Verðbólgan mælist 11,3%/þetta er óþolandi vertryggingu verður að taka af!!!!

Viðskipti | mbl.is | 29.7.2009 | 9:01
Sumarútsölur drógu úr hækkun vísitölu neysluverðs að þessu sinni Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júlí 2009 hækkaði um 0,17% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 0,56% frá júní. Er þetta minni hækkun en spáð hafði verið. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 11,3% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 16,4%.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 11,3% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 16,4%.  Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,7% sem jafngildir 11,3% verðbólgu á ári (16,7% fyrir vísitöluna án húsnæðis).
IFS Greining spáði því að vísitala neysluverðs hækkaði um 0,2% í júlí og Greining Íslandsbanka spáði sömu hækkun vísitölunnar. Hins vegar spáði hagfræðideild Landsbankans því að verðlag hækkaði um 0,4% í júlí.

Sumarútsölur lækka en eldsneyti hækkar

Sumarútsölur eru í fullum gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 7,3% (vísitöluáhrif -0,43%). Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 2,6% (-0,35%) og voru áhrif af lækkun markaðsverðs -0,32% en af lækkun raunvaxta -0,03%, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands.

Verð á bensíni og díselolíu hækkaði um 4,8% (0,23%). Þar af voru áhrif af hækkun bensíngjalds 0,28%. Verð á húsgögnum og heimilisbúnaði hækkaði um 4,7% (0,16%) og verð nýrra bíla hækkaði um 3,4% (0,12%). Þetta gengur ekki langur nóg er nú samt af að borga ,það verður að gera eitthvað rótækt,kannski taka vertrygginguna af i áföngum,það verður bara að gerast,annað ekki i stöðunni,það er sagt að Vextir muni ekki lækka !!!,hvað annað er i stöðunni/Halli gamli


mbl.is Verðbólgan mælist 11,3%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045681

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband