Ísland fær enga sérmeðferð/það vissum við öll,kannski ekki samfylgingin????

Innlent | mbl.is | 27.7.2009 | 14:48
Olli Rehn Olli Rehn, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, segir að Ísland fái enga flýtimeðferð inn í sambandið en ekki megi gleyma því að Ísland hafi þegar tekið upp stærstan hluta reglna ESB. Hann fagnaði um leið umsókn Íslendinga. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Brussel í dag

Rehn hrósaði Svíum, sem fara með forsæti í ESB, fyrir að hafa afgreitt umsókn Íslands með skilvirkum hætti. Hann sagði að sem gamall Norðurlandasinni teldi hann norrænu lýðræðisríkin öll eiga heima í Evrópusambandinu. 

Rehn og Cecilia Malmström, ráðherra Evrópumála í Svíþjóð, tóku fram á blaðamannafundinum að ríki á Balkanskaganum sem hafa sótt um aðild að ESB verði ekki sett aftur fyrir Ísland en það sem skýri tafir á afgreiðslu umsóknar Albaníu sé stjórnmálaástandið í landinu og að umsókn þeirra verði afgreidd um leið og búið er að mynda þar ríkisstjórn.

Fram kom í máli Malmström að einhver af aðildarríkjum ESB hefðu látið í ljósi áhyggjur af að Albanía og önnur ríki á vestanverðum Balkanskaganum yrðu látin mæta afgangi. Rehn, Malmström og Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, ítrekuðu hins vegar að unnið yrði áfram með Balkanríkjunum að því að búa þau undir ESB-aðild.

Spurt var á blaðamannafundinum hvort Svíar vonuðust til að álit framkvæmdastjórnarinnar lægi fyrir í forsetatíð þeirra, þ.e. fyrir áramót. Ennfremur var Olli Rehn spurður hversu langan tíma það tæki fyrir framkvæmdastjórnina að útbúa álitsgerðina.

Carl Bildt vísaði spurningunni til Olli Rehn. Hann sagði að aðalatriðið væri að álit framkvæmdastjórnarinnar yrði „gæðavara". Nú þegar ráðherraráðið hefði beðið um álit framkvæmdastjórnarinnar á umsókn Íslands yrði byrjað fljótt að vinna í málinu. „Það verður hlutlæg vinna og byggð á staðreyndum. Hún mun taka þann tíma, sem nauðsynlegt er að gefa verkinu," sagði Rehn.

Rehn var spurður út í það hvernig það horfði fyrir umsókn Íslands hve naumur meirihluti hafi verið fyrir því að sækja um aðild að ESB á Alþingi.  Að sögn Rehn er naumur meirihluti á þingi fyrir umsókn að ESB ekkert nýtt, það sama hafi gerst á finnska þinginu á sínum tíma, málið hafi verið viðkvæmt og umdeilt. Finnland hafi engu að síður lokið aðildarsamningum við ESB, sem sýni að hægt sé að finna lausnir á viðkvæmum málum.

Að sögn Rehn fullnægir Ísland nú þegar öllum lýðræðislegum skilgreiningum ESB. Landið er einnig aðili að Evrópska efnahagssvæðinu og að minnsta kosti tveir þriðju af löggjöf ESB séu því þegar í gildi á Íslandi. Hins vegar sé ekki endilega hægt að draga þá ályktun af því um mikilvægi þeirrar löggjafar, sem Ísland hafi þegar tekið upp. Búast megi við að aðild að myntbandalagi Evrópu ásamt sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum eigi eftir að skipta miklu í aðildarviðræðum.

Carl Bildt bætti því við að það hefði tekið Svíþjóð, Finnland og Noreg skemmri tíma að semja um aðild að ESB en um aðild að EES-samningnum. Á það bæri hins vegar að líta að hvorki Finnland né Svíþjóð ættu mikilla hagsmuna að gæta í sjávarútvegi./Þarna sjáum við svart á hvítu hvað bíður okkur,það verða engir samningar þið bara gangið inn á okkar forsendum,sjálfaútvegur landbúnaður orkan hitinn og allt fer í sameiginlegan sjóð þeirra,og frelsið búið,við getum ekkert samið við þær þjóðir sem i framtíðinni munu  versla  mest við okkur austurlönd !!!!,sjálfstæðið fokið fyrir veður og vind´,við getum strax tekið upp annan gjaldmiðil og gerum það án þeirra,við göngum einfaldlega ekki þarna inn/Halli gamli

 


mbl.is Ísland fær enga sérmeðferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045676

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband