrátt. Í upphafi árs var gert ráð fyrir að yfirstandandi verk myndu kosta um 15 milljarða sem myndi ef til vill hækka eitthvað vegna verðbóta.

Fram kom að mörg útboð ársins hafa verið hagkvæm og nefndi ráðherra að við 12 útboð síðustu mánaða hefði áætlaður verktakakostnaður verið um 5,2 milljarðar króna en samanlögð upphæð verksamninga verið 3,2 milljarðar.

Einkaframkvæmd líkleg
Samgönguráðherra nefndi að góðar horfur væru á að bjóða mætti út Vaðlaheiðargöng og samgöngumiðstöð í Reykjavík sem einkaframkvæmdir. Undirbúningur vegna hönnunar samgöngumiðstöðvar væri langt kominn á vegum Flugstoða ohf. og fyrir lægi að ganga frá lóðaskiptum ríkis og Reykjavíkurborgar. Þá sagði hann mikinn undirbúning hafa farið fram á vegum Greiðrar leiðar vegna Vaðlaheiðarganga sem nýtast myndi við gerð útboðsgagna og væri hugsanlegt að auglýsa forval vegna fjármögnunar og verktöku síðar í sumar.

Þá sögðu þeir samgönguráðherra og vegamálastjóri að á næstu vikum yrði farið yfir fjárhagsstöðu verka sem nú væru í vinnslu og að henni lokinni yrði ljóst hversu mikla fjármuni væri hægt að setja í frekari útboð sem þeir sögðu að stefnt væri að síðari hluta ársins.//Enn og aftur gleymist Sundabraut sem er það lang besta fjárfestingin ,og bara nauðsin að þetta verði gert strax,þetta er að verða ómögulegt að komast út úr  þessu bæ á norðurleið,þetta er algjört forgagnatriði að mati flestar,nema Kristjáns Möller,er ekki  hæfur i þetta setja hann af strax og ekkert annað/Halli gamli

Fara til baka Til bakar


mbl.is Einkaframkvæmd líkleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045708

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband