Niðurlægjandi ákvæði/er ekki allt málið það ?????

Innlent | Morgunblaðið | 25.7.2009 | 11:17
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.Í uppgjörssamningi á milli breskra og íslenskra stjórnvalda er fjallað um greiðslur til breska innstæðutryggingasjóðsins vegna kostnaðar sem hann hefur orðið fyrir. Milljarðarnir tveir vegna Icesave-umsýslu eru án nokkurra takmarkana. Niðurlægjandi ákvæði, segiruppgjörssamningi á milli breskra og íslenskra stjórnvalda er fjallað um greiðslur til breska innstæðutryggingasjóðsins vegna kostnaðar sem hann hefur orðið fyrir. Sagt hefur verið að þar sé tveggja milljarða króna lögfræðikostnaði Breta í Icesave-málinu velt yfir á Íslendinga.

„Hið rétta er að íslensk stjórnvöld féllust sl. haust á það að þeim bæri að greiða innstæðueigendum í Bretlandi og Hollandi hluta af innstæðum þeirra [...]. Hluti af skuldbindingum innstæðutryggingasjóða samkvæmt reglugerðinni er að sjá um útborganir og samskipti við innstæðueigendur,“ sagði í yfirlýsingu fjármálaráðherra vegna málsins í gær.

Í samningnum, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, segir í grein 3.1 í þýðingu blaðamanns: „Breski innstæðutryggingasjóðurinn má leggja fram (fyrir hönd þess íslenska) eina beiðni um útgreiðslu að andvirði tíu milljón pund, með hliðsjón af þeim kostnaði sem stofnað hefur verið til, eða stofnað verður til, af breska innstæðutryggingasjóðnum, við meðferð og útgreiðslu á bótum til innstæðueigenda hjá breskum útibúum og umsjón með tengdum málum, þar á meðal, án takmarkana, endurheimtum og hvers konar deilum sem geta hlotist af þeim.“

Þarna er vísað til kostnaðar við að halda utan um Icesave eftir bankahrun, en ekki vegna gerðar Icesave-samninga. Þó er tekið fram að engar takmarkanir séu á því í hvað megi nota fjármunina.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að sér finnist ákvæðið niðurlægjandi. Það undirstriki að viðsemjendur Íslands fái allt og eftirgjöfin sé algjör.

„Ég er leiður á því að heyra fjármálaráðherra vísa til þess að fyrri stjórnvöld hafi verið búin að skuldbinda ríkið. Því ef eitthvað hefur komið í ljós í þessari vinnu á Alþingi, þá er það einmitt að ekki hafði tekist skuldbindandi samkomulag um eitt eða neitt í haust,“ segir Bjarni. formaður Sjálfstæðisflokksins///Hvernig sem menn vilja skylja þetta er þetta ekki verjandi að við seum að borga þessa upphæð,við neitum þessu öllu og semjum uppá nýtt,og þá borgum við eftir getu ekkert annað,það er svo í samningum ESB eða svo skilur maður!!!!Halli gamli


mbl.is Niðurlægjandi ákvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045691

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband